Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 46
ferðalög 46 SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ I. Félagar mínir í MR voruoftast tregir til skíða-ferða á sunnudögum þvílaugardagskvöldið sat eftir í þeim sumum þótt ekki væru þetta neinir óreglumenn. En ef Slysavarnafélagið varaði menn við að halda til fjalla einhvern sunnu- dag héldu þeim engin bönd. Því var það einn sunnudag í mars 1945, að við fjórmenningarnir, Guðmundur Þórðarson (1927– 1997), Gunnar Þ. Gunnarsson (1926–2007), Stefán Pétursson (1926–1998) og greinarhöfundur héldum með BSR bifreið áleiðis að Baldurshaga, en lengra var ekki fært vegna snjóalaga. Baldurshagi hét annars Café Broadway á stríðsárunum, einkum sótt af bandarískum hermönnum. Við gengum svo á skíðunum í átt að Geithálsi því þar var veitinga von en við svangir. Geitháls var í upp- hafi tveggja hæða hús en hafði í stríðinu verið breytt í einlyft hús sem var nýtt sem liðsfor- ingjaklúbbur brezka hersins. Þeg- ar Bretarnir fóru var rekin þar veitingastofa fyrir almenning. Knúðum við dyra en ekkert lífs- mark var að heyra innan úr hús- inu. Rúður voru allar hélaðar og þrátt fyrir margar tilraunir var ekki opnað fyrir okkur og töldum við að húsið væri mannlaust. Sem síðustu tilraun rak ég oddhvassan skíðastaf minn í hina ramm- byggilegu útidyrahurð og viti menn á sama augnabliki opnuðust dyrnar og gat ég rétt látið stafinn síga, áður en hann styngist í manninn. Spurði ég þá manninn hvort hægt væri að fá hér morg- unkaffi og meðlæti fyrir fjóra. „En þá þarf að hita vatn,“ segir hinn aldni veitingamaður. „Nú, er það eitthvert stórmál?“ segi ég. „Já, ég þarf að fara niður í læk með exi og búa mér til vök og sökkva fötu í hana svo ég hafi vatn í kaffið.“ Þágum við þetta sérstæða boð og settumst inn í stofu á með- an kaffivatnið var hitað. Neyttum við svo þessara ágætu veitinga með góðri lyst og héldum síðan áfram skíðagöngunni, þótt lélegt væri skyggnið. II. Komumst við svo upp í brekk- urnar hjá Lækjarbotnum og hlut- um þar marga byltuna því skyggni var slæmt og við ókunnugir þar efra. Fljótlega komum við auga á Skátaskálann í Lækjarbotnum og knúðum þar dyra. Var okkur vel tekið þar, enda réð húsum þar Guðmundur Magnússon (1881– 1958) klæðskeri. Þáðum við veit- ingar hjá honum fram eftir degi, því enn sortnaði bylurinn, svo ekki var veður til skíðaiðkana. Guð- mundur var annálaður höfðingi heim að sækja og afbragðs kokk- ur. En ekki dugði að setjast að í Skátaskálanum, við urðum að halda heim á leið, því við vissum örugglega, hvar vegurinn lá til Reykjavíkur. Við hittum á hann og fljótlega kom herbíll mikill, brezk- ur af Bedford-gerð með góðri veg- hæð, þannig að hann fór létt yfir alla skafla. Hirti bílstjóri hans okkur upp í bíl sinn, svo og alla aðra skíðamenn sem á leið hans urðu. Segl var yfir vörubílspall- inum og bekkir til þess að sitja á en kalt var þarna, „en það er lé- legur skúti, sem ekki er betri en úti“ segir þar. Þáðu allir skíða- menn þetta ágæta boð Bretans, nema Pálmi Hannesson, rektor MR, (1898–1956) „vinstri villan“ frá Hafnarárunum sat ennþá í honum. Brezki herbíllinn, sem lík- legast var frá Selfossi, stoppaði við Laugaveg 160 á móts við strætisvagnastoppistöðina Ás en þaðan þurftum við að ganga, hver til síns heima. Það er drjúgur spölur að ganga á skíðum frá Ási að Tjarnargötu 36, en kannski hefi ég stytt mér leið yfir Tjörnina því hún var á traustum ís. III. Skátaskálinn í Lækjarbotnum hefur nú verið endurgerður í sinni upprunalegu mynd og er til sýnis í Árbæjarsafni a.m.k. á sumrin. Nú er Geitháls horfinn, búið að rífa hinn virðulega liðsforingjaklúbb. Guðrún Guðlaugsdóttir (f. 1944) rithöfundur og nú blaðakona hjá Mbl. skráði æviminningar vinar míns Tryggva Einarssonar frá Miðdal (1901–1985). Þar er að finna málvenjuna: „að fara upp í Geit“ í stað þess, sem okkur hestamönnum hefði þótt eðlilegra að segja: „upp í Háls“. En hver sveit hefur sína málvenju. Á ár- unum 1957–1992, sem ég stundaði hestamennsku í Reykjavík, var um tíma veitingarekstur í Geithálsi, aðallega stundaður um helgar. Fjöldi hestamanna fékk sér þar kaffi og ef koníakið var þrotið úr vasapelanum, var veitingamaður oft hjálplegur með hálfa Merito, spánskt koníak (brandy). Ég man vel eftir einum veitingamanni í Geithálsi, Birni Bjarnasyni (1918– 2006), en hann var tengdasonur Björgvins í Garði Árnasonar (1894–1974) í Mývatnssveit (sam- býlismaður Valgerðar Björgvins- dóttur). Björn er skráður í Reykjahlíðarættina sem rafvirkja- meistari. Ég var ekki í Merito- flokknum