Morgunblaðið - 06.05.2007, Page 68
68 SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
KVENNASKÓLINN er ein höf-
uðprýði Blönduóss og mikilvægt
kennitákn fyrir héraðið allt. Starf
hans og saga hefur mótað menn-
ingarstarf og ímynd héraðsins í
meira en heila öld. Hugmyndir
hafa komið fram
um að þar verði til
húsa safna- og
fræðslumiðstöð um
kvennamenntun á
Íslandi frá upphafi
byggðar hér á
landi. Yrði það
samofið núverandi Textílsetri og
Heimilisiðnaðarsafni sem rekið er
af mikilli reisn. Er það ein margra
góðra hugmynda sem komið hafa
fram og sæma vel þessu forn-
fræga og fallega húsi.
Baráttuhópur verður til
Svo skemmtilega vildi til vet-
urinn 2006 að bæði Adolf Bernd-
sen á Skagaströnd og Jóhanna
Pálmadóttir á Akri sátu samtímis
á þingi. Fengum við þá þingmenn
allra flokka í kjördæminu til að
flytja með okkur tillögu um að
„menntamálaráðherra skipi starfs-
hóp er leggi fram tillögur um
framtíðarhlutverk húsnæðis
Kvennaskólans á Blönduósi. Jafn-
framt geri starfshópurinn fram-
kvæmda- og kostnaðaráætlun þar
sem fram komi tillögur um viðhald
húsnæðisins og endurbætur“.
Tillagan kom seint fram og var
ekki rædd á þinginu. En engu að
síður sýndi þetta framtak þing-
mannanna að stjórnvöld vilja axla
ábyrgð sína á húsinu. Það gaf fyr-
irheit um að áfram yrði unnið í
málinu. Nokkrar konur sem
tengdust Kvennaskólanum mynd-
uðu að eigin frumkvæði bar-
áttuhóp fyrir málefnum hans. Að-
albjörg Ingvarsdóttir fyrrverandi
skólastýra leiðir hópinn, en aðrar
eru Guðrún Jónsdóttir frá Bjarg-
húsum, Ingibjörg Sólveig Kolka
og Guðrún Jónsdóttir arkitekt.
Hefur þessi hópur annast milli-
göngu við menntamálaráðuneytið,
húsafriðunarnefnd og héraðsnefnd
til að þoka málum áfram.
Hefur nú verið tilnefndur
starfshópur þessara aðila til að
hafa umsjón með framkvæmdum.
Verkið er hafið
Kvennaskólahúsið sem nú
stendur var að meginhluta byggt á
árunum 1911-1912 eftir teikn-
ingum Einars Erlendssonar bygg-
ingarmeistara í Reykjavík. Húsið
er að 75% í eigu ríkisins og 25% í
eigu héraðsnefndar Austur-
Húnvetninga.
Fyrir ári síðan samþykkti Al-
þingi að veita eina milljón króna á
árinu 2006 til að gera úttekt á
Kvennaskólanum og forgangsraða
verkþáttum í viðhaldi og end-
urbótum hans. Sú úttekt hefur
verið gerð undir forsjá húsafrið-
unarnefndar. Á grundvelli hennar
voru veittar 7 milljónir króna í ár
til að hanna endurbæturnar og
ráðast í brýnustu aðgerðir til að
verja húsið frekari skemmdum.
Heimaaðilar hafa gefið yfirlýs-
ingar um að standa við sinn hlut í
endurbótunum. Faglegir og fram-
kvæmdalegir þættir verða áfram á
vegum húsafriðunarnefndar í fullu
samráði við heimamenn. Er ráð-
gert að endurnýja lagnir og þak
skólans á þessu ári eins og fjár-
munir duga.
Leggjumst öll á árar
Okkur er öllum ljóst að brýnt er
að hefjast handa um gagngerar
endurbætur á Kvennaskólanum,
a.m.k. að utan, og endurnýja frá-
rennslislagnir o.fl., óháð því hvaða
starfsemi verður í húsinu. Húsa-
friðunarnefnd hefur lagt fram til-
lögur um einstaka verkþætti,
kostnaðarmetið þá og forgangs-
raðað. Jafnframt hefur Bar-
áttuhópurinn unnið að hug-
myndum um framtíðarhlutverk
Kvennaskólans.
Það er metnaðarmál ekki aðeins
Húnvetninga heldur þjóðarinnar
allrar að verja þetta fallega og
sögufræga hús, gera það upp,
færa því aftur fyrra útlit og þann
glæsileika sem því ber.
Framtíð húss Kvennaskólans er
að stórum hluta í höndum Alþing-
is, en ríkið er aðaleigandi þess. Ég
heiti því fyrir mitt leyti að leggja
málefnum Kvennaskólans allt það
lið sem ég má og fæ afl til á næsta
kjörtímabili.
