Morgunblaðið - 06.05.2007, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
BIRKISKÓGAR geta nýst til að
verjast afleiðingum öskugosa, en
þeir þola slík gos vel, hemja
öskuna og koma í veg fyrir að
hún fjúki burt. Landgræðsla rík-
isins og Skógrækt ríkisins auk
fjölda annarra hafa sett í gang
verkefnið Hekluskóga meðal ann-
ars til að nýta þessa eiginleika
birkisins.
Á föstudag undirrituðu land-
búnaðarráðherra og fjár-
málaráðherra fyrir hönd ríkisins
og landgræðslustjóri og skóg-
ræktarstjóri samstarfssamning
um Hekluskóga og framlög rík-
isins til verkefnisins.
Samningurinn er til 10 ára og
framlag ríkisins um fimm hundr-
uð milljónir króna.
Sveinn Runólfsson land-
græðslustjóri segir samninginn
við ríkið afar mikilvægan, enda
tryggi hann fjárveitingu verkefn-
isins til næstu tíu ára. „Þá gerir
hann verkefnið fýsilegra fyrir
aðra hugsanlega styrktaraðila því
þeir sjá nú hvaða áherslu ríkið
hefur lagt á Hekluskóga.“
Bætir atvinnuástand
Sveinn segir reynsluna hafa
sýnt að skóglaust land þoli ösku-
gos afar illa en birkiskógur hemji
öskuna og hún hverfi í skóg-
arbotninn. „Það er í raun merki-
legt hve vel birkið stendur af sér
heitt öskufallið,“ segir hann.
Þarna sé því verið að reisa nátt-
úrlegan varnargarð gegn nátt-
úruhamförum.
Þá er skógræktinni á svæðinu
ætlað að bæta landgæði, binda
kolefni, stuðla að bættum
vatnsbúskap, auka verðmæti
lands og skapa nýja möguleika í
ferðamennsku á svæðinu. „Þetta
mun skipta máli fyrir atvinnumál
í héraðinu, enda mun nokkur
fjöldi fólks vinna að verkefninu,“
segir Sveinn.
Skóglendið vörn gegn eldgosi
Fjárveiting til
Hekluskóga
tryggð til 10 ára
Undirritun Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri, Árni Mathiesen, fjár-
málaráðherra, Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra og Jón Lofts-
son, skógræktarstjóri skrifa undir samstarfssamning um Hekluskóga.
EIGENDUR ellefu bifreiða vöknuðu upp við vondan
draum þegar þeir sóttu bíla sína að Kaplakrika í
Hafnarfirði í gærmorgun en þar hafði farið fram
skemmtun á föstudagskvöldið. Eftir að henni lauk
tók einhver eða einhverjir út reiði sína á bílunum,
rispaði þá og braut í þeim rúður. Að sögn lögreglu er
ekki vitað hver, eða hverjir, voru þar að verki en
vegfarendur sem urðu vitni að athæfinu, eru beðnir
um að hafa samband við lögregluna á höfuðborg-
arsvæðinu í síma 444-1100.
Ljósmynd/Sigurður Pálsson
Skemmdir unnar á ellefu bifreiðum
STÆKKUN fangelsisins á Kvía-
bryggju er í fullum gangi um þess-
ar mundir og ráðgert að henni
verði lokið í september nk. Þetta
kemur fram í nýjasta tölublaði vef-
rits dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
isins. Eftir endurbætur mun pláss-
um á Kvíabryggju fjölga um átta,
úr fjórtán í tuttugu og tvö.
Í vefritinu eru einnig tíundaðar
fleiri framkvæmdir sem eru í þann
mund að hefjast eða í undirbún-
ingi. Þannig er stutt í að fangelsið á
Akureyri verði endurbætt til muna
og ráðgert er að hönnunarvinnu
vegna heildaruppbyggingar fang-
elsisins á Litla-Hrauni verði lokið á
þessu ári.
Að endingu er starfandi vinnu-
hópur um þarfagreiningu vegna
nýs fangelsis á höfuðborgarsvæð-
inu. Haft er eftir Valtý Sigurðs-
syni, forstjóra fangelsismálastofn-
unar, að verið sé að kanna hvort
unnt sé að fá hentuga lóð sem rúm-
að geti starfsemina. Gert er ráð
fyrir að þarfagreiningu ljúki í
ágúst nk.
