Morgunblaðið - 06.05.2007, Page 87

Morgunblaðið - 06.05.2007, Page 87
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 87 Aðili að Gagnlegur fróðleikur og fleiri fyrirtæki, sjá: www.kontakt.is H a u ku r 2 6 7 4 Jens Ingólfsson rekstrarfræðingur, jens@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Birgir Ómar Haraldsson verkfræðingur, birgir@kontakt.is Ragnar Marteinsson fyrirtækjaráðgjafi, ragnar@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hdl. lögg. fasteignasali, sigurdur@kontakt.is Eva Gunnarsdóttir skrifstofustjóri, eva@kontakt.is Við erum ráðgjafar í fyrirtækjaviðskiptum og aðstoðum bæði seljendur og kaupendur meðalstórra fyrirtækja við alla þætti slíkra viðskipta: • Leit að heppilegum fyrirtækjum eða kaupendum • Verðmat fyrirtækja. • Viðræðu- og samningaferli. • Fjármögnun. • Gerð kaupsamninga og tengdra samninga. Við höfum engin fyrirtæki til sölu en við vitum af fjölda fyrirtækja sem geta verið fáanleg fyrir rétta kaupendur. Við vitum líka af mörgum aðilum sem eru að leita að góðum fyrirtækjum í flestum greinum atvinnurekstrar. Eftirfarandi fyrirtæki eru ekki til sölu, en við teljum þau fáanleg: Tengsl okkar við viðskiptavini eru trúnaðarmál. Upplýs- ingar um fyrirtæki eru ekki gefnar upp í síma. Vinsam- lega hringið og pantið tíma, síminn er 414 1200, en einnig er hægt að nota tölvupóst: jens@kontakt.is eða brynhildur@kontakt.is TENGINGVIÐ TÆKIFÆRIN Suðurlandsbraut 4, 7. hæð. • Sími: 414 1200 www.kontakt.is • Netfang: kontakt@kontakt.is • Deild úr heildverslun með gjafavörur. Ársvelta 60 mkr. • Innflutningsfyrirtæki með vörur fyrir sjávarútveg. EBITDA 55 mkr. • Þekkt skyndibitakeðja. Ársvelta 130 mkr. • Rótgróið fyrirtæki í hreinsun og útflutningi æðardúns. • Vélsmiðja. Ársvelta 200 mkr. • Stórt framleiðslufyrirtæki með matvæli. • Rótgróið lítið byggingafyrirtæki með fasta viðskiptavini. Fjórir fastráðnir starfsmenn. Góð verkefnastaða. • Rótgróin húsgagna- og gjafavöruverslun. EBITDA 14 mkr. • Stórir byggingaverktakar í einu Eystrasaltslandanna. Ársvelta 3.800 mkr. • Innflutningsfyrirtæki með sumarvörur. Ársvelta 300 mkr. • Deild úr heildverslun með þekktar garðvörur. • Heildverslun Í Bretlandi með tölvuhluti. Selur til 2000 verslanna. Ársvelta 400 mkr. • Framleiðandi lækningatækja í einu Eystrasaltslandinu sem selur til sjúkrahúsa í yfir 70 löndum. Um 60 vel menntaðir starfsmenn. Ársvelta 350 mkr. EBITDA 90 mkr. • Lítil húsgagnaverslun í Kaupmannahöfn. • Heildverslun-sérverslun með fatnað. Ársvelta 100 mkr. • Rótgróin umboðs- og heildverslun á Austurlandi. Ársvelta 100 mkr. • Heildverslun með gjafavörur. Ársvelta 50 mkr. • Þekkt húsgagnaverslun. Ársvelta 250 mkr. • Heildverslun með bílavörur. Ársvelta 75 mkr. • Þekkt sérverslun með herrafatnað. • Stórt veitingahús í miðborginni. • Meðalstórt þjónustufyrirtæki í tæknibúnaði. • Stór sérverslun-heildverslun með byggingavörur. • Þekkt sérverslun með fatnað. Góð afkoma. • Jarðvinnufyrirtæki með nýlegar vélar og góða verkefnastöðu. FRÉTTIR Fréttir á SMS AÐALFUNDUR