Morgunblaðið - 06.05.2007, Síða 28
lífshlaup
28 SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
kom börnunum á dagheimili í Steina-
hlíð. Við höfðum bíl, en þegar við vor-
um í Mosgerði þá gekk ég yfirleitt
með þau yfir túnin. Sumir sem voru
með bíl gáfu okkur líka far. Það mun-
aði miklu að bankinn var ekki opn-
aður fyrr en klukkan tíu þá.
Það liðu mörg ár þar til húsið í
Mosgerði var fullbúið. En við bjugg-
um í því yfir þrjátíu ár. Risið var inn-
réttað og leigt út og þannig gekk
þetta hjá okkur.
Gísli var framkvæmdamaður
Jafnframt öllu þessu hafði Gísli
farið í leiklistarskóla hjá Lárusi Páls-
syni og var löngu farinn að leika með-
fram öðrum störfum.
Við eignðumst sumarhús á Neista-
stöðum. Það ævintýri hófst með því
að Gísli hirti kofa á Grímsstaðaholti,
Kvöldroðann. Á Neistastöðum vor-
um við með sumarbústað lengi. Svo
var það eitt sinn að Gísli fór austur
með leikurunum Karli Guðmunds-
syni og Sigurði Karlssyni. Þá sá hann
að Hellisheiðin var orðin svo góð yf-
irferðar. „Strákar, við skulum skutl-
ast aðeins heim til sveitarstjórans í
Hveragerði,“ sagði Gísli. Það endaði
með því að hann sótti um lóð og ég
fékk sjokk þegar allt í einu kom bréf
um að honum hefði verið veitt lóðin.
Gísli byggði nokkuð stórt hús í
Hveragerði með fjórum svefn-
herbergjum. Eyvindur Erlendsson
leikstjóri hjálpaði honum, hann er
smiður.
Við vorum heilmikið í Hveró, oft
um helgar og tvo vetur leigðum við
húsið fólki í garðyrkjuskólanum.
Gísli þurfti alltaf að hafa mikið um-
leikis. Þegar húsið í Hveragerði var
komið upp leið nokkur tími þar til við
fengum lóð og hann fór að byggja
timburhús uppi í Kaldárseli. Halldór
sonur okkur er arkitekt og hann
teiknaði það hús. Þegar það hús var
risið seldum við Sverri og Maju, syni
okkar og tengdadóttur, húsið í Mos-
gerði. Þar bjuggu þau í ein fimmtán
ár.
Við fluttum upp í Breiðholt 1985.
Þar bjuggum við, blússuðum svo
austur í Hveró en meðfram þessu
fengum við land austur í Kjós, þar
kom svo kofi sem Gísli reisti. Ég
strengdi þess heit að í það land, sem
var hálfur hektari, skyldi ekki koma
planta aðkeypt, og ég efndi það. Ég
tók fræ af birki og víði úr garðinum í
Mosgerði, sáði og kom þeim plöntum
til og gróðursetti þær sem limgerði í
landinu okkar í Kjós. Ég hef alltaf
haft gaman af garðvinnu og við Gísli
skipulögðum og unnum garðinn okk-
ar sjálf í Mosgerðinu.
Gísli var framkvæmdamaður eins
og fram kemur í þessari frásögn,
hann varð alltaf að vera eitthvað að
vesenast. Þannig eru synir okkar
líka. Þegar Gísli dó 1998 þá sá ég í
hendi mér að ein kona hefði lítið að
gera með einbýlishús í Breiðholti,
annað hús í Hveragerði og sumarhús
í Kjós. Ég seldi því þessar eignir og
lét börnin mín hafa væna summu
hvert en keypti mér sjálf íbúð hér í
Fossvoginum. Börnin mín keyptu sér
svo saman gamalt hús í Frakklandi, í
frönsku Ölpunum, og eru synirnir
svo sífellt að bæta það og laga og
finnst ekki verra að vera saman í því
öllu saman.
Fyrsta hálfa árið eftir að ég missti
Gísla var ég á loftinu hjá Sverri syni
mínum, meðan ég beið eftir að þessi
íbúð losnaði. Eftir að ég varð ein hef
ég tekið mikinn þátt í félagslífi.
Við Gísli ferðuðumst alla tíð mikið,
það var okkar tómstundagaman. Oft
settumst við með krakkana upp í bíl
og vorum hreint ekkert búin að
ákveða hvert leiðin ætti að liggja. En
það skýrðist þegar við vorum lögð af
stað. Við ferðuðumst bæði á fjöllum
og eins víða um landið og alltaf var
jafn gaman.
Við fórum líka til útlanda. En þeg-
ar ég fer utan fer ég ekki til að fara í
búðir eða rúllustiga, ég geng um og
skoða fólkið og fer á söfn.
Núna fer ég í öll þau ferðalög sem
ég get og tek þátt í ýmsu félagsstarfi,
syng með Söngdísum í Hæðargarði,
er í bókmenntaklúbb, sæki fundi með
bekknum, er í saumaklúbb með kon-
um úr bankanum og er í forn-
sagnaleshring. Lengi var ég í göngu-
klúbb, Gísli var líka með í honum þar
til hann lést.“
Fór ekki á frumsýningar
Ég spyr Theódóru hvort henni hafi
aldrei leiðst þegar Gísli var að leika á
kvöldin?
