Morgunblaðið - 06.05.2007, Qupperneq 56
56 SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Í SKÝRSLU utanríkisráðherra
um fyrirkomulag þróunarsam-
vinnu Íslands leggja höfundar
fram tvær tillögur um breytingar
sem fela báðar í sér að Þróun-
arsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ)
færist nær utanríkisráðuneytinu.
Þriðja leiðin, að ÞSSÍ verði áfram
sjálfstæð stofnun og að verkefni
færist frá ráðuneytinu
til ÞSSÍ, er einnig
nefnd en lítið reifuð
þar sem hún þykir
ekki falla að meg-
inhlutverki ráðuneyt-
isins, sem snýst um
hagsmunarekstur á al-
þjóðlegum vettvangi.
Þessi þriðja leið hefur
þó verið farin í Bret-
landi og hefur gefið
góða raun. Fyr-
irkomulag Breta þykir
til fyrirmyndar þar
sem hún tekur meg-
inmarkmið þróunarstarfs, að
draga úr fátækt í heiminum, fram
yfir önnur markmið. Nú þegar
hvatt er til aukinnar þátttöku að-
ila atvinnulífs og annarra í þróun-
arsamstarfi er enn frekari ástæða
til að tryggja að þróunarmarkmið
verði höfð að leiðarljósi.
Rök skýrsluhöfunda byggjast á
því að heppilegast þykir að þróun-
arsamstarf sé í samræmi við hags-
muni gjafaþjóða. Með þessu mæla
alþjóðastofnanir sem fást við þró-
unarmál og er ekki um það deilt.
Þó má túlka þessa kröfu með
tvennu móti. Annars vegar að
hagsmunir gjafaþjóða séu hafðir
að leiðarljósi og hins
vegar að þróun-
armarkmið séu höfð
að leiðarljósi.
Skýrsluhöfundar
ganga augljóslega út
frá fyrri túlkuninni
án þess að velta hin-
um möguleikanum
fyrir sér. Skýrsluhöf-
undar gera grein fyr-
ir fyrirkomulagi í ná-
grannalöndum okkar
og nokkrum OECD-
löndum, sem eru auk
Norðurlandanna, Holland, Írland,
Lúxemborg og Nýja-Sjáland. Svo
er fullyrt að „þróunarsamvinna er
alls staðar talin órjúfanlegur hluti
af utanríkisstefnu“ og ekki er ann-
að að sjá en svo sé í þeim löndum
sem miðað er við.
Það vekur furðu að Bretland
skuli ekki vera meðal þeirra landa
sem miðað er við. Í Viðauka IV
við skýrsluna um stoðefni, sem
höfundar höfðu til hliðsjónar, eru
m.a. upp taldar skýrslur um sk.
jafningjamat OECD um fyr-
irkomulag þróunarsamvinnu
OECD-ríkja. Skýrsla um Bret-
land, sem gefin var út á síðasta
ári, er höfð þar með. Eins og fyrr
segir er fyrirkomulag Breta helst
í samræmi við þriðju leiðina til
umbóta sem skýrsluhöfundar
hlaupa yfir en Bretar fá mikið lof
fyrir. Sérstaklega vekur athygli að
Bretar hafa skapað yfirbyggingu
fyrir allt þróunarsamstarf sem
leitt er af Department for Int-
ernational Development (DFID)
og hefur að meginmarkmiði að
draga úr fátækt í heiminum.
Ráðuneyti, deildir og aðrar stofn-
anir sem vinna að þróunarmálum
setja sín eigin markmið en lúta yf-
irstjórn DFID og má því segja að
Bretar hafi í sínu þróunarstarfi
þróunarmarkmið að leiðarljósi.
Með þessu þykja Bretar hafa stór-
bætt getu sína til að vinna mark-
visst að þróunarmálum.
