Samvinnan - 01.06.1927, Blaðsíða 14
92
SAMVINNAN
á viðfangsefninu og síðan hinum glæsilegu framkvæmd-
um Hallgríms Kristinssonar, hversu félagið efldist svo að
segja dag frá degi að f j árhagsstyrk og áliti allra sem til
hektu. Á fáeinum árum breyttu nálega öll kaupfélög formi
sinu og fylgdu þar fordæmi Eyfirðinga. Þá fylgja síðar í
ritinu margar fróðlegar skýrslur um rekstur og þróun fé-
lagsins.
f minningarriti landsímans getur Árni Pálsson um
ivo merkisatburði sem gerst hafi hér 1906, að fslendingar
hafi eignast togara og komið upp heildsöluverslun í Rvík.
Vitaskuld eru þessir tveir atburðir mjög merkir. Én senni-
íega fer það þó svo, þegar aðrir sagnfræðingar koma síðar
til skjalanna, að það þykir stórum meiri atburður er gerð-
ist 1906 norður á Akureyri, er hinn mesti skörungur í
hópi íslenskra verslunarmanna ruddi braut því sjálfseign-
arskipulagi í verslun, sem síðan hefir farið sigurför um
landið. Er þessa atriðis getið hér til að sýna hve undar-
loga seinheppilegir „sagnfræðingar“ samkepnismanna eru
stundum, er þeir athuga viðburði er gerst hafa þeim sam-
tímis.
Þegar athugað er minningarrit Kaupfélags Eyfirð-
inga, kemur rnanni í hug, hvílíkur fengur það væri, ef
hvert félag, a. m. k. hin eldri, létu nú skrá sögu sína með-
an hægt er að ná til þeirra manna.er sjálfir hafa teicið þátt
í atburðunum. Kemur þá einna fyrst röðin að Þingeying-
um. Þeirra félag er elst, og ruddi brautina. í öðru lagi
hefir það haft á að skipa til ýmiskonar starfa heima fyrir
óvenjulega mörgum vel gefnum og einkennilegum rnönn-
um. Fyrsti formaður þess, Jón á Gautlöndum, var einn af
höfuðskörungum í bændastétt, þó að miðað sé við alla 19.
öldina. Og tveir af leiðtogum félagsins, Sigurður í Ysta-
felli og Pétur á Gautlöndum eiu hinir einu bændur, sem
þjóðin hefir fengið í hendur æðstu völd hér á landi. Þess-
ir menn eru aðeins nefndir af því að þeir hafa fengið að-
stöðu til að láta hæfileika sína gæta utanhéraðs. En ef
rituð væri ítarleg og alhliða saga Kaupfélags Þingeyinga,
myndi koma í ljós, að þar hafa verið fjölmargir menn að