Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson,
bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
GERÐ verður úttekt á öryggisþáttum allra sund-
lauga Reykjavíkur, í kjölfar slyssins hörmulega
sem varð í Sundlaug Kópavogs 26. apríl sl. Meðal
þess sem verður skoðað eru eftirlitsmyndavélar,
hvort öll horn laugarinnar séu ekki innan sjónsviðs
og hvort endurnýja þurfi tækjabúnað. Þeir for-
stöðumenn sundlauga á höfuðborgarsvæðinu, sem
Morgunblaðið ræddi við, töldu nær fullvíst að eng-
inn blettur væri utan sjónsviðs.
„Við erum endalaust að skoða þetta og fylgjast
með enda er alltaf ýtrustu varúðar gætt í öryggis-
málum sundlaugarinnar,“ segir Daníel Pétursson,
forstöðumaður Suðurbæjarlaugar í Hafnarfirði,
spurður út í hvort hætt sé við að sundlaugargestir
lendi utan sjónsviðs eftirlitsmyndavéla. Daníel seg-
ir 16 myndavélar vera í og við laugina og fylgst sé
með þeim á sex skjáum, að hans viti sé laugin því al-
veg dekkuð. Ásgeir Sigurðsson, staðgengill for-
stöðumanns Laugardalslaugar, tekur undir orð
Daníels og segir öryggisþættina í stöðugri skoðun
og telur engan stað vera utan sjónsviðs. Sömu sögu
segir Jens A. Jónsson, forstöðumaður Árbæjar-
laugar: „Laugarnar gæta öryggis viðskiptavina
númer eitt, tvö og þrjú og því erum við alltaf á varð-
bergi gagnvart hugsanlegum veikum blettum.“
Síðastliðinn fimmtudag var haldinn fundur með
forstöðumönnum sundlauga Reykjavíkur, sem eru
alls sjö, og þar var farið fram á að úttekt yrði gerð á
öryggisþáttum. Steinþór Einarsson, skrifstofu-
stjóri hjá ÍTR, segir að reglulega séu haldnir fundir
með forstöðumönnum lauganna, og að sjálfsögðu
hafi slysið hörmulega komið upp. „Við uppfyllum
allar reglugerðir hjá okkur, en þegar eitthvað svona
kemur upp þá viljum við alltaf fara yfir þann búnað
sem við erum með, hvort þurfi að endurnýja hann
og það er bara eðlilegt. Ég bað m.a. um að fá yfirlit
um það hvers konar tæki við værum með, hvort þau
væru komin á tíma og hvort eitthvað þyrfti að end-
urbæta.“
Gerð verður úttekt á öryggi
í sundlaugum Reykjavíkur
Athugað verður hvers konar tæki eru í notkun og hvort þau þurfi að endurnýja
Fulltrúar samn-
inganefnda heil-
brigðis- og
tryggingamála-
ráðherra, Sivjar
Friðleifsdóttur
og Tannlækna-
félags Íslands,
undirrituðu í gær
samkomulag um
fyrirkomulag
tannlæknaþjónustu og ókeypis for-
varnaskoðun 3ja og 12 ára barna.
Liðsmenn tannlæknafélagsins munu
nú greiða atkvæði um samkomulag-
ið og hljóti það samþykki, er stefnt
að því að nýja fyrirkomulagið taki
gildi þegar 1. júní.
Í sérstakri bókun Tannlækna-
félagsins vegna samkomulagsins
segir að félagið samþykki að taka
þátt í þessari tilraun en telji að
miklu meira þurfi til ef bæta eigi al-
menna tannheilsu ungmenna á land-
inu.
„Þarna var samið um heildstæða
forvarnaskoðun fyrir 3ja og 12 ára
börn en einnig um skráningu á
tannheilsu þeirra,“ sagði Siv.