Fram-
kvæmdir
við fangelsi
Endurbætur fang-
elsa í fullum gangi
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
BIÐLISTAR eftir skurðaðgerð-
um á Landspítala-háskólasjúkra-
húsi voru álíka langir í mars síð-
astliðnum og á sama tíma í fyrra.
Jóhannes M. Gunnarsson lækn-
ingaforstjóri sagði að samkvæmt
starfssemiupplýsingum sjúkra-
hússins hafi alls 2.122 sjúklingar
verið á slíkum biðlistum í mars
síðastliðnum en það eru nýjustu
tölur. Í mars í fyrra voru alls
2.018 sjúklingar á sambærilegum
lista.
Í mars s.l. voru 1.354 sjúkling-
ar búnir að bíða lengur en í þrjá
mánuði. „Við höfum tilhneigingu
til að líta svo á að skemmri bið en
þrír mánuði sé ekki eiginlegur
biðlisti, heldur vinnulisti,“ sagði
Jóhannes.
Listanum er skipt eftir teg-
undum aðgerða og sérgreinum
sjúkrahússins. Jóhannes sagði að
víðast hvar væri listinn mjög
stuttur eða nánast enginn. „Það
eru of langir biðlistar og lengri
en við myndum vilja hafa þá. Þar
má nefna liðskiptaaðgerðir í
mjöðmum og hnjám. Á árunum
2005 og 2006 tókst að vinna þessa
biðlista verulega niður, en á síð-
ari hluta árs 2006 og í ár hefur
ekki tekist að halda alveg í horf-
inu og þessir listar hafa aðeins
lengst.“ Nú bíður 151 eftir gervi-
liðaaðgerð á hné og hafa 110
þeirra beðið lengur en í þrjá
mánuði. Eftir slíkri aðgerð á
mjöðm bíða 105 sjúklingar og eru
77 þeirra búnir að bíða í meira en
þrjá mánuði. Jóhannes sagði að
bið eftir gerviliðaaðgerðum væri
vissulega óþægilega löng, en hún
ætti sínar skýringar. Sjúklingar
hefðu frelsi til að velja sér lækni
og veldu þá að bíða heldur eftir
aðgerð hjá tilteknum lækni en að
fara til annars læknis sem gæti
gert aðgerðina fyrr.
Jóhannes sagði að hafa þyrfti í
huga mikla afkastagetu sumra
deilda þegar biðlistar væru skoð-
aðir. T.d. bíða um 400 eftir að-
gerðum á háls-, nef- og eyrna-
deild, en umsetningin er svo hröð
að 120 til 130 aðgerðir eru gerðar
á mánuði. Þar sé því ekki löng
bið þótt listinn sé langur.
Um 60 sjúklingar bíða nú eftir
hjartaaðgerð. Þó talan virðist
ekki ýkja há eru þetta sjúklingar
sem þola illa bið. „Í heildina tekið
er staðan þolanleg þó blikur séu
á lofti því skortur á starfsfólki er
mikill og vaxandi,“ sagði Jóhann-
es. Bið eftir hjartaþræðingum og
ýmsum hjartarannsóknum hefur
lengst, þrátt fyrir að afköst á því
sviði hafi stöðugt aukist. Jóhann-
es sagði eftirspurnina hafa vaxið
gríðarlega mikið og er verið að
skoða orsakir þess. Hann taldi
aukninguna mega að hluta skýra
með fjölgun segulómskoðana á
kransæðum. Sú rannsóknarað-
ferð er þægileg en háð takmörk-
unum. Oft kallar hún á nánari
skoðun með hjartaþræðingu.
Biðlistar eftir skurðaðgerð-
um á LSH svipaðir og í fyrra
Í HNOTSKURN
» Í mars síðastliðnumvoru 2.122 manns á bið-
listum vegna skurðaðgerða.
Þar af höfðu 1.354 sjúkling-
ar beðið lengur en í þrjá
mánuði.
