Morgunblaðið - 06.05.2007, Qupperneq 32
menntamál
32 SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
„GRUNNSTEF VG þegar kemur að mennta-
málum eru fjölbreytni og jöfnuður og við vilj-
um að þetta tvennt fari sem best saman í skóla-
kerfinu,“ segir Katrín Jakobsdóttir,
frambjóðandi Vinstri hreyfingarinnar-græns
framboðs, og segir að í þessu felist áhersla á
gjaldfrjálsa skóla frá leikskólastiginu og upp til
háskóla.
Katrín segir menntakerfið hafa verið fórn-
arlamb of mikillar miðstýringar undanfarin ár
og áratugi, t.d. með niðurnjörvaðri aðal-
námskrá og ofuráherslu á samræmd próf.
„Fyrir vikið er skólastarf bara metið út frá
prófum en ekki út frá öðru
sem er gert. Námsmat
verður að vera fjölbreytt,“
segir Katrín og vill að sam-
ræmd próf í núverandi
mynd verði aflögð og að að-
alnámskrá grunnskóla verði
skipt út. „Við í VG höfum
talað um að í hennar stað
komi réttindaskrá barna
sem kveði á um hvað börn
eiga rétt á að læra,“ segir
Katrín og telur jafnframt jákvætt að nem-
endur í elstu bekkjum grunnskóla geti tekið
áfanga á framhaldsskólastigi sem og að nem-
endur framhaldsskóla fái bókakaupastyrki.
Engin skólagjöld
Aðspurð um hvort opinbert fé eigi að fylgja
barni óháð vali á skóla segir Katrín að nú þegar
sé fjárframlag með nemendum ekki það sama
alls staðar enda kosti meira að reka 50 manna
skóla úti í sveit en 500 manna skóla á höf-
uðborgarsvæðinu. „Það að einhver tékki fylgi
hverju barni er eiginlega ekki raunhæft.“
Katrín segir VG standa fast á því að opinber-
ir háskólar eigi ekki að taka skólagjöld og þá
heldur ekki þegar kemur að framhaldsnámi.
„Jafnrétti til náms á við í þessu samhengi sem
öðru. Framhaldsnám er nýr vaxtarbroddur
sem bætir um leið grunnám í háskólum. Það er
hætt við að framhaldsnám nái ekki að þróast ef
fólk þarf að greiða fyrir það á þessu stigi með-
an það getur jafnvel fengið greitt fyrir að læra
í útlöndum,“ segir Katrín en hún er jafnframt
þeirrar skoðunar að mikilvægt sé að hafa há-
skólastarfsemi í öllum landshlutum, hvort sem
um er að ræða útibú frá öðrum skólum eða
sjálfstæðar einingar.
Fórnarlamb of mikillar miðstýringar
Katrín Jak-
obsdóttir
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN leggur áherslu
á aukið námsframboð á öllum skólastigum og
frelsi þegar kemur að rekstrarformi og fjár-
mögnun, segir Sigurður Kári Kristjánsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins.
Sigurður Kári segir að halda þurfi áfram að
styrkja og efla menntakerfið eins og Sjálfstæð-
isflokkurinn hafi gert frá árinu 1991. Í því felist
að standa þétt við bakið á ríkisreknum skólum
en einnig einkaskólum. „Við viljum t.d. að op-
inbert fé fylgi barni burtséð frá vali á grunn-
skóla. Það sem þarna býr að baki er auðvitað að
nemendum sé ekki mismunað eftir því í hvaða
skóla þeir fara,“ segir Sigurður Kári og leggur
jafnframt áherslu á samfellu í námi, allt frá leik-
skóla til háskóla. Þannig sé mikil framför að
nemendur í eldri bekkjum grunnskóla geti nú
tekið áfanga á framhaldsskólastigi.
Þarf að efla starfs- og iðnnám
Sigurður Kári segir mikilvægt að efla sjálf-
stæði grunnskóla og skólastjórnenda og að sama
skapi þurfi að efla kennaramenntun. Hluti af því
hafi verið að sameina Kennaraháskóla Íslands
og Háskóla Íslands. Þá þurfi að efla starfs- og
iðnnám fyrir nemendur á framhaldsskólastigi
þannig að það sé jafnsett námi til stúdentsprófs.