Á Íslandi koma fjölmargir aðilar
að þróunarsamstarfi. Má gera ráð
fyrir að fleiri bætist við eftir að
nýlega var undirritað samstarfs-
verkefni sem miðar að því að auka
þátttöku aðila viðskiptalífsins. Við-
skiptalífið á vissulega fullt erindi í
þróunarsamstarf en gæta þarf að
þróunarmarkmið séu höfð að leið-
arljósi. Til eru mörg dæmi þess að
skammsýn gróðasjónarmið frjálsra
markaðsafla hafi haft neikvæð
áhrif í þróunarlöndum. Eitt dæmi
er ákvörðunin, sem tekin var í
kjölfar MacBride-skýrslunnar svo-
kölluðu, að láta frjáls markaðsöfl
ráða uppbyggingu samskiptaneta í
heiminum. Þessi öfl hafa séð litla
ástæðu til að byggja upp teng-
ingar við Afríku, sem enn þann
dag í dag er með slökustu net-
tengingar í heiminum.
Í fjölbreyttu þróunarsamstarfi
með aðkomu margra ólíkra aðila
er nauðsynlegt að tryggja að að-
gerðir séu samræmdar og að þró-
unarmarkmið séu höfð að leið-
arljósi. Þegar þetta er haft í huga
og litið er til reynslu Breta er
augljóst að þriðja leiðin til umbóta
í þróunarstarfi Íslendinga verð-
skuldar meiri athygli en skýrslu-
höfundar hafa gefið henni.
Fjölbreytt þróun-
arsamstarf með
þróunarmarkmið
að leiðarljósi
Tryggvi Thayer skrifar um
gildi þróunarsamstarfs » Aukin þátttakaólíkra aðila í þróun-
arsamstarfi krefst um-
bóta sem taka mið af
þróunarmarkmiðum. Ís-
lendingar geta lært
margt af breskri fyr-
irmynd.
Tryggvi Thayer
Höfundur hefur lokið MA-námi í
stjórnsýslu alþjóðlegrar menntunar
og þróunar.
UNDARLEG umræða hefur átt
sér stað um Reykjavíkurflugvöll
undanfarin ár. Vitleysan hefur verið
að stigmagnast og er
komin á hættulegt
stig. Stjórnmálamenn
virðast sumir kok-
gleypa vitleysuna og
taka undir að „flytja“
þurfi Reykjavík-
urflugvöll. Auðvitað
verður sá völlur ekki
fluttur eitt eða neitt.
Hann verður einfald-
lega eyðilagður. Stað-
reyndin er að hann er
vel staðsettur og borg-
inni og landsmönnum
öllum afar dýrmætur.
Reykjavíkurflugvöllur
er perla sem við eigum
að gæta vel. Gegnum
áratugi hefur hann
verið vagga framfara í
landinu.
Flugvelli tyllt ofan
á sker
Ein hugmyndin er
að gera nýjan flugvöll
úti á Skerjafirðinum, á
Lönguskerjum sem
eru rétt innan við
Kerlingarsker, skammt frá golfvell-
inum á Seltjarnarnesi. Ég man
þessar slóðir í mynni Skerjafjarðar
frá barnæsku þegar ég vitjaði grá-
sleppuneta með föður mínum og afa.
Ég er kominn á miðjan áttræðisald-
urinn og fæddur og uppalinn Sker-
firðingur að Þvervegi 12, örfáa
metra frá vestur-austur flugbraut
Reykjavíkurflugvallar og skammt
frá vörinni þaðan sem hraustir
menn réru til fiskjar.
Auk þess að tylla flugvellinum of-
an á sker þar sem sjórinn brýtur á í
flestum veðrum hefur líka verið tal-
að um nýjan Reykjavíkurflugvöll
uppi á Hólmsheiði, þar sem mér er
sagt að veður séu líka vond. Enn-
fremur telja sumir að nota megi
Keflavíkurflugvöll fyrir innanlands-
flugið, sem líklega væri skásta
lausnin ef menn vilja endilega fara
með flugvöllinn úr
Vatnsmýrinni.
