Samvinnan - 01.06.1927, Side 16

Samvinnan - 01.06.1927, Side 16
94 SAMVINNAN bæ, til mikils gagns fyrir Þingeyinga, til mikillar sæmdar íyrir þá tvo menn sem það á að minna á og væntanlega fordæmi fyrir samvinnumenn annarsstaðar á landinu. Nú í sumar hefir verið bygt hið mikla Heilsuhælið í Heilsuhæli Norðurlands. Það er lang- Kristnesi. stærsta verk hér á landi sem hrundið hef- ir verið af stað aðallega með samtökum manna í einu héraði. Þegar þess er gætt að heilsuhælið gefur vitaskuld aldrei neinn beinan arð, heldur sparar mannslíf, dregur úr þjáningum og bætir heilsu veikra manna, þá er þetta átak enn merkilegra. Þegar Jónas Þorbergsson enduivakti málið fyrir nokkrum mánuðum, var kominn dálítill sjóður, en engum datt í hug að úr framkvæmdum yrði. Hann ritaði nokkrar \ekjandi greinar um málið og var svo heppinn að hitta á hið rétta augnablik. Eyfirðingar og Akureyringar tóku höndum saman. Blað verkamanna og íhaldsmanna þar á staðnum komu til stuðnings. Samvinnumenn höfðu haft forgönguna, en flestir héraðsbúar studdu. Og með pólitisk- um stuðningi alh'a samvinnumanna í þinginu og 3—4 samkepnismanna tókst að koma í gegn fjárveitingu til hælisins, svo að framtíð þess var trygð. Þetta ágæta mál mundi ekki hafa verið leyst, nema fyrir þau miklu og djúptæku uppalandi áhrif, sem Kaup- félag Eyfirðinga hefir haft. Það hefir bætt allan hag ey- fjrskra bænda, bæði efnalega og andlega. Það hefir kent þeim að hugsa stórt, og að margir menn geti unnið stór- virki, ef þeir taka höndum saman. Heilsuhælið í Krist- nesi er glæsilegt tákn þess, hve mikils samvinnuhreyf- ingin getur orkað, þar sem þvilíkir menn eins og þeir Kristinssynir, Hallgrímur og Sigurður, hafa s?tið við stýrið, meðan nýmyndunin var að gerast. í öðrum héruð- um eru sorgleg ný dæmi um hversu fer fyrir almenningn- um, þar sem samvinnan hefir átt ófullkomna leiðtoga, svo að fólkið hefir ekki enn lært að beita kröftum sínum til stórvirkja. í slíkum héruðum getur komið fyrir að sundrung og sveitardráttur eyðileggi hin bestu mál, þar

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.