Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Montreal
17. maí
frá kr. 33.990
Vikuferð - Síðustu sætin
Frá kr. 49.990
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í
tvíbýli á Travelodge Montreal m/morgun-
verði í 7 nætur, 17.-24. maí. Aukagjald fyrir
einbýli kr. 19.900. Ferðir til og frá flugvelli
kr. 1.900.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Ótrúlegt tilboð
aðeins
10 herbergi í boði
Heimsferðir bjóða
frábært tilboð á síðustu
sætunum í aukaferð til
Montreal 17. maí.
Þetta er einstakt tæki-
færi til að njóta vorsins
og lífsins í þessari
stórkostlega spennandi
borg sem er önnur
stærsta borg Kanada.
Í borginni mætast gamli
og nýi tíminn, rík sagan
og iðandi nýbreytnin á
einstaklega skemmti-
legan hátt. Það er frábært að skoða sig um, versla og njóta lífsins í
Montreal; fallegar byggingar, endalaust úrval verslana og veitingastaða
og mjög hagstætt verðlag. Gríptu tækifærið og smelltu þér til Montreal
og njóttu þess besta sem þessi spennandi heimsborg hefur að bjóða.
Frá kr. 33.990
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með
sköttum, 17.-24. maí.
Beint flug
STAÐA PLÖTUÚTGÁFU Á ÍSLANDI
aðurinn sé ekki á því bili. Það má
aftur á móti hæglega verja hærri
upphæðum og margir gera það,“
segir hann.
Sena langstærsti útgefandinn
Sena gnæfir yfir aðra útgefendur
á íslenskum plötumarkaði. Íslensk
tónlistarútgáfa á vegum Senu er
mjög víðtæk og skiptist í tvö út-
gáfumerki; Senu og Íslenska tóna.
Undir merkjum Senu koma út nýj-
ar plötur en Íslenskir tónar gefa út
eldri tónlist, safnplötur og ferils-
plötur. Meðal helstu listamanna
sem gefa út sína tónlist hjá Senu
eru Björgvin Halldórsson, Bubbi,
Sálin hans Jóns míns, Baggalútur,
Regína Ósk, Toggi, Ampop og Bra-
in Police. Íslenskir tónar hafa á
undanförnum misserum sent frá
sér ferilsplötur með Björgvini Hall-
dórssyni, Megasi, Ellý Vilhjálms og
Vilhjálmi Vilhjálmssyni auk útgáfu-
raðanna Óskalögin og Svona var.
Sena er jafnframt eigandi út-
gáfuréttar á stórum hluta af allri
íslenskri tónlist en í eigu Senu eru
meðal annars allar íslenskar tón-
listarútgáfur Fálkans, Skífunnar,
Steina, Spors, Steinsnars, HSH-
útgáfunnar og SG-hljómplatna.
Sena er ennfremur með umboð
fyrir flesta helstu útgefendur tón-
listar í heiminum, en þar á meðal
eru Universal, EMI, SonyBMG og
Warner ásamt nokkrum minni.
Undir merkjum þessara fyrirtækja
eru listamenn eins og U2, Rolling
Stones, Bítlarnir, Eminem, Ma-
donna, REM, Katie Melua og fleiri.
Yfirleitt stöngin inn
Undanfarin ár hefur Sena sent
frá sér um fimmtíu titla á ári. Eið-
ur Arnarsson útgáfustjóri áætlar
að árleg markaðshlutdeild útgáf-
unnar í íslenskri tónlistarútgáfu sé
allt að 75%. „Við erum mjög ánægð
með þá hlutdeild þar sem við gef-
um ekki út nema um 25–30% af
öllu því efni sem kemur árlega út á
Íslandi. Þannig að þetta er yfirleitt
stöngin inn hjá okkur, ef þannig
má að orði komast,“ segir Eiður.
Metsölulisti Sambands hljóm-
plötuframleiðenda endurspeglar
þessa yfirburði á markaði en af
tuttugu söluhæstu plötum síðasta
árs báru útgáfumerki Senu ábyrgð
á átján.
Enda þótt nafnið Sena sé til-
tölulega nýtt af nálinni er um
rótgróinn útgefanda að ræða og
Eiður staðfestir að eigendurnir
geri skýlausa kröfu um að starf-
semin skili arði. Sena er hluti af
365-samsteypunni.