félags forstöðu- manna ríkisstofnana var haldinn 2. maí sl. Félagið var stofnað árið 1986 og er tilgangur þess er að vera tengiliður við stjórnvöld um gagn- kvæm málefni, stuðla að fræðslu- starfi meðal félagsmanna og efla kynni þeirra og samstarf. Úr stjórn gengu Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri, sem ver- ið hefur formaður félagsins í fjögur ár og þar áður í stjórn í sex ár. Þökkuðu fundarmenn fráfarandi formanni fyrir dugnað og framsýni við þróun félagsins, segir í frétt frá félaginu. Jafnframt létu af stjórn- arstörfum Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís ohf., og Óli H. Þórð- arson, fv. formaður Umferðarráðs, sem var einn helsti hvatamaður að stofnun félagsins og hefur verið í stjórn þess frá upphafi. Var Óli sér- staklega heiðraður á fundinum fyrir framlag sitt til stofnunar og starf- semi félagsins. Í stjórn félagsins voru kjörin Haukur Ingibergsson forstjóri Fasteignamats ríkisins formaður, Sigrún Jóhannesdóttir forstjóri Persónuverndar varaformaður, Björn Karlsson, brunamálastjóri ritari, Snævar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Fasteigna ríkissjóðs gjaldkeri og Gísli Tryggvason, tals- maður neytenda meðstjórnandi. Varastjórn skipa Margrét Hall- grímsdóttir, þjóðminjavörður, Rannveig Gunnarsdóttir forstjóri Lyfjastofnunar og Þorkell Helga- son, orkumálastjóri. Nýr formaður kjörinn í FFR EIGA söfn og setur samleið? Leitað verður svara við þeirri spurningu og fleirum varðandi samstarf safna og setra á málþingi um söfn og sögutengda ferðaþjónustu miðviku- daginn 9. maí kl. 13 til 16 í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskólans. „Á síðustu árum hafa orðið mikl- ar breytingar í safna- og sýninga- málum hér á landi. Fyrir aðeins um tíu árum var sýningin Á Njáluslóð sett upp, sem segja má að hafi markað upphaf landnáms söguald- arsýninga. Nú hafa verið stofnuð samtök slíkra sýninga og verkefna sem eru á þriðja tug. Setrin hafa reynt að höfða til almennings með afþreyingu og nýrri miðlun og upp- skorið mikla aðsókn. Söfnin hafa hins vegar, mörg hver, verið sein til að innleiða nýjungar, þar til á allra síðustu árum. Ekki er þó alveg ljóst hvað er safn og hvað setur. Ný safnalög 2001 gerðu ekki ráð fyrir setrum, aðeins söfnum,“ segir í fréttatilkynningu. Málþingið er hluti af MA-verk- efni Ólafs J. Engilbertssonar í hag- nýtri menningarmiðlun. Auk Ólafs verða eftirtaldir með erindi á mál- þinginu: Ragnheiður Þórarins- dóttir, sérfræðingur safnamála hjá menntamálaráðuneyti; Rögnvaldur Guðmundsson, formaður Samtaka um sögutengda ferðaþjónustu; Guðbrandur Benediktsson, safna- og sagnfræðingur og deildarstjóri miðlunar hjá Minjasafni Reykjavík- ur; Torfi Tulinius, formaður sam- takanna Vestfirðir á miðöldum og Kjartan Ragnarsson, forstöðumað- ur Landnámsseturs Íslands. Eggert Þór Bernharðsson dósent verður fundarstjóri og stýrir pallborðs- umræðum í lok málþingsins. Málþing um söfn og sögutengda ferðaþjónustu í Öskju

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.