Samvinnan - 01.06.1927, Side 50

Samvinnan - 01.06.1927, Side 50
128 SAMVINNAN í landinu, en hinsvegar er oft erfitt að gera upp milli frambjóðenda flokkanna innbyrðis og hefir úthlutun þingsætanna valdið talsverðum deilum. Þessi kosningatilhögun hefir ekki orðið vinsæl, og hafa ýmsar tillögur komið fram, um að breyta henni, en ekki hafa þær enn náð fram að ganga. Ennfremur hafa verið gerðar ráðstafanir til þess að sporna við því, að smáir þingflokkar geti myndast í land- inu. — Aukakosningar fara aldrei fram í Danmörku. Hin- ir föllnu frambjóðendur eru skoðaðir sem varaþingmenn. Ef þingmaður deyr eða lætur af þingmensku, þá tekur sá flokksbróðir hans við sætinu, er flest atkvæði hefir fengið í því amti, sem hinn fráfarandi þingmaður var kos- inn í. Efri deild danska þingsins (Landsþingið) er kosin með óbeinum kosningum, en með almennum kosningar- rétti. í Hollandi hefir lengi verið einskonar þingstjórn. Nokkur hluti þjóðarinnar hafði áhrif á stjórn landsins, })egar á þeim tímum, er einveldið ríkti víðasthvar í álf- unni. Það voru að vísu aðeins efnuðu stéttimar, sem réðu, en samt var til vísir, til almenns stjómmálalífs. Á öld- inni, sem leið jókst vald þingsins smátt og smátt og án þess að snöggar breytingar ættu sér stað. Parlamentið enska varð fyrirmyndin, sem Hollendingar reyndu að líkja eftir. Síðan 1922 er fullkomið þingræði með almennum kosningarrétti til neðri deildar, í Hollandi. Kjósendur em hérumbil 50%. Efri deildin er, og hefir lengi verið, kos- in af héraðaþingum, sem svara að nokkru leyti til sýslu- nefndanna hér á landi. Aðeins stjórnin og þingmenn neðri deildar mega flytja fmmvörp. Efri deild verður annað- hvort að samþykkja frumvörpin óbreytt, eða fella þau. En hún má ekki breyta þeim að neinu leyti. Hin hollenska stjórnartilhögun er að sumu leyti ein- stök, og á að rekja rætur sínar til sögulegra viðburða. Aðallinn varð snemma að lúta í lægra haldi, fyrir borg-

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.