„Í þessu samhengi er nauðsyn-
legt að gera sér grein fyrir því að
95% allrar tónlistar í heiminum er
gefin út með tapi. Gróðinn af hin-
um 5% er aftur á móti svo mikill að
greinin ber sig og vel það,“ segir
Eiður en bætir við að hlutföllin séu
önnur hjá Senu, nær 80/20 arðbær-
um útgáfum í vil enda markaðurinn
af öðru tagi vegna smæðar sinnar.
Heillandi fag
Eiður segir plötuútgáfu mjög
heillandi fag enda hverfist það um
„hið ómögulega“, þ.e. hjónaband
viðskipta og lista. Hann segir sitt
starf öðru fremur snúast um til-
finningu og endalausar ágiskanir.
„Maður getur haft á tilfinningunni
að eitthvað gangi vel en aldrei ver-
ið alveg viss. Elsti sannleikurinn í
tónlistarútgáfu er að fólk kaupi það
sem það þekkir. Það er ágætt við-
mið. Vegna sterkrar stöðu útgáf-
unnar höfum við líka talsvert svig-
rúm til að taka áhættu en hún
verður að vera innan skynsamlegra
marka. Eigendur gera miklar kröf-
ur til okkar.“
Baráttan um athyglina er hörð á
Vegna sterkrar stöðu útgáf-
unnar höfum við líka talsvert
svigrúm til að taka áhættu en
hún verður að vera innan
skynsamlegra marka.
Eigendur gera miklar kröfur
til okkar.
Eiður Arnarsson
Ú
tgáfa á klassískri tónlist
hefur lengi átt erfitt upp-
dráttar á Íslandi og fara
þarf niður í 57. sæti sölu-
listans í fyrra til að finna plötu af
klassískum toga, Cortes með
Garðari Thór Cortes sem raunar
kom út árið 2005 og seldist þá ljóm-
andi vel. Hún fór í 1.458 eintökum í
fyrra sem Jónatan Garðarsson seg-
ir dágott á öðru söluári. Engin önn-
ur klassísk plata seldist í meira en
1.000 eintökum á síðasta ári.
Eiður Arnarsson segir það al-
gjöra undantekningu að klassísk
plata seljist vel á Íslandi. Þó séu
dæmi um það. Garðar Thór er nær-
tækasta dæmið en hann nefnir
einnig Kristján Jóhannsson og Sig-
rúnu Hjálmtýsdóttur, Diddú. Þessir
listamenn hafi selt plötur í þús-
undum eintaka þegar vinsældir
þeirra risu hvað hæst. Eiður telur
þessa sölu fyrst og fremst helgast
af persónulegum vinsældum téðra
flytjenda. „Þetta er gríðarlega
þröngur markaður um allan heim,
þannig að það kemur ekki á óvart
að klassísk plötusala eigi á brattann
að sækja á Íslandi. Svipaða sögu er
að segja um djassinn enda þótt
hann seljist ívið betur.“
Samkvæmt Plötutíðindum kom
21 klassísk plata út hérlendis í
fyrra og segir Jónatan þann fjölda
heldur í lægri kantinum.
Synd að sinna þessu ekki
Smekkleysa hóf að gefa út klass-
íska tónlist fyrir um áratug og eru
titlarnir orðnir sextíu í dag. Ás-
mundur Jónsson segir áhuga en
ekki gróðasjónarmið hafa ráðið
þeirri ákvörðun. Hann viðurkennir
að salan sé dræm og oft og tíðum
þurfi að fjármagna verkefnin sér-
staklega til að plöturnar komi út.
Smekkleysa hefur um skeið verið í
samstarfi við Íslenska tón-
verkamiðstöð, auk þess sem átak
hefur verið gert varðandi dreifingu
í Bretlandi.
„Það er mikið og blómlegt líf í
kringum íslensk tónskáld og margt
liggur í skúffunum. Það væri synd
að sinna þessu ekki,“ segir Ás-
mundur.
