Morgunblaðið - 06.05.2007, Page 26

Morgunblaðið - 06.05.2007, Page 26
lífshlaup 26 SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ É g kynntist Theódóru Thoroddsen fyrst í ferðalagi sem um þrjá- tíu fróðleiksfúsir sögu- áhugamenn fóru í með Jóni Böðvarssyni. Ferðin var farin í þeim tilgangi að finna hina fornu vík- ingaborg Jómsborg. Ekki fannst nú staðsetning þeirrar ágætu borgar svo óyggjandi væri, en ferðalangarnir stofnuðu hins vegar Pálnatókavina- félagið sem starfaði af þrótti í fáein ár undir kjörorðinu: „Hafa skal það sem skemmtilegra reynist.“ Theódóra Thoroddsen er mikil áhugamanneskja um fornsögur og lætur ekkert tækifæri ónotað til að glöggva sig á staðháttum þeirra frægu sagna. Hún á ekki langt að sækja áhuga sinn á þjóðlegu efni, amma hennar og alnafna orti frægar þulur í þjóðkvæðastíl. Þær nöfnur voru raunar samtíða á heimili svo ár- um skipti á uppvaxtarárum yngri Theódóru sem ég sit hjá inni í stofu í Fossvogshverfinu. Þar hefur hún bú- ið síðan hún missti mann sinn, Gísla Halldórsson leikara, fyrir nokkrum árum. „Ég fæddist á Akureyri 1929,“ seg- ir Theódóra. „Faðir minn Sverrir Thoroddsen vann þar á skrifstofunni hjá Síld- areinkasölu ríkisins. Móðir mín, Helga Laufey Eyjólfsdóttir, var heimavinnandi húsmóðir eins og þá tíðkaðist. Ég var annað barn foreldra mína, eldri er Katrín, síðar fæddust Guðmundur Hrafn, Kristín Ólína og Helga Ragnhildur. Þegar við fluttum suður til Reykja- víkur var ég tveggja ára. Um sama leyti seldi amma mín og nafna Vonar- stræti 12 og foreldrar mínir og hún tóku saman á leigu fjögurra her- bergja íbúð í nýlegu húsi í Tjarnar- götu 43. Amma var í stærstu stofunni með allt sitt hafurtask, hin herbergin höfðum við. Ég man ekki eftir heimili okkar nema að amma hafi búið hjá okkur þangað til ég var komin undir fermingu, þá breyttust íbúðamálin og amma fór til Pálma Hannessonar og Ragnhildar föðursystur minnar. Um tíma bjuggum við á Egilsgöt- unni, þá hafði Katrín föðursystir mín íbúð á efri hæðinni en við á þeirri neðri. En þegar við fluttum vestur á Víðimel fór amma ekki með. Amma var ljómandi skemmtileg, létt og góð. Hún var löngu orðin ekkja, afi minn, Skúli Thoroddsen alþingismaður, dó 1915 en amma kom til foreldra minna 1932. Ættfólkið í kaffisopa hjá ömmu Það var fastur siður að klukkan ell- efu á sunnudagsmorgnum kom ætt- fólkið í kaffisopa til ömmu. Það voru aðallega synirnir, tengdadæturnar þurftu að hugsa um hádegismatinn. Þeir komu með börnin. Það var spjallað í klukkutíma, svo fóru allir heim til sín að borða. Mamma var auðvitað í eldhúsinu að elda meðan klúbburinn kom saman, þetta var kallaður klúbbur. Eftir að amma fór frá okkur var klúbburinn þar sem hún átti heima. Seinast bjó hún hjá Sigurði föðurbróður mínum, þá fóru allir þangað. Þá bjó hann í fjögurra íbúða húsi, Katrín og Kristín bjuggu þarna líka og foreldrar mínir. Þetta var fjölskylduhús. Eftir að amma féll frá var klúbb- urinn hjá Katrínu og Kristínu, að þeim gengnum var klúbburinn hjá pabba og mömmu. Þá var orðið fálið- að af eldri kynslóðinni en þá komu barnabörnin til sögunnar, mín börn og önnur til að hlusta og spjalla. Það var rætt um allt mögulegt – ekki síst pólitík. Ég man eftir að það var mikill hasar þegar Gúttóslag- urinn var. Lögreglan kom heim og var að leita að fána held ég, pabbi var þá búinn að fela hann inni hjá ömmu svo löggan fann hann ekki. Pabbi minn er einn af stofnendum Kommúnistaflokksins. Amma var róttæk jafnaðarmanneskja og allt þetta fólk mitt. Það var jafnan gest- kvæmt hjá ömmu en einkum er mér minnisstætt þegar Sigurður Nordal heimsótti hana, þá lágum við Katrín systir á hleri. Þau flissuðu og hlógu. Hann var að spyrja hana um álfa- og þjóðsögur. Amma ólst upp við mikinn áhuga á þjóðlegum fræðum. Hún var dóttir séra Guðmundar Einarssonar á Kvennabrekku, þess sem fóstraði Matthías Jochumsson um tíma.