Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 14
Frá ritstjóra
Síðastliðin tvö ár hefur úlgáfa
Náttúrufræðingsins verið u.þ.b. einu
ári á eftir áætlun og svo er enn. Vonir
standa til að þetta fari að lagast þar
sem nú liggur fyrir allmikið efni til
birtingar.
Á síðastliðnu ári fækkaði félögum í
Hinu íslenska náttúrufræðiféiagi um 64
og hafði fækkað um 99 árið áður.
Samkvæmt upplýsingum Erlings Ólafs-
sonar afgreiðslustjóra er áframhaldandi
fækkun félaga á þessu ári. Þetta er
uggvænleg þróun og við henni þarf
að bregðast á viðeigandi hátt.
Þó svo að Náttúrufræðingurinn sé
félagsrit hins Hins íslenska náttúru-
fræðifélags er meirihluti félaga fyrst
og fremst áskrifendur að Nállúru-
fræðingnum. Fækkun félaga stafar því
að líkindum af því að félagsmenn eru
ekki ánægðir með rilið og það efni
sem það flytur. Þá verður að viður-
kennast að tímaritið er nokkuð dýrt ef
litið er á árgjald félagsins sem áskrift-
argjald.
Til að Hið íslenska náttúrufræði-
félag geti rétt úr kútnum þarf að breyta
Náttúrufræðingnum þannig að hann
verði áhugaverður fyrir allan almenn-
ing í landinu.
Undanfarið ár hefur útgáfuráð
unnið að undirbúningi breytinga sem
ætlað er að færa tímaritið nær
almenningi en verið hefur og má
reikna með að árangur af því starfi
sjáist á næsta ári. Fróðlegt væri að fá
upplýsingar um það frá félagsmönnum
hvers konar efni þeir vilja helst sjá í
tímaritinu.
Sem fyrr segir liggur nú alimikið
efni fyrir til birtingar. Af jarðfræðilegu
efni má nefna yfirlitsgreinar um
jarðhita, segultímatal og vatnafræði,
grein um leir í jarðvergi og aðra urn
geislakolsgreiningar. Af líffræðilegu
efni má nefna tvær greinar unt fræ,
grein um kræklingseldi grein um liti
dýra, tíundu greinina um íslenska
flækingsfugla og fjallar hún um titt-
linga, grein um rjúpuna og grein um
leðurblökur sem flækst hafa til íslands.
Náttúrufræðingurinn hefur gegnum
tíðina birt mikið af ritfregnum.
Megintilgangurinn hefur verið að
kynna rit um náttúrufræði fyrir lesend-
um en nokkuð hefur verið tilviljana-
kennt um hvaða rit hefur verið ijallað.
Framvegis mun tímaritið yfirleitt ekki
hafa frumkvæði að slíkri kynningu á
bókum nema þess sé óskað sérstaklega.
I staðinn er ætlunin að birta reglulega
tæmandi lista yfir útkomnar bækur um
náttúrufræði á næstliðnu ári.
Nokkuð hefur borið á kvörtunum
vegna breyttra aðferða við merkingar
á tímaritinu, en síðustu hel'ti hafa verið
merkt nteð útgáfuári en ekki því ári
sem þau hefðu átt að koma út á. Þetta
er nauðsynlegt vegna þess að ekki má
leika nokkur vafi á því á hvaða ári
fræðimenn birta sínar rannsóknaniður-
stöður.
Sigmundur Einarsson
124