Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 39
„Djarfir leikararnir sýna snilldarleik og ná að galdra fram þvílíka orku á
sviðinu að áhorfendur sitja agndofa eftir.“ - Tageblatt, March Weinachter, 2007
Snillingar frá
Bretlandi og
Balkanskaga
Hinn margverðlaunaði leikhópur Cheek by Jowl, sem talinn er einn af
tíu bestu leikhópum veraldar skv. Time Magazine, sýnir Cymbeline eftir
Shakespeare á Listahátíð. Leikhópurinn hefur hlotið margvísleg verðlaun,
þar á meðal fern Olivier verðlaun, Golden Mask Award, Obie Award,
New York Drama Desk Award, Paris Drama Critics Award og Time Out
Award. Sýningin er í samstarfi við Þjóðleikhúsið.
Miðasalan fer fram áwww.listahatid.is og í síma 552 8588, alla virka daga
frá kl. 10 til 16. Miðasala á tónleika Goran Bregovic er einnig á www.midi.is.
Miðasala á Cymbeline 15. og 16. maí er hjá Listahátíð en 17. og 18. maí hjá
Þjóðleikhúsinu á www.leikhusid.is
Miðasala
„Strengjasveit, karlakór, harmónikkuleikarar, búlgarskar söngkonur,
rafmagnsgítarar og heil lúðrasveit! Allt þetta saman og áhorfendur
ærast af gleði.“ - New York Times, 2006
„OLÉ,GORAN!!!Næstumþrjárklukkustundirafheitumtilfinningum,
ógnarkrafti,litadýrð,ástríðu,framandleikaogtöfrum.“ - EL Pais
Goðsögnin Goran Bregovic ásamt 40 manna stórhljómsveit og kór
leikur ómótstæðilega tónlist frá Balkanskaga. Goran Bregovic samdi
meðal annars tónlistina við kvikmyndirnar Underground og Arizona
Dream. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og
Vorblóts. Sjá nánari upplýsingar og myndbrot frá 200 þúsund manna
tónleikum Goran Bregovic í Montreal sl. sumar á www.listahatid.is
„Einnaftíubestuleikhópumveraldar!“ - Time Magazine
Þjóðleikhúsið 15., 16., 17. og 18. maí Miðaverð: 3.300
Cymbeline eftir W. Shakespeare
Goran Bregovic
Fjör fyrir brúðkaup og jarðarfarir
Laugardalshöll 19. maí Miðaverð: 4.900 / 5.900
hrópunarmerki. Reyndar er það
ósköp minimalískur texti en ég hef
ekki notast við þetta aftur.“
Teiknaðirðu mikið sem barn?
„Ég var alltaf eitthvað að teikna
og hef þannig þjálfað mig þó það
hafi ekki verið markvisst. Ég held
ég hafi þetta frá afa mínum, hann
teiknaði mikið.“
Hægt er að skoða myndasögur
Jóns Kristjáns á vef hans
www.jonkk.dk en þar má einnig sjá
stuttmyndir og teikningar eftir
hann. Hann segir gaman að geta
komið verkum sínum á framfæri á
netinu, ekki síst vegna þess að erf-
itt sé að fá útgefendur en hann vildi
gjarnan gefa út myndasögurnar í
bók.
Jón Kristján vinnur myndasög-
urnar í tölvu. „Ég teikna auðvitað
til gamans á blað inn á milli en ég
vinn allt sem ég geri á tölvu. Ég er
með teiknibretti sem ég nota.“
Kominn aftur heim
Jón Kristján er búsettur í Kaup-
mannahöfn þar sem hann hefur
verið í um tvö ár og líkar mjög vel.
„Ég flutti út með foreldrum mínum
og var ekki hrifinn af hugmyndinni.
Eftir að hafa verið hér í eitt ár var
ég orðinn ástfanginn af borginni.“
Borgin er ekki eina ástin sem er í
spilinu því hann á líka danska kær-
ustu og er því ekkert á leiðinni aft-
ur til Íslands. „Mér líður vel í Dan-
mörku og verð áfram hér,“ segir
Jón Kristján. Segja má að hann sé
kominn aftur „heim“ því þrátt fyrir
að hafa alist upp í Reykjavík fædd-
ist hann í Danmörku þó hann hafi
ekki dvalið lengi í landinu eftir fæð-
ingu.
Sem stendur vinnur Jón Kristján
á teiknimyndastofunni Kuntz-
Koppel, sem rekin er af ungu og
kraftmiklu fólki, Söru Koppel og
Christian Kuntz. „Ég er aðstoð-
armaður þeirra og vinn mest við
tölvuna. Til dæmis skanna ég það
inn sem þau hafa teiknað og lita
það,“ segir hann en stofan vinnur
fyrir hina og þessa. Til dæmis kom
hún að gerð teiknimyndarinnar
Ástríkur og víkingarnir (2006) en
dregið hefur úr teiknimyndavinn-
unni vegna vinsælda þrívídd-
arteiknimynda. „Þau eru ótrúlega
þrjósk og vilja ekki fara í þrívídd-
ina.“
Fjölbreytt nám við lýðháskóla
Hann komst í kynni við Kunzt-
Koppel eftir teiknimyndasögu-
áfanga í lýðháskóla í Kaupmanna-
höfn. „Ég var í Borups Højskole,
sem er lýðháskóli í miðri borginni
og eini sinnar tegundar þar. Námið
er mjög fjölbreytt en það er hægt
að taka áfanga í söng, leiklist,
myndlist, kvikmyndun og ljós-
myndun.“
Stuttmyndirnar sem er að finna á
vef Jóns Kristjáns gerði hann ein-
mitt á meðan hann var í skólanum.
Hann vildi gjarnan prófa að
vinna í kvikmyndabransanum og þá
ekki síst við að klippa myndir. „Ég
hef mikinn áhuga á kvikmyndum og
sótti um klippidjobb um daginn en
er ekki búinn að fá svar.“
Knappt rammamyndasöguformið
virðist eiga vel við klippistörf en
sama hugsun um uppbyggingu og
tímasetningu gildir á báðum svið-
um.
Teiknimyndir á
netið í vikunni
Nýtt og spennandi verkefni sem
Jón Kristján hefur verið að vinna
að undanfarið lítur dagsins ljós á
vef hans í vikunni. „Ég er búinn að
gera nokkrar einnar mínútu teikni-
myndir. Helgi Rafn vinur minn er
að gera tónlist við myndirnar,“ seg-
ir hann en Helgi Rafn, sendi frá sér
diskinn Personal Belongings fyrir
síðustu jól og hefur unnið sér það
til frægðar að taka þátt í Idol-
stjörnuleit.
Teiknimyndirnar segja allar litla
sögu og er húmorinn að sjálfsögðu
ekki langt undan.
„Ég bíð spenntur eftir að heyra
tónlistina en Helgi Rafn hefur alveg
frjálsar hendur með túlkunina.
Þetta er lokaverkefni hans á þess-
ari önn í Listaháskólanum og
spennandi fyrir okkur báða.“
ingarun@mbl.is
Ég var alltaf eitthvað að
teikna og hef þannig þjálf-
að mig þó það hafi ekki
verið markvisst. Ég held
ég hafi þetta frá afa mín-
um, hann teiknaði mikið.
www.jonkk.dk
www.dr.dk/Tema/Tegneserier
www.kuntzkoppel.dk
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 39