Samvinnan - 01.06.1927, Side 11

Samvinnan - 01.06.1927, Side 11
SAMVINNAN 89 Allir landsmenn muna hvílíkan gauragang Rauðasandsfé- Morgunblaðið gerði út af Rauðasandsfé- lagið og laginu þegar það lenti í vandræðum og Morgunblaðið. leystist upp í fyrri kreppunni. Það var ekki sambandsfélag en Sambandið hafði annast ýms viðskifti fyrir það og lánað því nokkurt fé. Þegar Sambandið hvorki gat eða vildi gefa þessa skuld eftir, létu kaupmannablöðin eins og hér væri um einhvern höfuðglæp að ræða. Hver greinin var birt af annari um vonsku Sambandsins og um hættuna sem stafaði af kaup- félögunum. Á einum fjölfömum stað, ekkj langt frá Reykj avík, var Mbl. með grófustu ádeilugreinunum, fest upp í gestastofu hjá þektum samkepnismanni. En hvernig fór á Rauðasandi? Bændur sömdu um skuld sína við Sambandið. Verslunarhús félagsins tók Sambandið upp í skuld sína fyrir sanngjamt verð. Svo leið eitt ár. Rauðsendingar prófuðu kaupmannaverslunina og féll hún ekki vel í geð. Eftir eitt ár byrja þeir kaup- félag að nýju. Sambandið lét þá hafa hús sitt aftur með sama verði og það hafði tekið það. Félagið byrjaði að versla, og skiftir við Sambandið eins og fyr. Slík varð reynslan á Rauðasandi. Dugandi bændur, sem hafa haft myndarlega stjórn á kaupfélagi geta ekki hætt við sam- starfið, þó að eitthvað gangi á móti. En ekki ber alt upp á sama daginn. Fá ár eru liðin síðan eigendur Mbl. höfðu bændur á Rauðasandi á orði sökum fátæktar þeirra. En nú í haust varð eitt af þeim kaupmannafinnum, sem mest lagði í Mbl., gjaldþrota. Bankar og viðskiftamenn tapa á þessari verslun svo að nemur mörgum hundraðum þúsunda, ef ekki miljónum króna. Ef samvinnubændur væru jafn grimmlyndir í bar- áttunni eins og andstæðingamir, þá mundi í málgögnum samvinnumanna ekki ganga á öðru en sigurhrósi yfir vandræðum þessara kaupmanna. Tilefnið var því auð- fengnara þar sem einmitt þetta firma, sem nú er í marg- falt meiri vandræðum, hafði beint lagt fé í blað það sem ofsótti bænduma í Rauðasandsfélaginu. Vitaskuld gera

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.