» Víða eru biðlistar stuttireða engir en um 60 sjúk-
lingar bíða eftir hjartaað-
gerð. Þeir þola illa bið.
SVONEFNDIR stökkskór eru farnir að
ryðja sér til rúms hérlendis og hvetur
Fjóla Guðjónsdóttir hjá Forvarnahúsi Sjó-
vár til varúðar
við notkun
þeirra.
Greint var
frá þessu fyr-
irbæri, sem
Bandaríkja-
menn kalla
„skyrunner“, í
Morgunblaðinu
á föstudag.
Fjóla bendir
á að búnaður-
inn sé valinn
miðað við
þyngd notanda
og fjöðrunin sé
mismunandi.
Ástæða sé til að
hvetja til að-
gæslu og nota
ávallt örygg-
isbúnað eins og hjálm, olnbogahlífar, úln-
liðshlífar og hnéhlífar. „Ég myndi ekki
mæla með þessu fyrir of unga krakka,“
segir Fjóla og bendir á að níu til 10 ára
krakkar hafi varla burði til að valda svona
búnaði. Hún bendir jafnframt á að ein-
göngu eigi að nota stökkskó á hörðu og
flötu yfirborði og varast beri að nota
skóna á gangstétt eða í umferð þar sem
hætta sé á að rekast á til dæmis ljósa-
staura eða steina. Heldur ekki í lokuðu
rými þar sem lofthæð sé ekki nægileg eða
á svölum. Því síður á grasi eða á blautu
undirlagi.
Segir stökkskó
varasama
LAUSN hefur fundist á deilu fangavarða
og ríkisins og er þess vænst að þeir
fangaverðir sem sagt höfðu upp störfum
dragi uppsagnir sínar til baka þegar
skrifað hefur verið undir nýjan stofn-
anasamning.
Valtýr Sigurðsson fangelsismálastjóri
segir að við skoðun á kjaramálum fanga-
varða hafi komið í ljós að fangaverðir
hafi setið eftir miðað við aðrar stéttir,
einkum í ljósi þess að starf fangavarða
hefur verið að breytast undanfarin ár og
starfsskyldur þeirra sömuleiðis.
Samkomulagið felur gróflega í sér
10% launahækkun frá síðustu mán-
aðamótum og um 5% hækkun um næstu
áramót.
Fangaverðir og
ríki ná saman
LÖGREGLUNNI á Selfossi var um fimm-
leytið í gærmorgun tilkynnt um bifreið ut-
an vegar við Suðurlandsveg, nærri Kög-
unarhól. Þegar komið var að bílnum, sem
lá á hvolfi, var hann mannlaus en að sögn
lögreglu fengust fljótlega upplýsingar um
ökumanninn sem benda til að hann hafi
verið undir áhrifum áfengis þegar slysið
varð.
Ökumaður lét lögreglu vita af sér, þ.e.
að hann hafi ekki slasast í bílveltunni, fyr-
ir hádegi í gær en ekki fékkst uppgefið
hvar hann héldi sig. Taldi lögregla líkleg-
ast að maðurinn vildi láta renna vel af sér
áður en hann ræddi frekar við lögreglu,
og er það stutt framburði vitna. Að sögn
lögreglu er líklegt að maðurinn missi öku-
réttindi þrátt fyrir að erfitt verði að sanna
að hann hafi verið ölvaður undir stýri en
það verði dómari að skera úr um.
Velti bílnum og
hafði sig á brott
UPPI eru áform um að koma aftur fyrir
móttökustöð Sorpu í Grafarvogi, en borg-
arráð samþykkti á síðasta fundi sínum að
leggja til við sviðsstjóra framkvæmdasviðs
og skipulagsstjóra að taka upp viðræður
við ríkið um kaup eða langtímaleigu á
landspildu úr Keldnaholti í þeim tilgangi
að koma þar fyrir móttökustöð.
Væri stöðinni ætla að þjóna Mosfellsbæ,
Grafarholti og nyrðri hluta Grafarvogs og
kæmi hún í stað afgreiðslustöðvar Sorpu
við Bæjarflöt, sem lokað var í ársbyrjun
2005.
Afgreiðslustöð í
Keldnaholti