Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 35
hér komið að gagni. Eins og nafnið bendir til er slík flugvél lítið nema vængur með hreyflum og stýribún- aði. Bandarískur flugvélasmiður, John Northrop, vann að hönnun flug- vængja á árunum fyrir síðari heims- styrjöld, og í stríðinu kom hann fram með tilraunagerð af stórri fjögurra hreyfla sprengjuflugvél, XB-35. Flugvængir Northrops létu illa að stjórn og stríðinu lauk án þess að lausn fengist á vandanum. Síðar, á þotuöld, tóku framleiðendur á vegum bandaríska flughersins upp þennan þráð, og ein fullkomnasta sprengju- þota bandaríska flughersins, B-2 Stealth, sem kalla mætti „Laumu“ á íslensku, er af þessari gerð. Hún er raunar frægari fyrir annað, eins og nafnið gefur til kynna, þar sem hún er svo til ósýnileg í ratsjá. Vinnuhópur á vegum evrópska flugvélaframleiðenda og verkfræði- háskóla hefur sett fram hugmyndir um vænglaga farþegaþotu – the Si- lent Aircraft, þöglu þotuna – sem á að vera mun hljóðlátari en hefðbundnar gerðir og auk þess um 25% sparneyt- nari. En mun erfiðara verður að koma farþegum fyrir í þannig far- artæki en í sívölum bol, auk þess sem menn draga í efa að verðandi við- skiptavinir myndu sætta sig við nær gluggalaust farþegarými. Loks skal nefnd tækni til orku- sparnaðar sem þegar er komin á framleiðslustig þótt enginn fáist til að nýta hana. Á stuttum flugleiðum og í farmflutningi, þar sem hraðinn skipt- ir ekki meginmáli, nýtast skrúfuþotur betur en hreinræktaðar þotur. Fremst í hreyflum beggja þessara gerða er forþjappa, sem dælir lofti inn í brennsluhólf, og heitt loft frá því knýr flugvélina áfram og snýr einnig gashverfli, sem í skrúfulausri þotu nýtist aðeins til að snúa forþjöppunni, en á skrúfuþotu fer megnið af afli hverfilsins í að snúa skrúfunni. Afbrigði af skrúfuþotu er „viftuþot- an“ (propfan). Inni í hreyfli slíkrar þotu er engin forþjappa, en stórar flugskrúfur dæla lofti inn í brennslu- hólfið auk þess sem þær knýja þotuna áfram. Á hverjum hreyfli eru á sam- miðja ásum tvær stórar skrúfur með mörgum sigðlaga blöðum. Skrúf- urnar snúast hvor á móti annarri og vinna gegn myndun lofthvirfla sem spilla orkunýtni flugvéla með venju- legum flugskrúfum. Á stuttum flugleiðum, undir 3000 km, eru viftuþotur allt að 30% spar- neytnari en venjulegar skrúfuþotur. Á dögum orkukreppunnar unnu bandarískir framleiðendur að gerð svona flugvéla en misstu áhugann eft- ir 1990 þegar olíuverð varð viðráð- anlegra, enda fylgir sá leiði ókostur þessum ferðamáta að þoturnar eru svo háværar að þær eru vart nothæf- ar yfir þéttbýli. Innan sovéska flughersins var nokkur áhugi á viftuþotutækninni, sem þróuð var í Antonov-flugvéla- smiðjunni í Úkraínu. Eftir hrun Sov- étríkjanna drógu Rússar sig út úr samstarfinu en Úkraínumenn héldu sínu striki og sumarið 2006 var fjög- urra hreyfla viftuþota, Antonov An-70, fullbúin og hefur hlotið al- þjóðlegt flughæfnisvottorð. Sem fyrr segir hafa samt engir kaupendur gef- ið sig fram. Betri nýting á nútímatækni Mikilli orku er sóað og loft mengað á flugvöllum þar sem flugvélar standa á annatíma í lausagangi eða renna áfram í biðröð eftir því að komast á loft. Virgin-flugfélagið vinnur nú að tilraun þar sem flugvélarnar eru dregnar á brautarenda af rafknúðum dráttarvögnum og þotuhreyflarnir ekki ræstir fyrr en kemur að flugtaki. Samkvæmt útreikningum flugfélags- ins mætti með þessu spara allt að tvö tonn af eldsneyti í hverri ferð. Komast mætti hjá mun meiri spjöllum á lofthjúpnum en þessum ef flugvélar þyrftu ekki að tefjast í lofti á leiðarenda. Nú hringsóla þoturnar yfir aðkomuflugvelli í skipulegu kerfi „loftbrauta“ í mörgum hæðum þar til flugumferðarstjórar finna smugu til lendingar. Í