Samvinnan - 01.06.1927, Blaðsíða 81
SAMVINNAN
159
gluggarnir snúa móti vestri, að vatninu og bygðinni. Bak
við framhýsi þetta er baðstofa fyrir bæði heimilin, svo og
eldhús. I framhúsinu er enginn reykháfur og þess vegna
hvorki eldstó eða ofn. Þar eru gestastofur, svefnherbergi
og að líkindum kommatargeymsla.
Grænavatn við Mývatn.
Bæjarstæðið er einkar fagurt og bærinn lítur prýði-
lega út á sléttunni við vatnið, þilin hvit og þakið grænt.
Mývatnssveit er þurviðrasöm. Þess vegna er slík timbur-
og torfbygging líkleg til að standa lengi, og húsleki ekki
til muna. En í rigningarhéruðum landsins myndi þvílík
bygging fúna á fáeinum árum, og ekki vera nothæf sök-
um húsleka.
Það er líka lítill vafi á, að framtíðarbæirnir verða ekki
þannig. Aðalhlið framhússins snýr móti vestri. Baðstofan
er jafnhliða með glugga mótí austri og vestrí. Suðurhlið
bæjarins er stafn, gluggafár. Á öðrum bæ i sömu sveit
er nýlegt steinsteypuhús. Þar er aðalhlið móti suðri, og
sólarinnar nýtur prýðilega í öllum herbergjum. í mun
þessara tveggja bæja liggur reynsluþróun tveggja kyn-
slóða. Nú byggja athugulir menn þannig, að sólar njóti
sem allra best, bæði til hlýinda og hollustu.
f öðru lagi er bærinn á Grænavatni mjög stór að
gólfmáli. Ef fátt fólk er í heimili, er dýrt og erfitt að búa
í slíkum bæ. Fólksfáu heimilin nú á tímum þurfa um fram
alt bæ, sem er hlýr, herbergjaskipun hentug og létt að