Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 104
6. mynd. Hugmynd dr.
Helga Pjeturss. 1) Jökul-
bergslög. 2) Sjávarset. 3)
Grágrýti. The concept of
clr. H. Pjeturss. 1) Till lay-
ers. 2) Marine sediments.
3) Olivin basalt.
sá Helgi Pjeturss þau. Yfirborð neðra
lagsins er rákað af jökli. Skeljabrot
finnast í báðum lögunum en eru mun
algengari í því efra. Helgi setti fram þá
hugmynd að jökulbergslögin sam-
svöruðu jökulbergslögunum sem finna
má efst og neðst í Fossvogssetinu (6.
mynd). Ef svo væri ætti neðra lagið
varla að vera minna en eitt þúsund
árum eldra en efra lagið. Niðurstaðna
aldursgreininganna var því beðið með
nokkurri eftirvæntingu. Aldursgrein-
ingar á skeljunum gáfu 10.515± 120 og
12.485± 150 C-14 ár á efra laginu og
10.175± 180 C-14 ár á neðra laginu.
Mishár aldur og öfug aldursröð skelj-
anna í setinu, þar sem skelin úr neðra
setlaginu er yngst, sýnir að hér er um
upphrært sjávarset að ræða en ekki tvö
aðgreind og misgömul jökulbergslög.
Hugmynd Helga stenst því ekki fylli-
lega. Nánari athugun leiðir í ljós að
rákirnar í jökulberginu eru ekki raun-
verulegar jökulrákir heldur skriðfletir
sem myndast hafa í ruðningnum um
leið og jökullinn ýtti honum fram.
Ruðningurinn er fremur siltríkur þarna
svo skilyrði fyrir myndun slíkra skrið-
flata eru góð.
Elsta skeljabrotið er frá böllingtíð
og gefur hæsta aldur sem mælst hefur
í skel frá Reykjavíkursvæðinu. Hún
gefur jafnframt fyrstu vísbendinguna
um að þar hafi verið orðið íslaust
þegar á bölling. Lægsta aldurstalan frá
Seltjarnarnesi bendir til þess að jökull
hafi á ný farið yfir nesið um 10.200
BP. Fyrri greiningar sýna að jökull var
horfinn frá Seltjarnarnesi og Hótel
Loftleiðum um 9.900 BP (Andersen
o.fl. 1989). Jökullinn hefur því ekki
náð að teygja sig út fyrir Seltjarnarnes
nema um tiltölulega skamman tíma.
Aldursgreiningar á Raa-görðunum í
Noregi benda til að mesta framrás
jökla á yngra-dryas þar hafi verið fyrir
um 10.200 BP. Jökulbergið á Sel-
tjarnarnesi hefur orðið til rétt um há-
mark yngra-dryas tíðar og er frá sömu
jökulframrás og jökulbergið efst í
Fossvogssetinu.
ÁLFTANESGARÐURINN OG
ÁLFTANESSTIG
Ysti sjáanlegi og ótvíræði jökul-
garðurinn á höfuðborgarsvæðinu er
Álftanesgarðurinn (1. mynd). Þorleifur
Einarsson (1968, 1991) telur hann vera
frá eldra-dryas. Aldur þessa kuldastigs
er 11.800-12.000 BP. Hið íslenska
heiti þess hel'ur verið dregið af
Álftanesgarðinum og nefnt Álfta-
nesstig. Garðinn má rekja þvert yfir
Álftanes, um Bessastaði og í sjó við
Bessastaðanes. Fram undir síðustu ár
mátti sjá hvar garðurinn tók land
handan Kópavogs, yst á Kársnesi, þar
sem bátahöfnin er nú. Aldursgrein-
214