Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 73

Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 73
2. mynd. Kristalbygging eyjasilíkata. Ólivín tilheyrir þessum flokki silíkata. Stóru hringirnir sýna súrefnisatóm og litlu hringirnir kísilatóm. Til þess að gera silíkateininguna (KS-eininguna) í kristal- grindinni gleggri er dregin lína milli súrefnis- og kísilatóma. Svörtu punktarnir eru katjónir, járn eða magnesíum, sem halda KS-einingunum saman. eitt súrefnisatóm liggur alltaf á milli tveggja kísilatóma (3. mynd). Þau kallast keðjusilíköt. Atóm annarra kat- jóna liggja á milli keðjanna og binda þær saman. Ef tvær keðjur tengjast saman með súrefnisatómum að endi- löngu myndast bandsilíköt. Enn einn möguleikinn er sá að þrjú af hverjum fjórum súrefnisatómum í KS-frum- einingunni liggi á milli tveggja kísil- atóma. Þannig myndast samfelld lög af KS-frumeiningum, lagsilíköt, en á milli laga eru katjónir. Loks eru það grindar- silíkötin, en í þeim liggja öll fjögur súrefnisatómin í KS-einingunni á milli tveggja kísilatóma. í þessari kristal- grind eru því tvö súrefnisatóm fyrir hvert kísilatóm og hleðsla grindarinnar þar með 0. Því er ekki þörf á katjónum til að vega upp neikvæða hleðslu. Eiginleikar eða hæfni frumefna til að ganga inn í kristalgrindur silíkata ræðsl ekki af atómtölu, heldur fyrst og fremst af því hverskonar jón frumefnið hefur tilhneigingu til að mynda (ein- gilda, tvígilda o.s.frv.) og stærð þessarar jónar. Kristalgrind sér ekki mun á tveimur frumefnum ef þau mynda jónir af sömu stærð og með sömu hleðslu. í þessu liggur skýringin á því að steindir sem einkennast af ákveðinni kristalbyggingu, eins og t.d. ólivín sem tilheyrir eyjasilíkötum, geta haft breytilega efnasamsetningu. Tök- um dæmi: Frumefnið járn myndar tvígildar jónir og geisli (radíus) þessara jóna er 0,74 Ángström (1 Ángström = 10'8 cm). Frumefnið magnesíum mynd- ar einnig tvígildar jónir og er geisli þeirra 0,66 Ángström. Þessi munur er ekki mikill. I ólivíni getur magnesíum og járn því verið í hvaða hluföllum sem er. Ef ólivín myndast við krist- öllun úr kviku ræður járn-/magnesíum- hlutl'all hennar hverl hlutfall þessara efna verður í ólivíninu sem myndast. Annað dæmi: Kísill myndar fjórgildar jónir með 0,42 Ángström geisla. Á1 myndar þrígildar jónir með svipaðan geisla, 0,51 Ángström. Þessi munur í hlcðslu og stærð á kísil- og áljónum er ekki nægilegur til að koma í veg fyrir að ál geti komið í stað kísils í KS- frumeiningunni. Svona skipti leiða til fjölgunar annarra katjóna í kristalgrind- 3. mynd. Kristalbygging keðjusilíkata. Pýroxen tilheyra þessunr flokki, en af þeim eru ágít og orþópýroxen algengust. Keðj- urnar eru sýndar með stórum (súrefni) og litlum (kísill) hringjum og tengih'num milli þeirra. Milli keðjanna eru katjónir eins og kalsíum, ntagnesíum og járn senr halda þeirn saman. 183
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.