Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is Hvað er ríflega 150 cm áhæð, tæplega 100 kg oggetur öskrað mjög hátt?Svar: Beth Ditto, hin 25 ára gamla söngkona bandarísku pönkuðu og dansvænu rokksveitar- innar The Gossip. Ditto hefur vakið mikla athygli fyrir söng sinn og sviðsframkomu og einnig fatastíl, sem er ekki hefðbundinn miðað við manneskju í hennar stærð. Hún fengi ekki háa einkunn hjá Trinny og Susönnuh í sjónvarpsþáttunum What Not To Wear, sem myndu áreiðanlega draga hana úr glansandi sokkabuxunum og glimmerbeltinu á stundinni og klæða hana í aðsniðinn dömujakka við A-laga kjól. Þær og aðrar þröngsýnar tískulöggur hefðu rangt fyrir sér því Ditto er með sér- stakan stíl, sem fellur í kramið hjá aðdáendum hennar en í þeim hópi fjölgar stöðugt. Í umræðunni um „stærð núll“ og hverfandi stjörnur á borð við Nicole Richie og vinkonur er Ditto eins og ferskur andblær, eða öllu heldur kraftmikill stormsveipur. Óhefðbundið ömmulíferni Beth Ditto hefur verið sögð lifa djörfu lífi að hætti Courtney Love en sjálf segir hún það víðsfjarri sann- leikanum. Hún sagði í nýrri grein breska dagblaðsins Guardian að lífs- stíll hennar sé engan veginn rokk- stjörnulegur. Hún tryllir lýðinn á tónleikum en þess á milli segist hún vera algjör amma. Hún bakar kökur, eldar fyrir vinina og hugsar um blómin sín. Hún myndi aldrei taka eiturlyf. „Mér finnst eiturlyf ekki töff. Ég veit að sumir geta tekið þau og ekki misst stjórn á lífi sínu en ég hef séð svo marga eyðileggja sköpunargleði sína og lífið með og ég vil ekki vera einn af þeim. Ég hef heldur engan áhuga á því að vera manneskja sem hefur áhrif á ungt fólk á þessa vegu.“ Hún vill væntanlega frekar hafa góð áhrif á líf fólks en greinin um Ditto í Guardian var einmitt birt af því tilefni að hún var að byrja með nýjan ráðgjafarpistil í blaðinu þar sem hún svarar spurningum lesenda. Þetta þýðir þó alls ekki að hún lifi einhvers konar hefðbundnu lífi að hætti Biblíubeltisins þaðan sem hún er ættuð. Hún er lesbía og kom að eigin sögn hægt út úr skápnum á aldrinum 15–18 ára, sem var ekki auðvelt þarna í suðrinu. Nýjasta spurning í vandamáladálki hennar er einmitt: „Hvernig á að koma út úr skápnum í vinnunni?“ og svarar hún með stæl. Ditto segir það hafa verið erfitt að flytja frá Arkansas en hún notaði síðasta peninginn sinn til að kaupa flugmiða til Olympiu í Wash- ington. Þar var umhverfið feminískt og skapandi, allir í hljómsveitum og mikill samfélagsstuðningur. Líf hennar hefur ekki alltaf verið auð- velt og hún hefur þurft að taka margar erfiðar ákvarðanir. „Ég legg mínar eigin lífsreglur. Ég er auðvit- að femínisti og finnst ég vera fé- lagslega og stjórmálalega meðvituð, þó auðvitað sé hægt að draga í efa hvað pólitískur rétttrúnaður er. Að minnsta kosti samþykki ég ekki bara það sem mér er sagt.“ Umræðan um útlitið Hún hefur rætt holdafarið í við- tölum. „Ég er ekki of þung. Ég er feit, ég er með fellingar og mér er sama.“ Enginn getur ásakað hana um að meina þetta ekki því í lok tón- leika er hún gjarnan farin úr öllu nema nærfötunum. Og einhvern veg- inn verður öllum öðrum líka sama. „Fólk talar ennþá stundum um hvernig ég lít út en enn sem komið er hefur enginn sagt mér eitthvað sem ég veit ekki nú þegar. Ég veit að ég er feit, ég veit ég er sérstök, ég veit að tennurnar mínar eru gular. Ég kemst í spegil og þetta fer ekkert framhjá mér. Þegar fólk segir eitt- hvað á þennan veg um mig þá langar mig bara til að svara „Í alvöru“ eða „Vá, þú ert snillingur. Þú ættir að verða ljósmyndari. Þú ert með svo ótrúlega góða sjón“.