Samvinnan - 01.06.1927, Page 45

Samvinnan - 01.06.1927, Page 45
SAMVINNAN 123 undir þj óðaratkvæði, og hann er skyldur að láta fresta framkvæmd laga, ef þriðjungur þingmanna krefst þess, og láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um þau ef tutt- ugasti hluti kjósenda æskir þess. Ennfremur getur tí- undi hluti kjósenda krafist þess, að stjórnin leggi frum- varp fyrir þingið, og að lög séu borin undir atkvæði þjóð- arinnar. Eins og á Frakklandi voru öll sérréttindi einstakra manna afnumin og jafnfi'amt ákveðið, að allir þýskir borgarar skyldu vera jafnir fyrir lögunum. Hin þýska þingstjórnartilhögun er því frjálslegri en í flestum öðrum löndum. Völdin eru lögð meira í hendur þjóðarinnar, en hjá nokkurri annari stórþjóð. En til þess að tryg-gja það að þingið afgreiddi ekki lögin í flaustri og undirbúningslítið, var sett á stofn „Ríkisráð“, sem svarar að nokkru leyti til Sambandsráðs keisarastjórnarinnar. Ríkisráðið er einskonar efri deild þingsins. I því eiga sæti 66 fulltrúar fyrir hin 18 ríki í sambandinu. Gerðar eru ráðstafanir til þess að tryggja smáríkjunum áhrif gagnvart stærri ríkjunum í sambandinu. Þannig hefir Prússland aðeins 26 sæti í Ríkisráðinu, þó að Prússar séu meir en helmingur allra Þjóðverja. Ríkisráðið hefir annað snið en lávarðadeildin enska, og efri deildir flestra annara þinga. Enska fyrirmyndin, að efri deild sé einskonar hemill á hina þjóðkjörnu neðri deild, hefir víðasthvar rutt sér til rúms, en á Þýskalandi er Ríkisráðið einskonar undirbúningsdeild fyrir þingið. Stjórnin verður að leggja öll frumvörp fyrst fyrir það, og ef það felst á frumvörpin, er stjórnin skyld að leggja þau fyrir þingið. Ef það ræður frá að þau séu lögð fram, á stjórnin að skýra þinginu frá því, en hún hefir samt rétt til þess að flytja þau. Ríkisráðið er ekki svo sterkur hemill, að það geti hindrað gerðir þings og stjómar til mikilla muna, en tryggir hinsvegar betri undirbúning málanna. I Þýskalandi eru margir stjórnmálaflokkar, og eng- inn einn flokkur hefir fengið algerðan meirihluta. Stjóm-

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.