Samvinnan - 01.06.1927, Page 52

Samvinnan - 01.06.1927, Page 52
130 SAMVINNAN leiksoppur í hendi leiðtoganna, og þegar fjöldi fólks kann ekki að lesa, er hætt við að pólitísk mentun sé á lágu stigi. Spánverjar reyndu með stjórnarskrá sinni frá 30. júní 1876 að tryggja hinum mentuðu stéttum áhrif á störf þingsins. Neðri deild er kosin með almennum kosningar- rétti (aðeins karlmenn mega kjósa), en efri deild var skipuð, auk nokkurra aðalsmanna, fulltrúum fyrir háskóla, xúsindafélög og stjórnir borga og héraða. Konungur gat f jölgað þessum fulltrúum ef þörf gerðist til að halda aðals- mönnunum í deildinni í skefjum. Þess má ennfremur geta að kjörskylda var lögleidd fyrir alla kjósendur til neðri deildar: Þetta hefir þó haft litla þýðingu. Verulegt pólitískt almenningsálit hefir ekki orðið til á Spáni og flokkaskifting hefir verið á ringulreið. Kjósendur hafa greitt atkvæði, af því að þeir voru skyld- aðir til þess, en þeir hafa verið áliugalausir, og oft skoð- analausir, og látið foringjana og embættismennina teyma sig að kjörborðinu, og kosið eins og þeim þóknaðist. Þingstjórnin varð því aldrei nema nafnið eitt á Spáni, og þegar erfiðir tímar gengu yfir landið eftir lok heims- styrjaldarinnar, komst los á alt stjómarfar, og endirinn varð sá að nokkrir herforingjar gerðu uppreisn haustið 1923 og hrifsuðu völdin í sínai’ hendur. Hin gamla stjórn- arskrá er að nafninu til ennþá í gildi, en í rauninni er fullkomin hervaldsstj óm á Spáni og þingið áhrifalaust, sem stendur. Það hefir verið rofið, og fundum þess frest- að um óákveðinn tíma. Á Ítalíu gekk þróunin í svipaða átt og á Spáni. í kosningalögum frá 1882 var ákveðið að allir kjósendur yrðu að vera læsir. Þetta varð til þess, að aðeins nokkur hluti fullorðinna karlmanna fékk kosningarrétt. Árið 1919 var lögleiddur almennur kosningarréttur og hlutfallskosn- inga.r Vegna þess hve margir kjósendur voru hvorki læs- ir né skrifandi, voru listamir ekki merktir með bókstöf- um eða nöfnum flokkanna, eins og annarsstaðar tíðkast, heldur voru þeir auðkendir með m e r k j u m flokkanna, myndum af einhverjum hlutum. Ennfremur var kjósend-

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.