“ Holdafarið ber allavega vott um það að hún lætur enga peningamask- ínu stjórna sér. Hún er engin fjölda- framleidd poppdúkka heldur hagar sér eins og hún vill. Ditto er innblástur greinar The Sunday Times frá 29. apríl síðast- liðnum, sem fjallar um stelpur yfir meðallagi stórar í óháða rokkheim- inum. Fyrir þá sem vilja kynna sér málið betur eru nefndar til sögunnar George úr Schla La Las, Delia úr Manic Cough, Titania úr Tits of Death, Heathy Lee Roth úr Gravy Train!!!! og Guri úr Priscillas. Allar eiga þær það sameiginlegt að láta til sín taka á sviði og klæða sig á ögr- andi hátt. Alvöru rokk og ról óháð vaxtarlagi. Önnur grein úr Guardian virðist einnig benda til þess að fita sé í tísku (eða a.m.k. ekki í felum) en þar telur blaðamaður upp tíu uppáhalds feitu manneskjur sínar. Ditto er á listan- um ásamt Hinrik VIII, Búdda, Pav- arotti, Orson Welles og fleirum. Hægt er að hlusta á lög The Gos- sip á www.myspace.com/gossipband og fræðast nánar um sveitina á op- inberri heimasíðu hennar www.gossipyouth.co.uk. Stór, stærri, stórkostlegust Í HNOTSKURN »Ditto er á toppi nýjastaárslista breska blaðsins NME yfir svalasta fólkið í rokkinu og jafnframt ein af þremur konum á topp fimm- listanum. Hinar eru Lily Allen (nr. 3) og Karen O úr Yeah Yeah Yeahs (nr. 5). »Hún syngur í bandarískurokksveitinni The Gossip, sem stofnuð var í Searcy í Arkansas árið 1999. »Með henni í sveitinni erugítarleikarinn Nathan (réttu nafni Brace Paine) og trommarinn Kathy. Þremenn- ingarnir fluttu saman til Ol- ympiu í Washington-ríki. »The Gossip hefur gefið útfjórar hljóðversskífur, That’s Not What I Heard (2000), Arkansas Heat (2002), Movement (2003) og Standing in the Way of Control (2005). SVIPMYND» Beth Ditto er söngkona bandarísku rokksveitarinnar The Gossip, hefðbundin í vaxtarlagi, og sam- kvæmt nýjasta árslista breska tímaritsins NME er hún svalasta manneskjan í rokkheimum. Slúður en ekkert múður Þrenningin í The Gossip með kraftmiklu konuna Beth Ditto, söngkonu, femínista og lesbíu, í fararbroddi. Rafa er hinn útvaldi, stóð ástórum rauðum fána semhékk niður af svölum hót-els á Römblunni í Barse- lónu daginn sem Liverpool skellti ríkjandi Evrópumeisturum á heima- velli þeirra í febrúar. „Þið eruð bara með bikarinn í láni. Við erum komn- ir til að sækja hann,“ sögðu boru- brattir stuðningsmenn enska liðsins – fyrir leik. Orðin höfðu takmarkaða þýðingu á þeim tíma en í dag, rúm- um tveimur mánuðum síðar, er Liv- erpool á þröm þessa þrekvirkis – að fara með sigur af hólmi í Meist- aradeild Evrópu í annað sinn á þremur árum. Benítez brá aftur og nýbúinn brandi fyrir tálknin á hin- um kokhrausta kollega sínum hjá Chelsea, José Mourinho, í vikunni og nú þarf hann aðeins að ryðja einni hindrun til viðbótar úr vegi, AC Milan. Öðrum gömlum kunn- ingja. Hafi Benítez haft stöðu hetju í augum Rauða hersins áður, þarf örugglega að leita að sambærilegum fyrirbærum á öðrum tilverustigum nú. Rafael Benítez Maudes fæddist í Madríd á Spáni 16. apríl 1960. Hann er af millistéttarfólki kominn og sparkyndið drakk hann í sig með móðurmjólkinni en frú Rosario Maudes, móðir hans, er gallharður stuðningsmaður Real Madrid. Rafa hinn ungi þráði, eins og svo mörg ungmenni, ekkert heitar en verða knattspyrnumaður og gekk í raðir Real Madrid. Hann skilaði sér þó aldrei upp úr yngri flokkunum og slæm meiðsli, sem hann hlaut á ung- lingsárum, dæmdu hann til vistar í neðri deildunum á Spáni. Ferlinum lauk langt um aldur fram. Þrettán ára þjálfari Benítez hafði ungur sýnt þjálfun áhuga, var farinn að þjálfa barnalið þrettán ára að aldri, og ljóst var hvert hugurinn stefndi. 