Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 33 „MENNTUN á að vera aðgengi- leg öllum án tillits til búsetu, efnahags eða annarra þátta,“ segir Herdís Á. Sæmundardóttir, frambjóðandi Framsóknarflokks- ins, og bætir við að Framsókn vilji ekki að opinberir skólar inn- heimti skólagjöld. Það eigi líka við um háskóla og þá sérstaklega hvað grunnnám varðar. „Háskóli Íslands á að vera þjóðarskóli með ákveðnar skyldur við íslenskt samfélag. Við eigum að standa vel við bakið á honum svo hann geti sinnt þeim,“ segir Herdís og leggur áherslu á að efla allt rannsóknarstarf tengt háskól- anum, ýta undir atvinnutengda menntun og byggja upp starfsmenntahá- skóla. Á sama tíma séu kostir fjarnáms nýttir til að gera öll- um kleift að sækja nám. Framsóknarflokkurinn vill reisa háskóla bæði á Vestfjörðum og Egilsstöðum. „Við höfnum því að þétta eigi háskólasamfélagið á einu svæði. Háskólar á lands- byggðinni eiga að geta sérhæft sig og byggt á styrkleikum hvers svæðis fyrir sig.“ Að sögn Herdísar eru fram- haldsskólar í raun orðnir hluti af grunnmenntun og þess vegna eigi fólk í öllum byggðakjörnum að geta sótt framhaldsskóla sem næst sinni heimabyggð. Fram- sókn vilji því skoða hvort ekki eigi að færa stjórn framhalds- skólanna til sveitarfélaganna enda myndi það auðvelda sam- starf milli skólastiga. „Það getur eflt bæði sveitarfélögin og grunn- skólana. Við þurfum að líta á nám allt frá leikskóla til fram- haldsskóla sem eina samfellu og bjóða upp á sveigjanleika svo að nemendur geti t.d. lokið stúdents- prófi á stuttum tíma,“ segir Her- dís og tekur undir að bókakostn- aður í framhaldsskólum sé orðinn óþarflega mikill og að skoða megi möguleika á bókastyrkjum. Opinberi skólinn grunneining Herdís segir að einkaskólar geti vel átt rétt á sér við hlið op- inberra skóla en að þeir megi ekki vera forréttindaskólar. „Grunneiningin er opinberi skól- inn,“ segir Herdís og er jafn- framt þeirrar skoðunar að Aðal- námskrá grunnskóla stýri skólastarfi óþarflega mikið. „Það verður að vera innbyggður sveigjanleiki svo skólarnir geti þróað sig með tilliti til aðstæðna á hverjum stað,“ segir Herdís sem jafnframt er þeirrar skoð- unar að börn innflytjenda eigi að fá kennslu í sínu eigin móðurmáli en að það geti verið óraunhæft í litlum skólum þar sem eru nem- endur af mörgu þjóðerni. Menntun á að vera aðgengileg öllum Herdís Á. Sæmund- ardóttir „MENNTAMÁL eru einn af horn- steinunum í okkar stefnu enda eru þau undirstaða jafnaðar og velferðar og að sama skapi kröftugs atvinnu- lífs,“ segir Katrín Júlíusdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, og bætir við að Ísland komi illa út í alþjóð- legum samanburði við önnur OECD- ríki hvað varðar framlög til háskóla og framhaldsskóla og ekki síst þegar kemur að brottfalli í framhalds- skólum. Samfylkingin vill blása til mennta- sóknar á öllum skólastigum og Katr- ín leggur áherslu á að mynda sam- fellu frá leikskóla upp í framhaldsskóla. „Við viljum afnema samræmd próf í grunnskólum því með þeim er verið að miðstýra börn- um inn á mjög fáar greinar og um leið verið að búa til litla „tapara“ úr þeim sem þessar áherslur henta ekki, sem okkur þykir rangt að gera í upphafi ævigöngu fólks,“ segir Katrín og bætir við að svona upp- lifun af grunn- skólanámi geti verið ein af skýr- ingunum á brott- falli úr fram- haldsskólum auk þess sem mið- stýring sé líka of mikil þar. „Við þurfum að treysta skólafólk- inu okkar betur til að byggja upp góða skóla þar sem nemendur geta lært á sínum for- sendum og sínum hraða,“ segir Katrín og leggur einnig áherslu á að bæta starfsumhverfi og kjör allra fræðslustétta. Sérstaðan verði viðurkennd Hvað háskólastigið varðar segir Katrín að fjárframlög hafi ekki hald- ist í hendur við mikla nem- endafjölgun. „Nemendum sem sækja sér háskólanám hefur fjölgað mikið en það er í samræmi við þró- unina í hinum vestræna heimi, ekki vegna frumkvæðis stjórnvalda eins og stundum er haldið fram,“ segir Katrín. Samfylkingin er mótfallin skóla- gjöldum í opinberum háskólum og Katrín segir að allir eigi að geta átt gjaldfrjálsa leið, allt frá leikskóla og til og með háskóla. „Þótt menn vilji að LÍN [Lánasjóður íslenskra náms- manna] láni fyrir skólagjöldum þá þýðir það auðvitað heilmikla greiðslubyrði fyrir nemendur,“ segir Katrín en bætir við að ríkið þurfi samt sem áður að bera umtals- verðan kostnað af slíkum lánum. Katrín vill að sérstaða opinberu háskólanna sé viðurkennd og að þeir fái aukin fjárframlög í samræmi við þær skyldur sem þeir hafa. Þeim beri að hafa meira námsframboð og halda úti kennslu í fögum sem eru kannski ekki eins vinsæl en engu að síður nauðsynleg. Verið að búa til litla „tapara“ Katrín Júlíusdóttir Morgunblaðið/ÞÖK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.