Samvinnan - 01.06.1927, Blaðsíða 17
SAMVINNAN
95
sem þjóðfélagið sjálft er búið að greiða götuna, en gerir
aðeins ráð fyrir heilbrigðri borgaralegri manndáð.
Fyrir nálega fjörutíu árum sá hinn vitri
Skifti við bóndi Einar Ásmundsson í Nesi framtíð-
Þýskaland. arsýn um kaupfélögin. Félag var þá við
hverja höfn. Þau voru öll í bandalagi eins
og ríkin í Sviss eða Norður-Ameríku. Og þetta samband
átti að hafa skrifstofur eða útibú í Englandi, Þýskalandi
og á Norðurlöndum.
Draumur Einars í Nesi rættist að mestu í tíð Hall-
gríms Kristinssonar. Félag var við hverja höfn, og sam-
band milli þeirra. Skrifstofur Sambandsins voru í Eng-
landi og Kaupmannahöfn. En þýsku skrifstofuna hefir
vantað til þessa. Stríðið og hönnungar- Þjóðverja í ófriðar-
lokin gerðu verslun við Þjóðverja lítt fýsilega. En nú er
að verða á þessu mikil breyting. Þýskaland er að kom-
ast aftur í sitt fyrra sæti meðal fremstu iðnaðar- og
verslunarþjóða heimsins. Mjög mikið af þeim vörum, sem
íslendingar fá nú í Khöfn, eru þýskar, með danskri um-
skipan og álagningu. Jafnhliða því sem Þýskaland rétti við
hefir Eimskipafélagið aukið siglingar til Hamborgar og
eftir nýárið er búist við að Goðafoss gangi til Hamborgar
og Hull í hverri ferð og síðan hringferð til helstu hafna
landsins. Nú undanfarið hefir einn af starfsmönnunum á
Hafnarskrifstofu Sís, Óli Vilhjálmsson, bróðir Guðmund-
ar Villijálmssonar framkvæmdarstjóra í Edinborg verið
með annan fótinn í Hamborg til að undirbúa framtíðar-
aðstöðu kaupfélaganna þar. Má búast við að um leið og
hinar beinu ferðir milli íslands og Hamborgar vaxa, verði
opnuð þar skrifstofa fyrír kaupfélögin undir stjóm Óla
Vilhjálmssonar. Um leið og sá þáttur af draumi Einars
rætist, er eftirtektarvert hve lengi, jafnvel hinar bestu
hugsjónir, eru að íklæðast búningi veruleikans.
Árið 1903 byrjaði félagið „Ti’ygð“ lífs-
Tiygð. ábyrgðarstarfsemi í Danmörku. Það var
samvinnufélag og er það enn. Því hefir
vaxið svo fiskur um hrygg, að nú eru trygðir í þvi 158