26 ára réð Real Madrid hann til starfa. Benítez gengdi ýmsum störfum hjá vara- og unglingaliðum félagsins næsta ára- tuginn, um skeið var hann m.a.s. að- stoðarmaður knattspyrnustjórans, Vicente Del Bosque. Sumarið 1995 var Benítez ráðinn knattspyrnustjóri Real Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni. Þar fann hann ekki fjölina sína og var látinn taka pokann sinn eftir einungis tvo sigra í 23 leikjum. Ekki gekk honum betur hjá Osasuna, sem hann tók við í 2. deildinni árið eftir. Var sagt upp störfum eftir einn sigur í níu leikj- um. Því næst lá leið Benítez til ann- ars félags í 2. deildinni, Extramad- ura, og þá gekk gæfan loksins í lið með honum, a.m.k. um stund. Hann kom liðinu upp í úrvalsdeildina á fyrsta ári – en skilaði því raunar beint niður aftur. Eftir þá reynslu afréð Benítez að taka sér frí frá þjálfun og leita hollra ráða hjá viskubrunnum á borð við Sir Alex Ferguson hjá Manchester United og Arsène Wenger hjá Ars- enal. Einnig stakk hann við stafni á Ítalíu. Þessi Evrópureið hefur bersýni- lega haft góð áhrif á Benítez því upp frá henni fór ferill hans á flug. Sum- arið 2000 tók hann við Tenerife í 2. deildinni og stýrði liðinu um- svifalaust upp í úrvalsdeildina. Þá um sumarið landaði hann sínu stærsta starfi, þegar Valencia ákvað að veðja á hann í kjölfar brotthvarfs Héctors Cúpers. Skeptistarnir smelltu raunar í góm en sagan hermir að þrír aðrir þjálfarar hafi verið ofar á óskalista félagsins. Benítez var þó fljótur að vinna Valenciu-búa á sitt band með leiftr- andi sóknarleik og vorið 2002 hreppti félagið sinn fyrsta meist- aratitil í 31 ár. Veturinn eftir olli Valencia vonbrigðum en liðið var aftur í sínu besta formi leiktíðina 2003-04. Endurheimti þá Spánarbik- arinn og bar sigur úr býtum í UEFA-keppninni. Benítez gekk á vatni í Valencia en samt var ekki allt með felldu. Hann lenti upp á kant við húsbændur á Mestalla, að því er talið er vegna leikmannakaupa, og sagði upp. Eins dauði er annars brauð og Liverpool var ekki lengi að leggja snörur sínar fyrir Benítez. Flestir þekkja afreksferil hans á Anfield. Strax í fyrstu atrennu náði hann í Evrópubikarinn eftir einn æsileg- asta og umpólaðasta úrslitaleik sparksögunnar gegn AC Milan. Menn bíða nú með vatnið í munn- inum eftir annarri rimmu félaganna í Aþenu 23. maí næstkomandi. Svo virðist sem Benítez sé brögð- óttari en aðrir menn í bikarkeppnum og í fyrra bætti hann bikar enska knattspyrnusambandsins í safnið eftir annan háspennuleik þar sem andstæðingurinn var West Ham. Stáltaugar á vítapunktinum Bæði þar og í Aþenu þurfti víta- spyrnukeppni til að knýja fram úr- slit, alveg eins og í glímunni við Chelsea í vikunni. AC Milan hlýtur því að hugsa til þess með hryllingi ef ekki tekst að leiða málið til lykta í venjulegum leiktíma eða framleng- ingu. Hann er ekki árennilegur milli stanganna hjá Liverpool, Pepe Reina, landi Benítez og sumir segja launsonur en þeir kumpánar eru slá- andi líkir í útliti. Það er önnur saga. Menn eru þegar farnir að máta Benítez við goðsagnirnar Bill Shankly og Bob Paisley, sem leiddu Liverpool til óteljandi titla á sínum tíma. Enda þótt ekkert verði tekið frá Spánverjanum í Meistaradeild- inni er það að áliti þessa penna ótímabært enda á hann enn eftir að gera alvöru atlögu að enska meist- aratitlinum sem fór síðast á loft á Anfield fyrir sautján árum. Hinn útvaldi Reuters Einbeittur Rafael Benítez án efa kominn í hóp fremstu knattspyrnustjóra heims um þessar mundir. Mun hann standa Shankly og Paisley á sporði? Spánverjinn Rafael Benítez hefur gert Liverpool að harðsnúnu afli í Evrópu KNATTSPYRNA»Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.