Samvinnan - 01.06.1927, Blaðsíða 22
100
SAMVIN. NAN
Fullyrt er í Danmörku, að hver slík árás styrki kaupfé-
lögin þar. Allir dugandi félagsmenn sjá hvernig málstað-
ur milliliðanna er, þegar þeir telja sér nauðsynlegt að
beita slíkum röksemdum, sem hér hefir verið frá sagt.
Félag norrænna hagfræðinga hélt nýlega
Fundur fund í Kaupmannahöfn. Ekki munu þar
hagfræðinga hafa verið fulltrúar frá íslandi. Meðal
í Khöfn. fundannanna voru tveir af þektustu sam-
vinnumönnum Finna og Svía, prófessor
Gebhard og Anders Örne. Eitt af viðfangsefnum fundar-
ins var að ræða um skipulag- verslunarinnar og kostnaðinn
við verslunina. Margar merkilegar upplýsingar um versl-
unarkostnaðinn komu þar fram í ræðum manna ofe skulu
nokkrar hér til færðar. I Danmörku fjölgaði fólki sem
lifði af verslun helmingi meira á árunum 1860—1900,
heldur en sem nam hlutfallslegri fjölgun þjóðai'innar. Á
árunum 1900—1921 fjölgaði verslunarstéttinni enn meir.
Árið 1921 lifði 18. hver maður í Danmörku af verslun.
Árið 1925 sýna hagskýrslur í Danmörku, að í öllu land-
inu voru 67 þús. verslunarfyrirtæki. Af þeim voru 6000
heildsalar og umboðsverslanir, en hér um bil 61 þús. smá-
salar. í Kaupmannahöfn reyndust að vera 80 verslanir
vegna hverra 1000 íbúa, en í minni borgum 29, og í sveit-
um 12. Ef talið er eftir fjölskyldum lætur nærri að ein
verslun sé í Khöfn vegna hverra 10 heimila, en utan
Khafnar eru 13 heimili um verslun hverja.
Samkvæmt dönsku skattaskránum hafa heildsalar þar
í landi til jafnaðar 20 þús. kr. í tekjur, en smásalarnir
6000.
Nú hefir verið rannsakað hvort hin innri samkepni
rneðal kaupmannanna væri nægileg til að halda verðinu
niðri. Og sú hefir ekki orðið raunin. Að vísu eru á ein-
staka stað til kaupmenn sem leitast við að vinna sér álit
með því að setja verðið niður fyrir það, sem alment ger-
ist hjá keppinautum þeirra. En þá verða þeir fyrir barð-
inu á félögum sínum, og í Danmörku hafa smákaupmenn
þrásinnis kært slíka félagsbræður fyrir að selja vörur of
1