Samvinnan - 01.06.1927, Side 87
SAMVINNAN
165
Kaupangshúsið er að mörgu leyti fyrirmynd. Það er
vandað, myndarlegt tilsýndar, og þægilegt til íbúðar. Það
ætti að geta staðið nokkrar aldir, og fullnægt þörfum stór-
bónda á miklu höfuðbóli. Samt má nú þegar, eftir svo fá
ár, sjá einn galla á þessum dýra og góða bæ, auk þess
sem áður er nefnt um viðhorf til sólar. í Kaupangi hefði
hús í sveitabæjastíl notið sín prýðilega. Ein hæð með
þrem bustum móti suðri eða suðvestri, og grænt torfþak
á, myndi hafa átt framúrskarandi vel við sveitina. Fjalla-
hlíðarnar báðum megin við Eyjafjörð minna mjög á bæj-
arþil með háum bustum. Til að fá samræmi milli bæjanna
og náttúrunnar, verður að beygja sig fyrir byggingarstíl
iiéraðsins. Bæjastíllinn hefir auk þess þann höfuðkost,
fyrir efnalitla menn, að þá bæi má reisa á löngum tíma,
taka einn stafn fyrir í einu. Mjög efnaðir bændur geta
staðið við að gefa jörð sinni í einu bæ sem kostar 40 þús.
Ef hann er svo vandaður, að geta staðið nokkrar aldir, er
ekki hægt að segja, að slíkur bær sé dýr, þegar til lengd-
ar lætur. En þó verður hver sem byggir slíkan bæ, að geía
eftirkomendum sínum meginið af andvirði þvílíks bæjar,
því að óhugsandi er að búskapurinn borgi vexti og afborg-
anir af tugum þúsunda í andvirði sveitabæjar.
Ósanngjamt væri að neita því, að mikið hefir verið
reynt, á síðasta mannsaldri, að gera til að bæta og fegra
sveitabæi, þó að mikið sé þar enn ógert.'En umhverfi bæj-
anna hefir lítið breyst til batnaðar, nema á fáum stöðum.
1 rigningahéruðum er oft forblautt svað kringum bæinn,
bæði ljótt og óholt. Á einstaka stað hafa smekkmenn gert
skrúðgarða við bæi sína með skrautjurtum, grasblettum
og trjám. Þetta er allrar virðingar vert. En í þessu efni,
eins og með byggingarstílinn vantar ennþá festu, og að
taka svo sem vera ber tillit til náttúru landsins. Yfirleitt
má segja að menn hafi um of líkt eftir skrúðgörðum við
kaupstaðarhús.
Hér á landi er ekki hægt að hafa skrautjurtir í görð-
um nema með mjög mikilli elju og vinnu. Á flestum
sveitaheimilum er ekki vinnuafl afgangs til slíkra hluta.