„Nei, það var ekkert svoleiðis. Ég
hugsa hins vegar að ef ég hefði verið
heimahúsmóðir eingöngu þá hefði
þetta verið leiðinlegra. Ég var í starfi
og hafði nóg að gera.
Við áttum sameiginlega vini meðal
leikaranna, við vorum mikið með Sig-
ríði Hagalín og Guðmundi Pálssyni,
Helgu Valtýsdóttur og Birni Thors
og Helgu Bachmann og Helga Skúla-
syni. Það var ekki mikið um vín í
þessum selskap. Gummi og Gísli
skipulögðu leikferðirnar, ég fór
sjaldnast með nema fáeina daga, en
það var fróðlegt. Það var ansi gaman
þegar þær voru með Áróra og Nína
Sveins, þær voru svo skemmtilegar.
Við Gísli fórum stundum út að
borða á mánudagskvöldum, það var
oft ekki um önnur kvöld að ræða því
hann lék á tímabili mjög mikið. Svo
dró úr því af því að hann þoldi illa
sviðsljósin.“
Fórstu á frumsýningar?
„Nei, aldrei, ég fór bara á æfing-
ar,“ svarar Theódóra að bragði.
„Ég þekkti ekki annað en vera gift
listamanni og ég man ekki eftir að
það væru leiðindi í mér þótt hann
væri mikið frá. Það var svo skemmti-
legt fólk sem bjó uppi á loftinu í Mos-
gerðinu. Svo kann ég ekki að láta
mér leiðast.“
Mér heyrist Theódóra hafa jafn-
aðargeð, skyldi það vera ættarfylgja?
„Ég held að amma Theódóra hafi
haft jafnaðargeð, sjálf hef ég verið
balanseruð eða þannig sé ég sjálfa
mig. Ég reyndi stundum að fara í
fýlu þegar ég var krakki en gleymdi
mér svo og var áður en ég vissi farin
að tala við þann sem ég var í fýlu við.
Þá varð bara að hafa það.“
Afinn Skúli Thoroddsen, alþing-
ismaður og ritstjóri Þjóðviljans og
fyrrum sýslumaður á Ísafirði.
Faðirinn Sverrir Thoroddsen starf-
aði lengst af í Útvegsbankanum og
var mikilvirkur þýðandi.
Amma Frú Theódóra Guðmunds-
dóttir, síðar Thoroddsen, ung að
árum.
Móðirin Helga Laufey Eyjólfs-
dóttir, móðir Theódóru Thorodd-
sen, ung að árum.
Systkinin Börn Theódóru og
Skúla Thoroddsen. Fremri röð f.v.
Sverrir, Sigurður, Guðmundur og
Bolli.
Aftari röð f,v, Ragnhildur, Unnur,
Katrín, Kristín og María. Þorvaldur
var í Ameríku er myndin var tekin.
Eitt ungbarn misstu hjónin og tvö
barna þeirra dóu á ungdómsárum.
Tjaldferð Þarna er Theódóra Thor-
oddsen í tjaldferðalagi með Æsku-
lýðsfylkingunni.
gudrung@mbl.is
www.hi.isÍSL
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
S
K
3
73
36
0
5/
07
INNTÖKUPRÓF Í LÆKNADEILD HÍ
SJÚKRAÞJÁLFUNARSKOR OG LÆKNISFRÆÐISKOR
Inntökupróf í læknadeild Háskóla Íslands fyrir nám í læknisfræði og sjúkraþjálfun
verður haldið í Reykjavík miðvikudaginn 13. og fimmtudaginn 14. júní 2007.
Nánari upplýsingar verða sendar próftakendum eftir að skráningu er lokið.
Þátttakendur þurfa að skrá sig sérstaklega til inntökuprófsins fyrir 20. maí 2007.
Sjá eyðublað á heimasíðu læknadeildar www.laeknadeild.hi.is Skráning getur
farið fram enda þótt nemandi hafi þá ekki lokið stúdentsprófi, en þegar inntöku-
prófið er þreytt skal nemandinn hafa lokið stúdentsprófi og skilað inn stað-
festingu því til sönnunar. Umsókn um skrásetningu ásamt staðfestu afriti af
stúdentsprófsskírteini eða staðfestingu um að stúdentsprófi verði lokið, skal skilað
eða senda í pósti til skrifstofu læknadeildar, Vatnsmýrarvegi 16, 101 Reykjavík.
LÆKNADEILD
LÆKNISFRÆÐI
SJÚKRAÞJÁLFUN
Nánari upplýsingar um prófið og dæmi um próf-
spurningar má finna á heimasíðu læknadeildar
Háskóla Íslands www.laeknadeild.hi.is
Inntökuprófið er eitt próf sem tekur tvo
daga, með þremur tveggja tíma próflotum
hvorn daginn, eða 12 klst. alls. Niðurstaða
prófsins birtist í einni einkunn sem verður
reiknuð með tveimur aukastöfum. Reiknað
er með að niðurstaða liggi fyrir ekki síðar en
um miðjan júlí.
Árið 2007 fá 48 nemendur í læknisfræði og 25 í
sjúkraþjálfun rétt til náms í læknadeild Háskóla
Íslands og skulu þeir hafa skráð sig hjá Nemenda-
skrá fyrir 1. ágúst. Þeir sem ekki öðlast rétt til náms
í læknadeild, eiga þess kost að skrá sig, innan
sömu tímamarka, í aðrar deildir gegn greiðslu
skrásetningargjalds skv. reglum Háskóla Íslands.