“ Hún fúllynd og hann fauti Var Matthías ekki frekar óánægð- ur með fóstrið á Kvennabrekku? „Jú, hann fékk ekki að læra eins og móðir hans Þóra hafði ætlast til, hún var systir séra Guðmundar. En amma Theó sagði þegar Sögukaflar af sjálfum mér komu út: „Ja, mér finnst nú ekkert skrítið þótt hann hafi verið óánægður á Kvennabrekku, hann Matthías, mamma var fúllynd en pabbi var fauti.“ Seinna fór ég að grúska og kynna mér aðstæður þess- arar langömmu minnar og langafa og komst að því að í júlímánuði 1854 misstu þessi hjón fjögur börn sín, eitt hafði dáið 1851 og einnig misstu þau þrjú börn 1857. Það var ekki nema von að illa lægi á konunni. Amma mín, Theódóra, fæddist ekki fyrr en 1863 og foreldrar hennar hafa þá ver- ið margmæddir af barnmissi, það hlýtur að vera hræðileg reynsla að missa svo mörg börn á svo skömmum tíma. Amma Theódóra fékk að fara í Kvennaskólann í Reykjavík. Hún bjó þá hjá Jóni Árnasyni þjóðsagnasafn- ara og frænku sinni Katrínu, konu hans, uppi á Laufásvegi. Hinn 15. mars hittust þar á heimilinu yfir baunasúpu afi og amma, Skúli Thor- oddsen, nýútskrifaður lögfræðingur frá Kaupmannahöfn, og Theódóra Guðmundsdóttir. Það var ást við fyrstu sýn. Þau giftust næsta haust á Bíldudal en upp frá því var bauna- dagurinn haldinn hátíðlegur á þeirra heimili. Í mínu minni var þessi dagur enn haldinn hátíðlegur þótt afi væri löngu dáinn og líka var jafnan salt- kjöt og baunir í matinn á þrett- ándanum, afmælisdegi afa Skúla. Þau hjónin eignuðust 13 börn og misstu einn ungan son, en tveir dóu sem ungir menn. Hjá ömmu og afa var vinnukonan Guðbjörg Jafetsdóttir – Bauja. Hún annaðist börnin á móti móður þeirra. Börnunum var skipt í mömmubörn og Baujubörn. Þegar nýtt barn kom þá fór það næstyngsta yfir til Bauju. Þegar Bauja var orðin gömul kona og amma komin til okkar þá tók Katrín föðursystir mín á leigu íbúð, nýkomin frá læknanámi, réð sér ráðskonu og tók Bauju til sín. Þar var hún þar til hún dó.“ Ég spyr Theódóru hvort hún muni eftir Bauju? „Það held ég nú,“ svarar hún og snarast fram. Kemur svo aftur með heklaða herðaslá með fögru hand- bragði. „Þetta heklaði Bauja, ég erfði þetta,“ segir hún. Krakkarnir hittust í Fjalakettinum Ég spyr hvort Theódóru hafi verið strítt á því að pabbi hennar væri kommúnisti? „Nei, því man ég ekki eftir. En við fórum við Katrín systir í Fjalaköttinn á sunnudögum, þar hittust krakkar róttækra foreldra. Björn Th. Björns- son lék leikrit man ég og ýmislegt annað var til skemmtunar. Þetta var kannski gert til mótvægis við sunnu- dagaskóla sem sum önnur börn fóru í.“ Theódóra kveður föður sinn ekki hafa verið efnaðan mann. „Hann vann í Útvegsbankanum á daginn en á kvöldin þýddi hann leik- rit fyrir Leikfélag Reykjavíkur og bækur fyrir bókaforlög. Pabbi þýddi lifandis býsn og vélritaði svo stensla til fjölritunar. Amma var ekki efnuð þegar ég man eftir. Hún hafði eytt fjármunum þeirra hjóna í að mennta börn þeirra. Hún mun hafa sagt: „Ég skal sjá til þess að það verði ekki grænn eyrir eftir þegar ég dey.