Samvinnan - 01.06.1927, Page 23

Samvinnan - 01.06.1927, Page 23
SAMVINNAN 101 lágu verði. Niðurstaðan er sú, að samkepnin lækkar ekki vöruverðið. Því merr sem smákaupmönnunum fjölgar, því meiri byrði verður stéttin fyrir neytendur í landinu. Allir verða smákaupmennirnir að lifa, og því meir sem þeim fjölgar, því minni verður velta hvers þeirra. Og að sama skapi verður meiri þörf fyrir hvem einstakan að hækka milliliðsálagninguna. Á þessum fundi komu fram merkilegar Kostnaður við skýrslur um kostnað við tóbakssölu. í tóbakssölu. Svíþjóð er einkasala á tóbaki en í Dan- mörku kaupmannaverslun. í Svíþjóð fá smákaupmenn fyrir að selja tóbak 15% af verði þess, en í Danmörku 25%. í Svíþjóð eru tóbakssalarnir mun færri en í Danmörku. f Svíþjóð eru 313 menn um hverja smá- sölubúð, en í Danmörku 130. Hin mikla smásalaálagning liefir orðið til þess að tóbakssölum hefir fjölgað mjög mikið í Danmörku. f Khöfn einni eru yfir 600. En sam- kvæmt skattaskrám eru tekjur þeirra lægri en annara smákaupmanna, til jafnaðar liðug 4 þús. kr. ái'lega, en sumir hafa miklu minna. Samkvæmt opinberum skýrslum hefir Bóksalaálagning komið í ljós, að bóksalar í Danmörku í Danmörku. hafa um 11 þús. kr. í meðalárstekjur. Hafa engir smákaupmenn meiri tekjur að frátöldum vínkaupmönnum og lyfsölum, enda fá danskir bókakaupmenn um 33—40% af andvirði bókanna. Má því segja, að á fáum sviðum sé meiri þörf að kaupfélögin grípi inn í, til að lækka verðið, heldur en einmitt í verslun með bækur. Þing Bandaríkjanna hefir ákveðið að land- Bandaríkin og búnaðai'ráðuneytið í Washington skuli samvinnan. stofna sérstaka deild til að safna fræðslu um samvinnumál og veita leiðbeiningar. Skrifstofa þessi fær til umráða hér um bil eina miljón króna árlega. Danskur maður, Christensen að nafni, var gerður að forstöðumanni þessarar skrifstofu.

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.