„Þriggja ára börnin fá skoðun,
fræðslu og flúormeðferð en 12 ára
börnin fá einnig tvær röntgenbit-
myndir. Miðstöð tannverndar mun
halda utan um skráningu á tann-
heilsu barnanna, læknarnir koma
upplýsingunum til hennar og þetta
er mjög mikilvægt, meðal annars til
að geta fylgst með því hvort börnin
skila sér. Við höfum haft áhyggjur
af því allt að 20% barna hafa á
hverju ári ekki skilað sér til skoð-
unar hjá tannlækni.“
Gagnrýnt hefur verið að tann-
heilsu íslenskra barna hafi hrakað,
borið saman við það sem gerist á
hinum Norðurlöndunum. Ráðherra
segir að nýja samkomulagið, sem
mun kosta ríkið um 70 milljónir á
ári, sé liður í að bæta úr því ástandi.
„Þetta er fyrsta skrefið í þá átt. Við
tökum þarna fyrir tvo árganga, um
4.000 börn eru í hverjum árgangi en
við stefnum að því að fleiri árgangar
verði teknir inn svo að þetta verði
heildstætt en það verður gert í
áföngum,“ sagði Siv Friðleifsdóttir.
Samið um
forvarnir
barna
Siv Friðleifsdóttir
Tennur tveggja
árganga skoðaðar
Nairobi. AFP. | Nýleg Boeing 737-800
þota flugfélagsins Kenya Airways
hrapaði í gær skömmu eftir flugtak í
Kamerún. Vitað er að 114 manns
voru um borð en ekki höfðu borist
neinar fregnir af afdrifum þeirra.
„Við erum að reyna að komast að
slysstaðnum en veðrið er mjög
slæmt,“ sagði talsmaður Kenya Air-
ways í Kamerún. Tvær þyrlur hers-
ins í Kamerún hófu þegar leit á
svæðinu.
Flestir farþeganna voru Afríku-
menn en einnig nokkrir Evrópu-
menn, þ. á. m. einn Svíi. Einnig voru
um borð Indverjar, Kínverjar og
einn Bandaríkjamaður. Vélin var á
leið frá Fílabeinsströndinni til Nai-
robi í Kenía en kom við í Kamerún til
að taka fleiri farþega. Hún hrapaði
eftir flugtak í borginni Douala og
mun veður hafa verið afar slæmt á
svæðinu, hávaðarok. Flugturn fékk
neyðarskeyti frá vélinni skömmu eft-
ir flugtakið.
Vél Kenya
Airways
fórst
♦♦♦ÞAÐ var fornbíladagur í skoðunarstöð Frum-
herja við Hestháls í gær en áætlað var að um 100
fornbílar yrðu skoðaðir. Sumardagskrá Forn-
bílaklúbbs Íslands hefst jafnan með svokölluðum
skoðunardegi ár hvert og því bíða jafnan margir
spenntir eftir því að sjá bílana komna á götuna.
Morgunblaðið/Kristinn
Fornbílarnir skoðaðir
SAMFYLKINGIN hefur eytt mestu
í auglýsingar vegna alþingiskosning-
anna framundan, samkvæmt saman-
tekt Capacent Gallup, eða tæpum
tólf milljónum króna, sem er um 42%
af þeim 28 milljónum sem samkomu-
lag er um að sé þak á útgjöldum
vegna þessa.
Samfylkingin hefur þar með tekið
fram úr Framsóknarflokknum sem
sá flokkur sem mestu hefur varið til
kosningabaráttunnar til þessa en í
síðustu viku einni eyddi Samfylking-
in 6,5 milljónum króna í auglýsingar,
þar af tveimur milljónum í sjón-
varpsauglýsingar.
Útgjöldin taka til tímabilsins frá
27. mars til 2. maí. Næstmest hefur
Framsóknarflokkurinn eytt í auglýs-
ingar, eða um 10,7 milljónum króna,
sem er um 38% af auglýsingafé
flokksins. Aðrir flokkar hafa varið
lægri fjárhæðum til þessa.
Langstærstur hluti auglýsinga
flokkanna hefur birst í blöðum, eða
fyrir um 33,3 milljónir króna af 46
milljóna króna heildarútgjöldum.
Framsóknarflokkur og Samfylking
eru jafnframt einu flokkarnir sem
hafa birt auglýsingar í sjónvarpi en
Framsókn hefur auglýst á þeim vett-
vangi fyrir 6,6 milljónir króna og
Samfylking fyrir 2,5 milljónir. Þá
hefur um 3,9 milljónum króna verið
varið í útvarpsauglýsingar.
Samfylking hefur
kostað mestu til