Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 93

Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 93
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 93 Hefur þú það sem sem við leitum að? OFANLEITI 2 • HÖFÐABAKKA 9 • KRINGLAN 1 SÍMI: 599 6200 www.hr.is Frumkvæði Sköpunargleði Forystuhæfni Aperio - sérsniðið nám fyrir einstaklinga sem skara fram úr Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík býður upp á sérsniðið nám fyrir afburða einstaklinga. Markmiðið með Aperio-kerfinu er að gefa einstaklingum sem skara fram úr jafnöldrum sínum, hvað varðar framtakssemi, frumkvæði, sköpunargáfu eða aðra hæfileika, tækifæri til að rækta vísindalega hugsun og nýsköpun á sviðum tengdum tækni og vísindum, með það fyrir augum að verða leiðtogar í þjóðfélaginu. Námið er sérsniðið að styrk, áhugasviðum og þörfum hvers og eins og gefur því nemandanum þann sveigjanleika sem hann þarf til að þroska frekar einstaka hæfileika sína. Nánari upplýsingar má finna á slóðinni www.hr.is/aperio F A B R IK A N 2 0 0 7 „ÉG VAR að koma úr þriggja vikna fríi erlendis frá og hef ekki heyrt neitt af Evróvisjónlögunum ennþá fyrir utan íslenska lagið,“ segir Selma Björnsdóttir söngkona og tvöfaldur Evróvisjónfari okkar Ís- lendinga um keppnina í ár. „Mér finnst lagið „Valentine Lost“ vera flott og kröftugt og svo er Eiríkur mikill rokkari og reynslu- bolti svo við eigum alveg möguleika á að komast áfram.“ Selma segir samt að keppnin sé svo óútreikn- anleg að engu sé hægt að spá. „Ís- land gæti vel unnið núna eins og aðr- ar þjóðir, maður veit ekki hvað gerist. Ég held að það vinni mest með Ís- landi að það skuli vera Eiríkur sem syngur lagið, hann er vel þekktur á hinum Norðurlöndunum bæði sem tónlistarmaður og síðan úr Norrænu Evróvisjónþáttunum á RÚV og því spái ég því að við fáum fullt hús stiga frá öllum norrænu þjóðunum. Ég held að það vinni líka með Íslandi hvað Eiríkur er ekta og niðri á jörð- inni. Mitt álit er nefnilega það að keppnin fari í hring og það að vera sem eðlilegastur sé að komast í tísku. Það er líka varla hægt að ganga lengra í búningum og til- búnum persónum en var í fyrra og nú held ég að það sé búið. Auðvitað munum við sjá slíkt aftur í ár því lög- in bera alltaf keim af sigurlagi ársins áður en ég held að það muni ekki vinna með neinum. Að apa eftir fyrri sigurlögum er ekki endilega upp- skriftin að sigri eins og sást í fyrra þegar Lordi vann, ekkert líkt þeim hafði sigrað áður og það er nokkuð víst að ljót skrímsli eiga ekki eftir að vinna keppnina aftur.“ Þar sem Selma hefur ekki heyrt lögin getur hún ekki spáð um sig- urvegara en hún spáir því í staðinn að það eigi a.m.k eitt land eftir að vera með dýr á sviðinu til að koma með eitthvað nýtt. „Það verður örugglega a.m.k ein fljúgandi dúfa hjá einhverjum,“ segir Selma og hlær. Selma segist ekkert vera mjög „evróvisjónsjúk“ en viðurkennir að hún smitist af spennunni í þjóðfélag- inu þegar nær dregur keppni. „Ég ætla að horfa á Eirík á fimmtudags- kvöldið en ef Ísland kemst ekki áfram veit ég ekki hvort ég mun sitja límd við skjáinn á laugardags- kvöldinu, ég stend svo fast með mín- um að mér finnst ekkert spennandi að horfa ef Ísland er ekki með.“ 4 dagar í Söngvakeppni Spáir dýri á sviðinu Morgunblaðið/Sverrir Á sviðinu Selma Björnsdóttir var fulltrúi Íslands í Evróvisjón 2005. TÓNLIST Bill Callahan – Woke On A Waleheart  ÞETTA er í fyrsta skipti sem Bill Callahan kemur fram undir eigin nafni, en hann hefur rekið eins- mannsveitina Smog í árafjöld en eft- ir hana liggja býsnin öll af gæðaplöt- um, nægir að nefna Dongs of Sevotion og Knock, Knock því til stuðnings. Að undanförnu hafa plöt- ur Smog verið að taka hæglátari stefnu; lágstemmt kántrí og kassa- gítarplokk kraumar undir, en bæði textar og andrúm eymdarlega falleg að vanda. Besta dæmið um þetta er síðasta Smogp- lata, hin „Will Oldham-lega“ A River Ain’t Too Much To Love (2005) og er þeim ramma haldið að mestu hér. Hvert lag líður áreynslu- laust áfram og eiga lögin til að grúva nokkuð, í einkennilegum, sorg- bundnum takti. Hér er á ferðinni heilsteypt og mjög svo áhlýðilegt verk; afar vel heppnuð plata frá einkar merkum listamanni. Arnar Eggert Thoroddsen Seiðmagnað Heilsteyptur Smog eða tónlistarmaðurinn Bill Callahan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.