Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 49
Violence í Los Angeles, en markmið
þeirra er að stöðva ofbeldi gegn
konum. Hún hefur lagt fleiri sam-
tökum lið, t.d. verðlaunaði Ronald
Reagan forseti hana fyrir framlag
hennar til Liðagigtarstofnunarinnar
þar sem hún var heiðursfundarstjóri
í tíu ár og sendiherra stofnunar-
innar gagnvart ríkisstjórninni.
Snyrtilegt leyndarmál
Þegar líða tók á tíunda áratuginn
fjölgaði gestahlutverkum hennar í
sjónvarpsþáttum og aðalhlutverkum
fækkaði. Að sama skapi jukust um-
svif hennar á öðrum vettvangi, því
auk þess að reka kvikmyndafyr-
irtæki hafði hún hafið framleiðslu á
húðsnyrtivörum í eigin nafni, Princi-
pal Secret, og setti hún nýverið á
markað förðunarvörur með sama
merki.
Eftir Victoriu Principal liggja
fjórar bækur, sem einnig bera fjöl-
skyldunafn hennar. Annað hefði í
rauninni verið órökrænt því orðið
sjálft, principal, táknar það sem er
helst eða aðal. Bækurnar eru um
fegurð, húð og heilsu, og kom sú
fyrsta, Beauty Principal, út 1983, þá
Body Principal og Diet Principal. Í
þeirri síðustu, Living Principal frá
2001, bendir höfundurinn konum á
leiðir til að „endurnýja sig“ og fer í
níu köflum, lið fyrir lið, yfir þætti
eins og viðhorf, viðmót, megrun, æf-
ingar, hár- og húðumhirðu og síðast
en ekki síst það að eldast með reisn.
Út í geim
Af útlitinu á myndum að dæma, í
það minnsta, virðist slík framtíð
blasa við Victoriu Principal, sem er
fögur sem Pamela forðum, og ljær
hún ekki aðeins snyrtifyrirtæki sínu
nafn heldur líka andlit. Hún er sögð
gera það gott með því að gera út á
fegurðina og vegna umsvifa sinna
þarf hún að vera á stöðugum þeyt-
ingi á milli heimila sinna í Beverly
Hills, Kaliforníu og Malibu. Frekari
þeytingur er fyrirhugaður því hún
hefur bókað sig hjá geimferðaskrif-
stofu Richards Bransons, Virgin Ga-
lactic, í fyrsta áætlunarflugið út í
geim í júní 2008. Reisan mun kosta
tæpar 14 milljónir króna.
Athafnakonan Victoria Principal
er ennþá töluvert í sviðsljósinu vest-
anhafs, t.d. var hún gestur þáttarins
Good Morning America á ABC-
sjónvarpsstöðinni 24. apríl sl.
Í HNOTSKURN
» Victoria Principal er afenskum og ítölskum upp-
runa og hét Concettina Ree
Principale áður en frægð-
arsólin tók að skína.
»Hún hefur fjórum sinnumverið tilnefnd til Golden
Globe-verðlaunanna; 1973 sem
efnilegasti nýliðinn í The Life
and Times of Judge Roy Bean,
og 1983, 1986 og 1988 fyrir
hlutverk sitt sem Pamela í
Dallas.
» Helstu hlutverk: The Naked Ape, Earthquake,
sjónvarpsmyndirnar Mistress
og Naked Lie, sem báðar voru
sýndar á CBS og kom sú síð-
arnefnda Principal á kortið
sem framleiðanda 1989; Blind
Witness, Don’t Touch My
Daughter, The Burden of
Proof, River of Rage, Beyond
Obsession, Dancing in the
Dark og The Abduction.
»Þess má geta að kvik-myndafyrirtæki Principal
framleiddi eða tók þátt í fram-
leiðslu flestra framangreindra
mynda.
» Síðasta áratug hefur Prin-cipal komið fram í fjölda
sjónvarpsþátta og -sería, t.d.
Providence, Titan, The
Practice og Jack & Jill, að
ógleymdum teiknimyndaþátt-
unum Family Guy þar sem hún
var rödd dr. Amöndu Rebeccu.
Dagskrá:
08:00 Morgunverður
08:30 Setning
Magnús Friðgeirsson, stjórnarformaður Iðntæknistofnunar
08.35 Ávarp
Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra
08.45 Starfsemi Iðntæknistofnunar
Hallgrímur Jónasson, forstjóri
09.00 Green Energy
Jack Lewnard, Green Fuel Technologies Corp.
09.25 Eldsneytisframleiðsla úr íslenskum hráefnum
Guðmundur Gunnarsson, Iðntæknistofnun
09.45 Tækniyfirfærsla og alþjóðlegt samstarf
Ingólfur Þorbjörnsson, Iðntæknistofnun
10.00 Geothermal & Banking
Glitnir and it’s sustainable energy business
Alexander Richter, Glitni
10:15 Fundarlok
Ársfundur
Iðntæknistofnunar
U m h v e r f i ð o g o r k a n
H ó t e l N o r d i c a
8 . m a í 2 0 0 7 , k l . 0 8 : 0 0 - 1 0 : 1 5
Fundarstjóri: Berglind Hallgrímsdóttir, Iðntæknistofnun
Óskað er eftir að þátttaka sé tilkynnt í síma 570 7100
eða með tölvupósti á netfangið osk@iti.is