“ Henni tókst þó ekki að klára allt – það var eftir jörðin Dynjandi í Arnarfirði. Ég var farin að búa þegar pabbi og systkini hans eignuðust pening, það var rétt fyrir jólin. Pabbi gaf mér og systkinum mínum af sínum aurum, það var mik- ill fengur í þeim aurum rétt fyrir jól- in. Þá hafði Sigurður föðurbróðir selt Dynjanda og fengið gott verð fyrir. Öll börn Theódóru og Skúla fóru í langskólanám nema pabbi. Hann var sjúklingur sem unglingur og lítið í skóla. Hann var með það sem þá var kallað: „bólgna kirtla bak við lung- un“, líklega hefur hann verið berkla- veikur. En hann var sendur út í Viðey til Eggerts Briem og hann sagði allt- af að hann hefði fengið heilsuna úti í Viðey. Hann var þar með Muggi frænda sínum, sem líka var veikur. Þeir hlupu og hlupu um eyjuna til að reyna að fá styrk. Pabba batnaði en Muggur dó ungur. Pabbi var bara tvo mánuði í menntaskóla, þá varð hann að hætta vegna heilsunnar, en hann var eigi að síður mikill málamaður, lærði meira að segja esperantó. Og áður en yfir lauk sá hann um erlend viðskipti í Út- vegsbankanum – þýddi bréf úr ítölsku, spænsku og fleiri málum. Mamma átti þrjú systkini og eina fóstursystur sem var dóttir móð- urbróður míns, sem lést ungur. For- eldrar hennar hétu Eyjólfur Ófeigs- son og Pálína Jónsdóttir, þau bjuggu á Grettisgötunni. Ég fór oft til ömmu Pá. Fór ein frá Tjarnargötunni og upp Skothúsveginn. Einhver sá eitt sinn á eftir mér á leið til ömmu. Þá hafði komið hundur og klaufin á káp- unni minni þeyttist upp, ég flýtti mér svo frá hundinum. Það var mikið hlegið að þessu atviki. Eyjólfur afi var um tíma útgerðarmaður en varð gjaldþrota. Hann var af Fjallsætt, náskyldur Tryggva Ófeigssyni. Mikill samgangur Amma var aftur náskyld Jóni í Vaðnesi sem var með búð á Klapp- arstígnum, þar sem nú er gleðihús. Allt mitt fólk var því í Reykjavík og það var mikill samgangur við það allt. Ég man ekki eftir neinni fýlu eða öðr- um leiðindum í fjölskyldunni. Ég fór í Miðbæjarskólann og fannst svo gaman þar að ég lagði á mig að ganga yfir Skólavörðuholtið til að geta verið með krökkunum eftir að við fluttum í Austurbæinn. Besta vinkona mín var Jóna Bjart- marsdóttir, hún hafði átt heima í næsta húsi við okkur í Tjarnargöt- unni. En hún varð ekki langlíf. Leiðir okkar höfðu þó skilið áður en hún dó. Það gerðist þegar ég fór í Mennta- skólann í Reykjavík. Katrín systir fór í Ágústarskóla og þaðan í MR en þeg- ar kom að mér þá tóku nokkrir kenn- arar sig til og kenndu við barnaskól- ann þannig að við gætum tekið beint próf upp í MR. Um vorið fórum við öll Kann ekki að láta mér leiðast Morgunblaðið/ÞÖK Heima Theódóra Thoroddsen á heimili sínu í Fossvogi, hún á ýmsa gamla hluti frá ömmu sinni og foreldrum. Ferðalög og félagslíf í bland við mikið og gott fjölskyldulíf hefur verið lífsinnihald Theódóru Thoroddsen. Guðrún Guðlaugsdóttir ræddi við hana m.a. um ömmu hennar og nöfnu, um æsku- og unglingsár og samfylgdina við eigin- manninn, Gísla Halldórs- son, sem hún kynntist 16 ára og var gift þar til hann dó 1998. Hjónin Gísli Halldórsson leikari og kona hans Theódóra Thoroddsen höfðu bæði yndi af ferðalögum og fóru gjarn- an í fjallaferðir í frístundum sínum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.