Morgunblaðið - 06.05.2007, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 27
í inntökupróf og við vorum svo mörg
sem glönsuðum inn að það var ótrú-
legt. Eftir þetta lögðust af námskeið
sem Einar Magnússon rektor hafði
verið með fyrir þá sem ætluðu að
þreyta inntökupróf í MR. Hann sagði
stundum við okkur: „Það er ekki von
að þið vitið þetta – barnaskólafólk!“
Ég fór í fyrsta bekk en hætti námi í
fjórða bekk. Ég féll, hafði ekki tíma í
þetta. Ég var ekki á skemmtistöðum
og drakk ekki vín en ég var mikið í
ferðalögum með Æskulýðsfylking-
unni. Ég tók ríkan þátt í starfi henn-
ar. Við fórum í allt að viku ferðir
norður í land og hvaðeina. Pabbi og
Bolli föðurbróðir minn suðuðu í mér
að halda áfram námi, sögðu að ég
myndi sjá eftir því alla ævi að hætta.
En ég hef ekki séð eftir því að hætta
eina mínútu. Þótt ég hafi hætt í fjórða
bekk er ég alltaf boðin með þegar
eitthvað er um að vera og eins er ég í
„saumaklúbb“ með bekkjarsystrum
mínum. Ég er því í bekknum þótt ég
hafi aldrei orðið stúdent. Önnur
stelpa sem hætti um svipað leyti og
ég var líka tekin með. Þetta er raunar
brautryðjendabekkur hvað kvenfólk-
ið snertir. Í honum var Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrrverandi forseti Ís-
lands, fyrsti kvenprófessorinn okkar,
Margrét Guðnadóttir, alþingiskonan
Ragnhildur Helgadóttir og svo á
bekkurinn fyrsta kvenrektor Há-
skóla Íslands; Sólveig Pálmadóttir,
skólasystir okkar, er móðir Kristínar
Ingólfsdóttur sem við erum mjög
stoltar af.
Þetta var raunar kall tímans sem
þessar konur og aðrar voru að svara.
Ég fór að starfa með Æskulýðs-
fylkingunni um sama leyti og Katrín
frænka fór á þing. Þá hittumst við í
Fylkingunni á Þórsgötunni þar sem
Sósíalistaflokkurinn hafði bækistöðv-
ar.
Ég fékk raunar snemma ferða-
bakteríuna, pabbi eignaðist Willys-
jeppa og eftir það fór öll fjölskyldan í
ferðalög. Þá var amma flutt frá okk-
ur. Ég fór oft að finna hana eftir að
hún flutti, það var svo gaman að hitta
hana. Ég var fyrsta alnafna hennar.
Hún var raunar kölluð Dóra í dag-
legu tali og Guðmundur föðurbróðir
skírði sína dóttur Dóru. En ég var
skírð Theódóra og var lengi eina al-
nafna hennar. Svo eignaðist Skúli
augnlæknir Theódóru Thoroddsen.
Þegar mér fæddist dóttir 1. júlí, á af-
mælisdegi ömmu, þá þurfti ekki að
hugsa meira um nafnið, hún var skírð
Theódóra. Ég hef alltaf verið kölluð
Dóda. Amma Theódóra var alltaf
kölluð amma Theó, þess vegna kallaði
Skúli sína dóttur Theó og ég kalla
mín dóttur Tiddu.“
En hvað skyldi Theódóra okkar
hafa gert á yngri árum annað en
ferðast með Æskulýðsfylkingunni?
„Ég fór að vinna í Búnaðarbank-
anum á sumrin með námi. Eftir að ég
hætti í skóla fékk ég vinnu í Útvegs-
bankanum og þar vann ég þar til ég
átti hana Tiddu, þá þótti það ekki við-
eigandi að vera að vinna frá litlu
barni.