staðinn er lagt til að allar flugvélar verið skráðar í sérlegt hug- búnaðarkerfi einum tveimur klukku- stundum fyrir áætlaða lendingu. Úr þessu kerfi færi síðan í flugstjórn- artölvu hverrar þotu forrituð áætlun um aðflugsbraut og aðflugshalla sem gerði flugvélinni kleift að lenda sem næst án tafar þegar þar að kæmi. Að mati Alþjóðsambands flugfélaga, IATA, mætti með slíku kerfi draga úr koltvíoxíðmengun í millilandaflugi um 12%. Betur má ef duga skal Það á við um flestar breytingar af mannavöldum sem stuðla að auknum hita í gufuhvolfinu, að ráðamenn reyna í lengstu lög að þræta fyrir til- vist vandans og bregðast síðan of seint og of illa við. Þar er hlutur flugsamgangna engin undantekning. Umræða um loft- mengun af flugvélum hefur legið í láginni, meðal annars af því að stjórn- völd á hverjum stað hafa ekki verið krafin um úrlausn, ólíkt þeim kröfum sem gerðar eru um mengun frá bif- reiðum. Því miður vantar mikið á það að framfarir í gerð flugvéla og nýtingu eldsneytis vegi á móti aukinni gróð- urhúsaverkun og annarri mengun frá sívaxandi flugumferð. Samt sjást ákveðin merki um bata, svo sem sam- starf evrópskra stjórnvalda, vísinda- manna og hagsmunaaðila í flugi sem hér hefur verið nefnt, enda er rót- tækra og bráðra breytinga þörf ef takast á að komast fyrir vanda loft- mengunar af loftferðum áður en það verður um seinan. Helsta heimild að þessum pistli er „Green sky thinking“ eftir Bennett Daviss. New Scientist 24. febr. 2007. rðum Höfundur er líffræðingur og fv. rekt- or Menntaskólans við Hamrahlíð. Í HNOTSKURN »Þotuhreyflar eru 40%sparneytnari en fyrir hálfri öld. »Aukning á flugi með far-þega og farm í heiminum nemur 5% á ári. »Dæmigerð farþegaþotabrennir meira eldsneyti á flugi aðra leið yfir Atlants- hafið en miðlungsheimilisbíll á 50 árum. »Talið er að framfarir getiekki orðið í hönnun nema með róttækum breytingum á gerð hreyfla og flugvéla. »Talið er að mengun í há-loftunum sé allt að fjórum sinnum skaðlegri en af sömu efnum á jörðu niðri. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 35 ALLT ANNAÐ LÍF - með vinstri grænum OKKAR FÓLK Í FRAMBOÐI TIL ALÞINGISKOSNINGA 2007 NORÐVESTURKJÖRDÆMI 1. Jón Bjarnason 2. Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir 3. Björg Gunnarsdóttir 4. Ásmundur Einar Daðason 5. Jenný Inga Eiðsdóttir 6. Hjördís Garðarsdóttir 7. Guðmundur Hólmar Jóns- son 8. Lárus Ástmar Hannesson 9. Jóna Benediktsdóttir 10. Rósmundur Númason 11. Rún Halldórsdóttir 12. Halldór Brynjúlfsson 13. Telma Magnúsdóttir14. Hákon Frosti Pálmason 15. Gunnar Njálsson 16. Harpa Kristinsdóttir 17. Lilja Rafney Magnúsdóttir 18. Jón Fanndal Þórðarson NORÐAUSTURKJÖRDÆMI 1. Steingrímur J. Sigfússon 2. Þuríður Backman 3. Björn Valur Gíslason 4. Dýrleif Skjóldal 5. Ingibjörg Hjartardóttir 6. Jóhanna Gísladóttir 7. Jón Kristófer Arnarson 8. Klara Sig- urðardóttir 9. Þórunn Alda Ólafsdóttir 10. Berglind Hauksdóttir 11. Ásmundur Páll Hjaltason 12. Marie Robin 13. Þorsteinn Bergsson 14. Finnur Dellsén 15. Ríkey Sigurbjörnsdóttir 16. Ásbjörn Björgvinsson 17. Jan Eric Jessen 18. Hlynur Hallsson 19. Guðmundur H. Sigurjónsson 20. Málmfríður Sigurðardóttir SUÐURKJÖRDÆMI 1. Atli Gíslason 2. Alma Lísa Jóhannsdóttir 3. Ragnheiður Eiríksdóttir 4. Sigþrúður Jónsdóttir 5. Hólmar Tryggvason 6. Jórunn Einarsdóttir 7. Kristín G. Gestsdóttir 8. Arndís Soffía Sigurðardóttir 9. Kári Kristjánsson 10. Guðrún Olga Clausen 11. Pétur Halldórsson 12. Marta Guðrún Jóhannesdóttir 13. Sigurlaug Gröndal 14. Aldís Gunnarsdóttir 15. Agnar Sigur- björnsson 16. Jón H. Ragnarsson 17. Hildur Hákonardóttir 18. Sævar Kristinn Jónsson 19. Guðrún Jónsdóttir 20. Karl Sigurbergsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.