Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 91
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 91
Norræni menningarsjó∂urinn veitir sérstakan styrk til s ’yningar um norrænt
efni me∂ fyrirsögninni Norræn s ’yning ársins. Eitt e∂a fleiri söfn saman á
Nor∂urlöndum geta sótt um styrkinn. S ’yningin skuli haldin á tímabilinu
2008-2010. Styrkurinn getur numi∂ allt a∂ 3 milljónum DKK
og rennur umsóknarfrestur út 1. október 2007.
Sjá nánari upplýsingar á vefsló∂inni: www.nordiskkulturfond.org
HVER Á HUGMYND AΔ BESTU SÝNINGU Á NORΔURLÖNDUM?
Hljómsveitarstjóri ::: David Björkman
Einleikari ::: Hélène Grimaud
Hector Berlioz ::: Rómverskt karnival, forleikur
Johannes Brahms ::: Píanókonsert nr. 2
Claude Debussy ::: Síðdegi skógarpúkans
Maurice Ravel ::: La Valse
FÖSTUDAGINN 11. MAÍ KL. 19.30
fl group er aðalstyrktaraðili
sinfóníuhljómsveitar íslands
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
F
ít
o
n
/S
ÍA
F
I0
2
1
2
6
5
.
L
jó
s
m
y
n
d
©
J
H
e
n
ry
F
a
ir
/D
G
Hélène Grimaud er einn af eftirsóttustu píanóleikurum samtímans og leikur með
þekktum hljómsveitum um heim allan undir stjórn færustu hljómsveitarstjóra.
Leik hennar hefur verið lýst sem „hvatvísum, nautnalegum og tilfinninganæmum“.
KVIKSÖGUKVÖLD verður haldið
í Tjarnarbíói kl. 20 í kvöld, sunnu-
dagskvöld. Þar verður sýnt úr
heimildarmyndum og öðrum kvik-
myndaverkum sem eru í vinnslu.
Sagt verður frá gerð þeirra og
næstu skrefum í framleiðslu auk
þess sem fjórir valinkunnir kvik-
myndaleikstjórar taka þátt í pall-
borðsumræðu um verkin. Í pall-
borðinu munu sitja þær Anna Th.
Rögnvaldsdóttir, Ásdís Thorodd-
sen, Elísabet Ronaldsdóttir og
Helga Brekkan.
Verkin sem sýnd verða eru
Norðvestur eftir Einar Þór, Við-
fangið litla a eftir Önnu Björk
Einarsdóttur og Steinunni Gunn-
laugsdóttur og Óshlíð eftir Sig-
urjón Baldur Hafsteinsson. Kvöld-
ið hefst hins vegar á mynd- og
tónlistarverki Hallvarðar Ásgeirs-
sonar og Tamar Singer „I’m too
crowded“.
Nánar um myndirnar
Norðvestur eftir Einar Þór er
heimildarmynd sem fjallar um lífið
á Vestfjörðum síðustu þrjátíu ár
og breytingar sem hafa orðið í
byggðarlaginu, meðal annars
vegna náttúruhamfara í Súðavík
og á Flateyri. Stuðst er við 8 mm
kvikmyndaefni heimamanna í
myndinni. Einar Þór er kvik-
myndagerðarmaður en eftir hann
liggja m.a. myndirnar Þriðja nafn-
ið og Leitarhundar (a Dogument-
ary).
Óshlíð eftir Sigurjón Baldur
Hafsteinsson er „hryllingsverk“,
en í myndinni er gerð tilraun til
þess að fanga óhug sem slegið
hefur fjölmarga sem hafa ekið um
Óshlíðina. Óhugurinn ræðst af yf-
irvofandi lífshættu sem liggur í
dvala í sundursprungnu fjallinu
fyrir ofan veginn. Sigurjón Baldur
Hafsteinsson er mannfræðingur
og hefur gert kvikmyndir á borð
við Corpus Camera sem tilnefnd
var til Edduverðlauna árið 1999 í
flokki heimildarmynda.
Viðfangið litla a eftir Önnu
Björk Einarsdóttur og Steinunni
Gunnlaugsdóttur er fyrsta mynd
leikstjóranna og lýsir lífi og um-
hverfi samtímamyndlistarkonu.
Anna Björk Einarsdóttir nemur
bókmenntafræði og Steinunn
Gunnlaugsdóttir er myndlist-
arnemi.
Miðstöð kvikmynda
Kviksaga er miðstöð kvikmynda
og fræða og vettvangur þar sem
fræði og kvikmyndir mætast, t.d.
við gerð heimildarmynda, vídeó-
listar, kennsluefnis eða sjónrænna
rannsókna á menningu og sam-
félagi. Kviksaga stuðlar einnig að
samræðum og rannsóknum á kvik-
myndaforminu og er grundvöllur
fyrir áhugasama til að mætast,
ræða og vinna saman. Á síðast-
liðnu ári hefur Kviksaga efnt til
sýninga ásamt fræðilegri umfjöll-
un, haldið námskeið og staðið að
kvikmyndahátíð. Á heimasíðu
Kviksögu má finna ritstýrðar
greinar, viðtöl, tilkynningar og
myndbrot á sviði fræða og kvik-
mynda. Skrifstofa Kviksögu í
ReykjavíkurAkademíunni er öllum
opin til skrafs og ráðagerða, af-
nota myndefnis og tengslanets
miðstöðvarinnar.
Hryllingsverk Kynningarmynd Kviksögu eftir Sigurjón Baldur.
Þrjár íslenskar
myndir kynntar
www.kviksaga.is
Fréttir í tölvupósti