Kynntist Gísla í Fylkingunni
Manninum mínum, Gísla Halldórs-
syni, kynntist ég í Fylkingunni. For-
eldrar hans, Halldór Gíslason og Val-
gerður Guðbjörg Jóhanna Jónsdóttir,
voru bændafólk, Gísli fæddist vestur í
Tálknafirði. Svo fluttist fjölskyldan
að Skeggjastöðum í Mosfellssveit
1931, þá var Gísli þriggja ára. Þegar
þau höfðu búið þar í tvo mánuði var
Halldór að fara með kvígu á bát við
þriðja mann út í Þerney. Bátnum
hvolfdi á Þerneyjarsundi og Halldór
og annar maður drukknuðu en sá
þriðji hélt í halann á kvígunni og
bjargaðist í land. Tengdamóðir mín
hraktist af bænum með börn sín
fimm, fjórar dætur og Gísla. Þær
unnu allar eins og þær gátu, dæt-
urnar í búðum og verksmiðjum en
móðirin skúraði og hafði drenginn
með sér. Hún skúraði allt Landsíma-
húsið upp úr og niður úr. Fjölskyldan
flutti í fyrstu úr einum kjallara í ann-
an en svo fékk tengdamamma ágæta
íbúð á Grundarstíg og þá fór hún að
taka kostgangara auk skúringanna.
Hún var mjög dugleg kona. Ólafur
Jóhannesson, síðar forsætisráðherra,
var kostgangari hjá Valgerði og
skrifaði mjög fallega um hana látna.
Mér fannst Gísli eldgamall þegar
ég kynntist honum, ég var 16 ára og
hann 19 ára. Það munaði miklu þá.
En okkur samdi vel.
Gísli vann mikið, hann var m.a.
auglýsingastjóri á Þjóðviljanum og
var seigur að fá auglýsingar. Svo var
hann blaðamaður. Hann var að reyna
að lesa utanskóla en hafði ekki ráð á
því. Eftir að við fórum að vera saman
dreif hann sig í meirapróf og gerðist
leigubílstjóri. Mágur hans og hann
keyptu saman bíl til að keyra.
Við byrjuðum búskapinn í einu
herbergi og aðgangi að eldhúsi í
Barmahlíð, þetta var 1949. Þetta var
það venjulega fyrir ungt fólk þá, að
leigja eitt herbergi og aðgang að eld-
húsi. Við lentum hjá indælu fólki.
Maðurinn var sjómaður en konan var
heima með tvo stráka. Við höfðum
saman geymslu og svo hafði ég vissa
plötu á eldavélinni og tiltekna skápa í
eldhúsinu. Við skemmtum okkur vel
ég og Munda, það var annálað þegar
við stóðum saman við stofugluggann
og skellihlógum, fólk hélt að við vær-
um að hlæja að því en við vorum þá
bara að segja hvor annarri brandara.
Við vorum góðir félagar.
Smám saman fór ég út á vinnu-
markaðinn aftur, hljóp í skarðið þeg-
ar vantaði í bankanum og tók þátt í
áramótauppgjöri.
Svo kom að því að við Gísli fórum
að byggja. Við tókum raunar við
grunni uppi í Mosgerði sem kunn-
ingjafólk okkar hafði byrjað á, en það
skildi að skiptum og við héldum
áfram með grunninn. Gísli var laginn
og steypti upp kjallara undir húsið að
hálfu en hlóð það sjálft úr sandsteini.
Pabbi átti rétt á lífeyrissjóðsláni sem
hann lét okkur eftir og svo fengum
við þetta venjulega smáíbúðalán. Við
vorum óskaplega blönk, en við vorum
vön því, þekktum ekki annað.
Við fluttum inn í eina stofu, klósett-
ið var komið og vaskur var þar. Ég
eldaði þar inni og svo vorum við fjög-
ur í barnaherberginu. Þá var Halldór
sonur okkar fæddur. Síðar eign-
uðumst við þriðja barnið, soninn
Sverri. Tvö ár voru á milli Theódóru
og Halldórs og svo liðu fimm ár, þá
kom Sverrir. En ég vann alltaf með,
Systur Þær Katrín og Theódóra
Thoroddsen (sú minni), staddar á
horni Suðurgötu og Hringbrautar.
Pabbi og Bolli föðurbróðir
minn suðuðu í mér að
halda áfram námi, sögðu
að ég myndi sjá eftir því
alla ævi að hætta. En ég
hef ekki séð eftir því að
hætta eina mínútu.
Lagadeild
LL.M. í auðlindarétti og
alþjóðlegum umhverfisrétti
Spennandi kostur fyrir lögfræðinga Umsóknarfrestur
er til 22. maí
Alþjóðlegt framhaldsnám í lögfræði á ensku
Kynningarfundur
í Lögbergi,
miðvikudaginn
9. maí
kl. 17 í stofu 101
www.lagadeild.hi.is