Hann segir að þessi hluti starf-
semi Smekkleysu hafi ekki borið
sig en einstakar útgáfur hafi geng-
ið ágætlega. Nefnir hann í því sam-
bandi plötuna Raddir sem gefin var
út í samstarfi við Stofnun Árna
Magnússonar og plötu með söng-
lögum Sigvalda Kaldalóns.
Ásmundur segir klassísku útgáf-
una unna með langtímasölu að
markmiði og bindur vonir við að
aurinn skili sér í kassann á end-
anum. „Maður gæti samt örugglega
fjárfest á arðbærari hátt,“ segir
hann sposkur.
Það er því ekki ástæða
til annars en vera
bjartsýnn fyrir hönd
íslenskrar tónlistar-
útgáfu. Hún er að
sækja í sig veðrið frekar
en hitt.
Jónatan Garðarsson
Búðir sem áður seldu bara
plötur hafa ekkert stækkað
að flatarmáli og þar sem nú
þarf að búa til rými fyrir
hina miðlana er viðbúið að
minna fari fyrir tónlistinni en
áður.
Ásmundur Jónsson
DRÆM SALA Á
KLASSÍSKUM PLÖTUM
Morgunblaðið/ÞÖK
Það þarf að eyða mörgum
krónum áður en eitthvað
kemur á móti. Það er stærsti
þröskuldurinn. Í okkar tilviki
er eitthvað farið að skila
sér til baka en við erum
rétt að byrja.
Lárus Jóhannesson
þessum vettvangi sem öðrum og að
sögn Eiðs er markaðskostnaður út-
gefenda að aukast. „Það er í takt
við annað í þjóðfélaginu,“ segir
Eiður. „Það þarf meira til að ná yf-
ir „noise-level“, eins og Björgvin
Halldórsson orðar það. Við þessu
höfum við brugðist.“
Smekkleysa færir út kvíarnar
Smekkleysa er önnur rótgróin
plötuútgáfa en hún fagnaði tvítugs-
afmæli sínu í fyrra. Upphaflega var
Smekkleysa stofnuð til að gefa út
efni Sykurmolanna en óx snemma
fiskur um hrygg. Meðlimir Syk-
urmolanna hafa þó alla tíð verið ná-
tengdir útgáfunni með einum eða
öðrum hætti.
Ásmundur Jónsson, sem stýrt
hefur starfsemi Smekkleysu allar
götur frá upphafi, segir hvötina að
útgáfunni hafa verið ferskleikann
sem fylgdi Sykurmolunum og lista-
mönnum sem komu úr svipaðri átt
á sínum tíma. Þeir hafi ekki átt
samleið með öðrum útgefendum og
því hafi það verið sameiginleg
ákvörðun hans og hljómsveit-
arinnar að stofna sérstaka útgáfu
utan um hana.
Síðan hleyptu Sykurmolarnir
heimdraganum með alkunnum ár-
angri og ekkert lát er á landvinn-
ingum söngkonunnar, Bjarkar Guð-
mundsdóttur, beggja vegna
Atlantsála.
Því fór þó fjarri að Smekkleysa
legði upp laupana. Þvert á móti
bætti hún í seglin og tók upp á sína
arma hljómsveitir á borð við Ham,
Langa-Sela og Skuggana og Risa-
eðluna. Þessu grasrótarstarfi hefur
verið fram haldið til þessa dags. Af
skjólstæðingum útgáfunnar í dag
má nefna Sigur Rós, Múm, Jagúar
og Jeff Who?
Smekkleysa hefur verið að gefa
út tæpa tvo tugi titla á ári, þar af
eru að jafnaði fjórir til átta klass-
ískir.
Útgáfurétturinn mikilvægur
Ásmundur segir plötuútgáfu snú-
ast að miklu leyti um útgáfuréttindi
sem safnist upp á löngum tíma.
Mikilvægt sé að ráða yfir útgáfum
sem seljist jafnt og þétt löngu eftir
að þær komu fyrst út. Gott dæmi
um þetta er platan Gling Gló með
Björk og Tríói Guðmundar Ingólfs-
sonar en hún seldist í meira en
1.400 eintökum á síðasta ári.
Eiður tekur undir þetta. Útgáfu-
rétturinn er verðmætasta eign
Senu og raunar sú áþreifanlegasta.