en kynntist Birni síðar á ævinni er ég reisti stigahús á Háa- leitisbraut 113 ásamt þrem fé- Leifur Greinarhöfundur á skíðum um 25. ára aldur. Herbíll Umræddur breskur bíll af Bedford-gerð með góðri veghæð. Geitháls Gömul mynd af Geithálsi úr fórum föður grein- arhöfundar Sveins M. Sveinssonar (1891-1951). Skíðaferð í mars 1945 og saga Geitháls Eftir Leif Sveinsson Ekki átti ég von á að lesa ívirtu listtímariti aðmannsöfnuðurinn í upp-boðssal Sotheby’s í Bond Street, London, hefði haldið niðri í sér andanum þá boðið var í nú- listaverk á dögunum. En eins og ég hermdi af í síðasta pistli var mikið að gerast þegar kom að lokaboðum í málverk Peters Doigs „Hvíti ein- trjáningurinn“ frá 1990–91, metið á 1,2 milljónir punda, sem er í efri kantinum um núlistaverk. Er það svo var slegið á 5,73 milljónir punda, fimmfalt hærra en fyrra metverð á verki eftir listamanninn, brutust út mikil fagnaðarlæti í salnum, hrópað og kallað. Reyndist enda hæsta ham- arshögg á málverki lifandi myndlist- armanns í Evrópu og má ekki síst rekja ástæðu geðbrigðanna í troð- fullum salnum til þess. Listheimurinn virðist gripinn móðursýkiskasti um þessar mundir, svo komið geta engin hlutabréf keppt við málverkið, möguleikar á hagnaði margfaldir ef menn veðja rétt. Svo langt gengur að sumir lista- verkakaupmenn skirrast ekki við að bjóða í verk lítt þekktra listamanna í þeirri von að detta í lukkupottinn að nokkrum árum liðnum. En þetta er ekkert nýtt þvísjálfur Ambroise Vollard,helstur bakhjarl margra framsæknustu myndlistarmanna í upphafi síðustu aldar, átti það til að kaupa upp heilu sýningar viðvan- inga, en á móti kom að hann studdi við bakið á málurum líkt og Gauguin, Cézanne, Picasso, Redon, Matisse, Derain, Vlaminck, Renoir, Roault, myndhöggvaranum Maillol ásamt mörgum fleiri ásamt því að standa að útgáfu stórmerkilegra grafíkmappa. Missteig sig hins vegar þegar kom að verkum van Goghs, sem hann taldi ekki álitlegan kost til framtíðar litið (!) og harmaði það seinna meira en flest annað á ferli sínum. Hollt að minna hér á að öllumgetur yfirsést, en nú erubreyttir tímar og mynd- listin orðin að nokkurs konar mið- stýrðu lottóævintýri en möguleikinn á vinningi að sjálfsögðu stórum meiri. Kaupendur myndlistar stein- ríkir auðjöfrar og kvikmyndastjörn- ur sem þurfa örugga fjárfestingu, en ástin og áhuginn á verkunum er helst í samræmi við verðgildi þeirra og hugsanlegan ávinning. Í of- annefndu tilviki lá sterkur grunur um að sjálfur Charles Saatchi stæði að baki en hann rak lengi eins og margur veit eitt stærsta markaðs- setningar- og auglýsingafyrirtæki í heimi en mun nú alfarið hafa snúið sér að myndlistarmiðlun. Saatchi getur gert skjólstæðinga sína heims- fræga á núinu og einnig látið þá hrapa niður á jafnsléttu ef eitthvað kemur upp á milli þeirra, eða hann hafi sjálfur ávinning af. Hér í raun á ferð sömu leikreglur og síðustu árin hafa í vaxandi mæli viðgengst vestan hafs, af ástríðum og hugsjónum fer minna. Heiðarleiki er ekki það sem gefur mestan arð á þessu sviði frek- ar en öðrum, þannig óhætt að segja að listheimurinn sé ein maðkveita af svikum og prettum eins og alls stað- ar gerist þar sem peningar rúlla ótæplega. En segir ekki máltækið: Vilji fólk láta blekkja sig, blekkjum við það … Og eins og önnur andleg verðmæti heldur listin andlitinu, þótt ein- hverjum hugnist að gróma fegurðina og traðka á háleitum hugsjónum, en það var til forna viðtekna skilgrein- ingin á hugtakinu klám. Vafalítið grípur fólk hér á klak- anum andann við lestur þessara talna, ræturnar enn í gljúpum jarð- vegi þegar kemur að andlegum verð- mætum, hins vegar virðist enginn kippa sér upp við að glamúr- og kvik- myndastjörnur fái ofurlaun, knatt- spyrnumenn, körfu- og beisbolta- hetjur, golf- og tennisleikarar og þar fram eftir götum. Samt er ósýnilegt hugvitið það afl sem dugað hefur mannkyninu best frá upphafi vega, það er mikilvægasti drifkrafturinn og undirstaða velferðar, en óupp- lýstur múgurinn hefur alltaf átt erf- itt með að melta hluti sem ekki er hægt að festa auga á. Málarinn Peter Doig er fæddur í Edinborg 1959, hann er þannig á miðjum aldri, lifir og starfar í Lond- on. Samkvæmt stuttu æviágripi í bókinni „Art Now, 137 listamenn við Listin, leiksoppur gróðafíknar? Verðhækkun á skömmum tíma Uppboðshaldarar hjá Sotheby’s taka á móti tilboðum í verk Peters Doig, tók þá einungis þrjár mínútur að klifra upp frá matsverðinu 1,2 upp í 5,7 milljónir punda. SJÓNSPEGILL Bragi Ásgeirsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.