Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 96
96 SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
NEXT kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 14 ára
BLADES OF GLORY kl. 2 - 4 - 6 - 8:10 - 10:20 B.i. 12 ára
THE MESSENGERS kl. 8 B.i. 12 ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 1:50 - 4 LEYFÐ DIGITAL 3D
MEET THE ROBINSONS ÓTEXTUÐ m/ensku tali kl. 6:10 LEYFÐ DIGITAL 3D
300 kl. 10 B.i. 16 ára DIGITAL
/ KRINGLUNNI
SPIDER-MAN 3 kl. 12 - 3 - 6 - 9 - 10:30 B.i.10.ára
SPIDER-MAN 3 VIP kl. 12 - 3 - 6 - 9
BLADES OF GLORY kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i.12.ára
SHOOTER kl. 8 B.i.16.ára
BREACH kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i.12.ára
THE GOOD SHEPERD kl. 10:10 B.i.12.ára
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 1:30 - 2 - 3:30 - 4 LEYFÐ
WILD HOGS kl. 8 B.i.7.ára
BECAUSE I SAID SO kl. 6 LEYFÐ
/ ÁLFABAKKA
BECAUSE I SAID SO
BESTA MAMMA Í HEIMI
GETUR LÍKA VERIÐ ERFIÐASTA MAMMA Í HEIMI
Diane Keaton Mandy Moore
ee
H.J
eee
V.J.V. TOPP5.IS
eee
Ó.H.T. RÁS2
eee
S.V. MBL
eee
V.J.V. TOPP5.IS
FYRSTA STÓRMYND SUMARSINS
HEIMSFRUMSÝNING
WWW.SAMBIO.IS
eee
L.I.B, Topp5.is
Óðum styttist í tónleikaGorans Bregovics og fjöl-skipaðrar hljómsveitarhans í Laugardalshöll, en
tónleikarnir, sem haldnir eru undir
yfirskriftinni Fjör fyrir brúðkaup
og jarðarfarir, eru samstarfsverk-
efni Listahátíðar og tónlistarhátíð-
arinnar Vorblóts. Áður en Júgó-
slavía leystist upp var Bregovic
liðsmaður einnar vinsælustu hljóm-
sveitar landsins en eftir að borg-
arastyrjöldin hófst breytti hann um
kúrs, lagði rokkið á hilluna og sneri
sér að kvikmyndatónlist með góðum
árangri. Smám saman tók hann svo
tónleikaferðir upp að nýju en nú
með fjölmenna strengjasveit, karla-
kór, blásarasveit sígauna, slagverk
og búlgarskar söngkonur.
Samið í hefðinni
Mikill og vaxandi áhugi hefur
verið hér á landi og víðar fyrir tón-
list frá Balkanskaga á undanförnum
árum og áratugum. Þar gætir mjög
áhrifa frá Goran Bregovic og kvik-
myndatónlist hans, til að mynda
tónlistin við Kusturica-myndina
Neðanjarðar / Underground sem
naut talsverðar hylli hér á landi.
Í viðtali við Morgunblaðið fyrir
stuttu lýsti Bregovic tónsmíðum
síðum sem svo að hann semji tónlist
samkvæmt sinni menningarhefð,
enda sé það eina leiðin fyrir hann til
að vera sjálfum sér samkvæmur.
Þannig notar hann í verkum sínum
blásara frá Balkanskaga, helst sí-
gauna frekar en klassískt menntaða
hljóðfæraleikara enda segir hann að
þar sem sígaunahljóðfærin séu svo
léleg, hljóðfæri fyrir herlúðrasveitir
en ekki klassíska konserta, beri
þeir með sér smá geggjun, smá
pönk inn í tónlistina.
Útsetningar úr ýmsum áttum
Hann valdi og raddir í karlakór-
inn sem hann notar með álíka
markmið í huga; að búa til kór
bassasöngvara sem hefðu sveigj-
anlegri þjálfun en ítalskir tenórar.
Slagverkið gerir svo sitt til að ýta
undir balkönsk áhrif, einfalt og
áhrifaríkt og svo kórónar búlg-
arskur kallsöngur allt saman, en
Bregovic er einmitt þekktur fyrir
það að flétta saman hugmyndir úr
ýmsum áttum í útsetningum, setja
saman tyrkneskar hefðir, serbó-
króatískar, búlgarskar, albanskar,
rúmenskar og svo má telja, en til
gamans má geta þess að lúðra-
sveitatónlist frá Balkanskaga er
ættuð beint frá tyrkneskum her-
lúðrasveitum – skylt er skeggið
hökunni.
Sígaunamyndir og
sígaunamúsík
Bregovic var aðeins búinn að
fikta við kvikmyndatónlist þegar
Emir Kusturica vinur hans bað
hann um að leggja sér lið við mynd-
ina Tími sígaunanna og í kjölfarið
fylgdu allmargar myndir ýmissa
höfunda auk Kusturica, en alls
gerði Bregovic tónlist við þrjár
Kusturica-myndir, Tími sígaun-
anna, Arizon draumur og Neð-
anjarðar.
Plötur með tónlistinni úr þessum
myndum hafa fengist hér á landi, til
að mynda skífan með tónlistinni úr
Underground sem kom út 1995 og
einnig platan Music for Films, sem
kom út 2000 og hefur að geyma úr-
val af tónlist úr þeim fjölmörgu
kvikmyndum sem Bregovic hefur
samið fyrir. Nýjust er svo platan
Tales and Songs from Weddings
and Funerals, sem hefur að geyma
tónlist viðlíka þeirri sem Bregovic
flytur í Höllinni í næstu viku eins
og nafnið gefur til kynna. Á næstu
dögum er svo væntanleg ný skífa
Bregovics, óperan „Bregovic’s Car-
men with a Happy End“, en á henni
verður tónlist sem hann hefur flutt
víða um heim á undanförnum árum.
Fjör fyrir brúðkaup og jarðarfarir
Balkanmúsík Goran Bregovic - útsetningar úr úr ýmsum áttum.
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Árni Matthíasson
Serbókróatíski tónlistarmaðurinn Goran Bregovic, heldur sannkallaða stórtónleika í Laugardalshöll um miðjan mánuðinn.
Hann hefur sent frá sér nokkrar skífur frá því hann byrjaði nýtt líf með nýrri tónlist.