Besti vinur
barnanna
Skipaðar eru nefndir
á nefndir ofan til að
gefa ráð í þessu „flutn-
ingsmáli“ Reykjavík-
urflugvallar. Vonandi
missa menn bráðlega
vinnuna við slíka ráð-
gjöf. Hún er nefnilega
með öllu óþörf. Meiri-
hluti fólks vill þyrma
lífi Reykjavík-
urflugvallar samkvæmt
skoðanakönnunum. Og
við sem áttum því láni
að fagna að alast upp
við flugvöllinn frá því
snemma á stríðs-
árunum segjum ein-
faldlega: Flugvöllurinn
varð strax besti vinur
okkar krakkanna í
Skerjó. Þar hlupum við
á eftir Erninum, Haf-
erninum og öðrum far-
kostum á vori flugsins á
Íslandi og tókum á móti spottanum
þegar þessar einshreyfils flugvélar
lentu á Skerjafirði áður en flugvöll-
urinn kom. Flugkappa þessara tíma
þekktum við, Örn O. Johnson, Sigga
flug og Agnar Kofoed-Hansen.
66 ára saga flugvallar.
Ég var átta ára þegar Bretarnir
hófu að byggja flugvöllinn í Vatns-
mýri, það gerðu þeir í leyfisleysi og
fengu bágt fyrir hjá Bjarna Bene-
diktssyni borgarstjóra. Það tók
Breta og íslenska verkamenn rétt
rúmlega ár að gera flugvöllinn.
Hann var tekinn í notkun sumarið
1941 og hefur verið í stöðugri notk-
un í bráðum 66 ár.
Reykjavíkurflugvöllur varð eign
Íslendinga eftir stríð eins og Kefla-
víkurflugvöllur. Án þessara hern-
aðarmannvirkja hefði flug okkar
ekki þróast eins og það gerði.
Reykjavíkurflugvöllur var og er gott
samgöngumannvirki á besta stað.
Nokkrar erlendar borgir hafa álíka
vel staðsetta flugvelli, en engum
dettur í hug að eyðileggja þá. Þvert
á móti eru þeir nýttir til fullnustu og
farþegar fagna því að eiga svo vel
staðsetta flugvelli.
En eftir hverju eru menn að
sækjast eftir í flugvallarlandinu?
Vantar virkilega lóðir á Íslandi,
þessu dreifbýla landi? Lóðir undir
verslanir, skrifstofur, kannski fyrir
einhverskonar „sóhó“ og skemmti-
iðnað?
Ég veit það ekki. En eitt veit ég.
Hugmyndir manna um þennan
„flutning“ eru afskaplega barna-
legar. Það er óþarft með öllu að
kasta þessum góða flugvelli. Hann
sómir sér vel þar sem hann er. Hug-
myndir um neðansjávargöng eða
brú frá Lönguskerjum yfir á Álfta-
nes eru fáránlegar. Hvað þá uppfyll-
ingin á Lönguskerjum og kannski
Kerlingarskeri þar sem flugvöllur
yrði lagður mitt í öllu brimsoginu.
En málið er í rannsóknarferli er
okkur sagt og getur skaffað ein-
hverjum vinnu um mörg ókomin ár.
Enginn hefur talað við hafnsögu-
mann Kópavogshafnar sem hefur
sótt stór flutningaskip mörg hundr-
uð sinnum út að Kerlingarskeri og
siglt þeim inn fjörðinn. Ætli hann
taki ekki undir með mér að þessi
hugmynd er hrein firra stjórnmála-
manna sem vilja láta á sér bera.
Ég skora á alþingismenn og borg-
arfulltrúa að loka eyrunum fyrir vit-
leysunni. Látið Reykjavíkurflugvöll
í friði.
Látið Reykjavíkur-
flugvöll í friði
Magnús V. Pétursson skrifar
um hugmyndir um „flutning“
Reykjavíkurflugvallar
Magnús V. Pétursson
»Reykjavík-urflugvöllur
er perla sem við
eigum að gæta
vel. Gegnum
áratugi hefur
hann verið
vagga framfara
í landinu.
Höfundur er fyrrverandi milliríkja-
dómari í knattspyrnu.