Leggjum Kvennaskólanum á Blönduósi lið
Jón Bjarnason
Höfundur er þingmaður Vinstri
grænna
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 14 OG 15
STÓRITEIGUR 35 - MOSFELLSBÆR
Berg fasteignasala, Háaleitisbraut 58
Sími 588 5530 • Netfang: berg@berg.is
Pétur Pétursson lögg. fasteignasali
Glæsilegt 143 fm einbýlishús auk 47,8 fm bílskúrs á frábærum stað í enda
götu. Stórt óbyggt svæði umhverfis húsið, gil og lækur. Fallegur garður og
stór sólpallur með nýjum potti. Toppfrágangur. 4 svefnherbergi. 2 baðher-
bergi og tvöfaldur bílskúr. Arinn í stofu. Toppeign í toppvið-
haldi. V. 51,5 millj.
Halldór og Sigrún taka á móti gestum.
JARÐIR - LANDSPILDUR - SUMARHÚS
YFIR 100 BÚJARÐIR OG LANDSPILDUR
OG UM 60 SUMARHÚS Á SÖLUSKRÁ FM
Sjá nánar á www.fmeignir.is
www.fasteignamidstodin.is
Nýtt glæsilegt einbýli sem stendur upp við sjávarkambinn en einnig er
óbyggt svæði vestan megin hússins og má því segja að lóðin sé óvenju vel
staðsett. Húsið í heild er 307 fm en þar af er um 50,5 fm bílskúr og 62 fm
sér íbúðarrými. Byggingaraðili hefur lagt mikinn metnað í húsið og vinnu-
brögð eru vönduð. Húsið selst tilb. til innréttinga. Laust nú þegar. V. 85 m.
6577
EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG (SUNNUDAG) FRÁ KL. 13-15.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
OPIÐ HÚS BLIKASTÍGUR 19
- SJÁVARLÓÐ Á ÁLFTANESI
24.900.000
Einstaklega falleg 99,7 fm. 3ja herbergja íbúð
með sérinngang á 1. hæð í húsi staðsett i enda
á lokuðum botnlanga. Vandaðar innréttingar
úr mahogny og eikarparket og flísar á gólfum.
Barnvænt umhverfi með sparkvelli og róluvelli
ásamt sameiginlegum listigarði.
Þórarinn sölumaður Draumahúsa tekur á móti gestum.
Fr
u
m
Básbryggja 15, 1.hæð - 110 Rvk
Opið hús í dag kl. 14:00 - 15:00
Hlíðasmári 15 • 201 Kópavogur • Sími: 585 0100
Guðmundur St. Ragnarsson - Löggildur fasteignasali
Fagrabrekka– Kópavogi
Húseign kynnir verulega fallegt einbýlishús í góðu hverfi í Kópavogi. Fallegur gróinn
suður garður. Húsið hefur verið mikið endurnýjað. Innra skipulag er eftirfarandi:
Gengið inn á flísalagða forstofu meðgóðum skápum, eldhús er mjög fallegt með ný-
legri innréttingu, góðum borðkrók og útgengi í suðurgarð. Rúmgóð stofa og sjón-
varpsstofa, parket á gólfi, á efri palli er borðstofa, gestasalerni og herbergi, parket á
gólfi nema á baði (flísalagt). Niðri eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, þvottahús, geym-
sla, fallegt baðherbergi með horn baðkari, góð innrétting og gott alrými. Bílskúr fylg-
ir eigninni en hann er ekki fullgerður.
Allar nánari upplýsingar veitir Baldvin Ómar í síma 898 1177
eða á skrifstofu Húseignar í 585 0100
Heiti eignar: Fagrabrekka– Kópavogi
Stærð í fermetrum: 227 fm
Fjöldi herbergja: 4 svefnherbergi
Tegund eignar: Einbýli
Verð: 51,5,0 millj.
OPIÐ HÚS Í DAG
SUNNUDAG KL. 15:00 – 15:30
SANDAVAÐ 9 - REYKJAVÍK
Glæsileg 2ja herbergja íbúð
með sérinngang af svölum.
Íbúðin er fullbúin með gólfefn-
um og vönduðum innrétting-
um. Stórar svalir með frábæru
útsýni yfir Elliðavatn og Víði-
dalin. Gólfefni eru gegnheil eik
og náttúrusteinn, fataskápar
og innréttingar frá HTH, gengt
úr stofu á svalir. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf baðkar og sturta.
Verð: 23.500.000.-
Magnús Ninni Reykdal, sölufulltrúi, tekur á móti fólki
GSM: 694-9999 • magnus@storborg.is
Sími 534 8300 • Kirkjustétt 4 • 113 Reykjavík • www.storborg.is • storborg@storborg.is