Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 86
86 SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Kalvin & Hobbes
BLÓM ERU
SVO VITLAUS
EN NÚ HALDA ÞAU AÐ
ÞAÐ SÉ RIGNING
ÞAÐ ER
SVO GAMAN
AÐ RUGLA ÞAU
SJÁÐU,
ÞAÐ ER SÓL
OG HEIÐUR
HIMINN!
Kalvin & Hobbes
TILRAUNIN FÓR
ÚRSKEIÐIS OG KALVIN
HEFUR BREYST Í
RISASTÓRA FLUGU
FLUGAN SVEIMAR UM
GLORSOLTIN, Í LEIT AÐ
ROTNANDI HOLDI
HVAÐA DÝRLEGI FNYKUR
ER ÞETTA. FLUGAN FÆRIR
SIG NÆR BRÁÐINNI
ÉG ER
GLOR-
SOLTINN
EKKI VERA
ÓGEÐSLEGUR
KALVIN. FARÐU
BARA ÚT MEÐ
RUSLIÐ EINS
OG ÉG BAÐ ÞIG
Kalvin & Hobbes
KALVIN, ÉG SKRÁÐI ÞIG Í
SUNDKENNSLU!
ÉG VIL
EKKI
FARA Í
SUND-
KENNSLU!
ÞAÐ ER
OF SEINT AÐ
KVARTA
SKRÁÐIR
ÞÚ LÍKA
HOBBES?
NEI, ÞAÐ
MÁ EKKI
BLEYTA
HANN
AF
HVERJU
EKKI!
ÞVÍ ÉG ER
LENGI AÐ ÞORNA
OG Á MEÐAN
LYKTA ÉG
FURÐULEGA
Litli Svalur
© DUPUIS
HELDURÐU AÐ HANN SÉ
ENNÞÁ REIÐUR ÚT Í ÞIG
SÍÐAN ÞÁ?
HANN ER AÐ
MINNSTA KOSTI
ALVEG HÆTTUR AÐ
TAKA Í HÖNDINA
Á MÉR
dagbók|velvakandi
Kaldar kveðjur
KALDHÆÐNI var að rétt fyrir
sjálfan baráttudag verkalýðsins
skyldi birtast frétt um að einn af
oflaunakálfum banka- og pen-
ingageirans hefði tekið pokann
sinn. Ekki vanhaldinn að vísu því
að milljarða hafði hann í farteskinu
við starfslok. Almenningi hefur ver-
ið talin trú um að þessir snillingar,
sem bönkunum stýra, verði seint
oflaunaðir, þvílíkur sé máttur
þeirra. Þess vegna er það undarlegt
og í hróplegri mótsögn að vart líður
það misseri að ekki sé einhverjum
þessara ofurlaunamanna beinlínis
ofaukið og þeir látnir hætta störf-
um. Þeir sem ábyrgir eru fyrir
óhófs-laununum mættu gera sér
grein fyrir því að hlutirnir geta
snúist upp í andhverfu sína; há laun
eru ekki lengur hvetjandi þegar
menn hafa náð að sölsa undir sig
milljarða-fúlgur á miðri ævi. Slíkir
menn þiggja gjarnan starfslok
löngu fyrr en eðlilegt er til að hafa
rúman tíma til að njóta fengins fjár.
Fjár sem með óbilgirni þeirra sem
um slíkt semja, beggja vegna
borðsins, er tekið úr sjóðum bank-
anna, og þar með af eign hins al-
menna hluthafa. Hvert er siðgæði
þeirra sem semja um hlutabréfa-
kaup bankastjóra á undirverði og
alls kyns slík undirmál sem mis-
muna og veikja tiltrú manna á
bönkunum?
Spyrja má um siðferðiskennd
þeirra sem ábyrgð bera á græðgis-
væðingunni svokölluðu, mannanna
sem valdir eru að því að hinn al-
menni borgari, sem margur lifir á
launum undir viðurkenndum fram-
færslukostnaði, hefur misst virð-
inguna fyrir kerfinu. Þarna bera
stjórnvöld einnig ábyrgð því að
óréttlátt skattkerfi, sem mismunar
mönnum stórlega varðandi launa-
og fjármagnstekjur, veldur því að
nótulaus viðskipti og svört vinna
blómstrar sem aldrei fyrr. Þegn-
arnir hafa síður samviskubit af
slíku þegar ranglega er gefið; að
lítið mál sé að hirða nokkra aura
utan við lög og rétt þegar aðrir
þiggja fúlgur fjár án fyrirhafnar.
Sagnfræðingar eiga vonandi eftir
að upplýsa síðar hverjir eru ábyrgir
fyrir græðgisvæðingunni og þeim
skemmdarverkum sem unnin hafa
verið á íslensku samfélagi er það
var fært til þess ójafnaðar sem nú
ríkir.
Sigurður Jónsson.
Þrjú þúsund krónur
kaffilítrinn
ÉG vil vekja máls á dýru verði. Ég
fór á Nasa í gærkvöldi og keypti
mér kaffibolla. Hann kostaði 300
krónur. Þegar ég ætlaði að fá ábót
var hún ekki í boði. Bolli sem tekur
10 cl kostar sem sagt 300 krónur.
Sem þýðir að lítri af uppáhelltu
kaffi kostar 3.000 krónur. Ég hefði
frekar fengið mér bjór. Eða keypt
mér vodka í ríkinu.
Starfsfólk Nasa var auk þess
með dónaskap og þvermóðsku sem
ég líð ekki.
Kaffidrykkjukona.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
FRÉTTIR
PAUL Feldwick,
sérfræðingur í
skipulagningu
auglýsingaher-
ferða, mun halda
fyrirlestur um
auglýsingagerð –
hvað hafi verið
rangt við hana sl.
50 ár og hvernig
hún eigi að vera
– á námstefnu SAU og Birtinga-
hússins.
Fyrirlesturinn fer fram á Nordica
Hotel þann 10. maí nk. milli kl. 9 og
12.
Paul Feldwick vann hjá auglýs-
ingastofunni Boase Massimi Pollitt
frá 1974 til 1992 og síðan hjá DDB
þangað til hann stofnaði eigið ráð-
gjafarfyrirtæki á síðasta ári. Paul
hefur því yfir 30 ára reynslu af
skipulagningu auglýsingaherferða
bæði á Bretlandi og á heimsvísu og
hefur unnið til fjölda verðlauna.
Ráðstefnan er fyrir forstjóra/
framkvæmdastjóra, fjármálastjóra
og yfirmenn markaðsmála, starfs-
fólk auglýsingastofa, birtingahúsa,
markaðsrannsóknafyrirtækja og
fjölmiðla.
Verð fyrir SAU-félaga er kr.
15.900 svo framarlega, að gengið
verði frá skráningu eigi síðar en 3.
maí nk. Verð fyrir aðra er kr.
19.900.
Ráðstefnugögn og léttar veiting-
ar eru innifalin í verðinu. Skráning
þátttakenda fer fram á sau.is en
fjöldi þeirra verður takmarkaður
við 100 vegna þess forms, sem er á
námstefnunni.
Málið er ekki hvað sagt
er, heldur hvernig
Paul Feldwick