Samvinnan - 01.06.1927, Page 7

Samvinnan - 01.06.1927, Page 7
SAMVINNAN 85 f ur eyja. Þverá hafði brotið sér farveg norðan við bj gð- ’ ina og vestur í Þjórsá. Var illfært úr landi út í Þykkva- bæinn, og auk þess eyðilagði vatnsflaumurinn meginið af engjum þessa bygðarlags. Meðan svo stóð á var nálega ókleift fyrir bændur í Þykkvabæ að ná til Rvíkur eða Eyrarbakka til þungavöruverslunar. Eins og vonlegt var vildu Þykkbæingar reyna að stífla aftur þennan landbrotsós. En kostnaðurinn var þeim um megn. Landið varð að hjálpa. Þetta var gert, en kost- aði langa og harða baráttu við kyrstöðuaflið í sýslunni. En enginn maður beitti sér meira fyrir framkvæmd þessa verks en kaupstjórinn í Hallgeirsey, enginn talaði betur kjark í þá hugdeigu heima fyrir. Enginn sannfærði bet- ur þing og stjórn um réttmæti þeirrar stefnu að bjarga fólkinu í Þykkvabænum frá bersýnilegri uppflosnun held- ur en hann. Það tókst að vinna verkið. Þykkvabænum var bjarg- að og þar sem áin flæddi áður yfir og braut, eru nú blóm- legar engjar. Þykkvibærinn er ekki lengur eyja. Fyrir- hleðslan var brú í land. Bar nú tvent að í einu. Erfiðlegast » gekk að athafna sig við uppskipun í Þykkvabænum, að- staðan þar til muna verri en við Holtsós og í Hallgeirsey. Og eitt vorið hvarf millilandaskipið endanlega frá að skipa þar upp og- fór með vörurnar til Rvíkur. Um sama leyti var „brúin“ bygð til lands. Vagnfært var orðið úr Þykkva- bænum og til kaupstaðanna í vesturátt. Niðurstaðan varð þá sú að deildin í Þykkvabæ vildi, eins og þá var komið, síður treysta hinni dutlungafullu sjóleið. Það voru þess- vegna hinar ytri kringumstæður, sem urðu valdar að því að Þykkbæingar hættu um stund að versla í kauptelagi. En þessi bygð myndi nú í eyði að mestu leyti, ef bændur þar hefðu ekki sýnt hinn mesta dugnað við að byggja torfbrúna miklu yfir Djúpós, og átt þar til aðstoðar aðra menn, ekki búsetta í Þykkvabænum, sem studdu þá drengilega að verkinu. Mun svo verða litið á síðar, af óhlutdrægum mönnum, að kaupmannablöðin hafi litla ástæðu til að kasta steinum að kaupstjóranum í Hallgeirs-

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.