„97% af þeim sem útskrifast úr grunnskóla fara í
framhaldsskóla og flestir í
bóknám, burtséð frá því hvort
þeir eiga heima þar eða ekki,“
segir Sigurður Kári og leggur
einnig áherslu á aukið frelsi
framhaldsskóla til að hafa
fjölbreytt námsframboð og
bjóða upp sveigjanlegan
námstíma. „Í stúdentsprófinu
gæti t.d. falist ákveðinn kjarni
í stærðfræði, íslensku og
ensku en síðan geti nemendur
valið sínar námsleiðir.“
Sigurður Kári segir byltingu hafa orðið í há-
skólanámi á landinu. „Háskólar eru orðnir fleiri,
námsframboð hefur aukist og nemendum fjölg-
að úr 7.500 í 17.000 á sl. tólf árum,“ segir Sig-
urður Kári og útilokar alls ekki skólagjöld í
framhaldsnámi við háskóla en þó með því skil-
yrði að þau séu lánshæf. „Ef HÍ vill verða einn af
hundrað bestu skólum heims, sem við styðjum
hann eindregið í, þarf hann að vera jafnsettur
öðrum háskólum á öllum sviðum, líka hvað varð-
ar fjármögnun. Til þess koma aukin framlög frá
ríkinu, eins og samið hefur verið um, en það þarf
líka að skoða hvort ekki sé ástæða til að nem-
endur taki meiri þátt í fjármögnun á sínu eigin
námi,“ segir Sigurður Kári.
Aukið framboð og meira frelsi
Sigurður Kári
Kristjánsson
„VIÐ VILJUM mennt-
un í þeim gæðaflokki
að Ísland sé sam-
keppnishæft á al-
þjóðavísu,“ segir Pál-
ína Vagnsdóttir,
frambjóðandi Íslands-
hreyfingarinnar, og
bætir við að Íslands-
hreyfingin styðji þær
áherslur sem Stúd-
entaráð Háskóla Íslands hefur sett fram
í menntamálum sem og markmið HÍ að
verða einn af hundrað bestu háskólum í
heimi.
Pálína segir Íslandshreyfinguna vilja
efla alhliða nám og koma í veg fyrir að
áherslan sé eingöngu á bóknám heldur
einnig á iðngreinar og verkmenntun. Að
sama skapi þurfi einstaklingsmiðað nám
að vera í boði. „Við viljum að grunn-
skólar séu alveg lausir við gjöld en að
einkaskólar fái styrki til að reka sig
þannig að þeir séu samkeppnishæfir við
aðra skóla. Þeir megi hins vegar ekki
taka skólagjöld því þá er ekki jafnræði
milli þeirra sem sækja námið,“ segir
Pálína og bætir við að fólki eigi einnig
að standa til boða frítt framhalds-
skólanám jafnt sem grunnám við há-
skóla. Þá styður Íslandshreyfingin að
leikskólar verði gerðir gjaldfrjálsir.
Þarf að búa betur að skólum
Pálína leggur ríka áherslu á að að-
búnaður og kjör kennara séu bætt. „Það
er grundvallaratriði til að halda góðum
kennurum í faginu. Þetta er ótrúlega
ósérhlífin stétt,“ segir Pálína og vill
meiri áherslu á list- og verkgreinar í
grunnskólum, jafnt sem forvarnir og að
gripið sé inn í fari einhver út af braut-
inni. „Það þarf að bæta tekjuskiptingu
milli ríkis og sveitarfélaga. Skólar verða
að geta haldið úti góðu og metn-
aðarfullu starfi og það gengur ekki ef
ekkert fé er til að reka þá.“
Pálína segir Íslandshreyfinguna
styðja það að nemendur útskrifist yngri
úr framhaldsskólanámi og geti komið
fyrr út vinnumarkaðinn. Nám á fram-
haldsskólastigi sé hins vegar of dýrt fyr-
ir sumar fjölskyldur, t.d. vegna bóka-
kostnaðar. „Þetta á að vera innifalið í
náminu svo að allir hafi jöfn tækifæri,“
segir Pálína.
Ísland sé samkeppnishæft
Pálína Vagnsdóttir