Fréttablaðið - 29.08.2009, Blaðsíða 1
HELGARÚTGÁFA
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI29. ágúst 2009 — 204. tölublað — 9. árgangur
Kreppan er lær-
dómur fyrir okkur
SÁLGÆSLA 30
ÍSLENDINGAR 24
Sameining emb-
ætta á dagskrá
VIÐTAL 34
35%
72%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í maí 2009 – júlí 2009.
Fréttablaðið er með 106%
meiri lestur en Morgunblaðið
Allt sem þú þarft...
SÉRBLAÐ Í DAG
EFNAHAGSMÁL Hreiðar Már Sigurðs-
son, fyrrverandi forstjóri Kaup-
þings, segir að vaxtastefna Seðla-
banka Íslands sé með ólíkindum.
Hann fullyrðir að stýrivaxtalækk-
un myndi styrkja gengi krónunnar
með þeim rökum að lægri vaxta-
greiðslur til erlendra aðila bæti
viðskiptajöfnuð landsins og geri
Seðlabankanum auðveldara um
vik að safna gjaldeyrisforða sem
aftur styrki gengið.
„Peningastefnunefnd Seðlabank-
ans er á villigötum. Misskilningur-
inn er fólginn í því að háir vextir
laði fjármagn til landsins. Það
hefur enginn tiltrú á því að
íslenska kerfið standi undir þess-
um háu vöxtum og þó að vextirn-
ir væru helmingi hærri fengjum
við ekki fjárfestingar í íslenskum
krónum,“ segir Hreiðar. „Þetta
snýst allt um tiltrú, og hún er ekki
fyrir hendi.“
Spurður til hvaða aðgerða þurfi
að grípa til að taka á efnahags-
vandanum segir Hreiðar að lækka
eigi stýrivexti í tvö til fjögur pró-
sent án tafar. „Þessi vaxtalækkun
myndi minnka halla ríkissjóðs þar
sem vaxtagreiðslur íslenska ríkis-
ins til erlendra aðila myndu drag-
ast verulega saman.“ Erlendir aðil-
ar eiga nú um 500 milljarða króna
af íslenskum ríkisskuldabréfum
og innistæðum í ríkisbönkunum
og Hreiðar telur auðsætt að hvert
prósentustig í lækkun vaxta vegi
mjög þungt.
Hreiðar vill að verðtrygging
verði afnumin úr íslensku fjár-
málakerfi. „Þrátt fyrir að verð-
trygging sé áhugaverð stærðfræði-
leg lausn á vanda ríkis sem býr
við háa verðbólgu gerir hún stýri-
vexti bitlausa auk þess að færa alla
áhættu og kostnað af verðbólgunni
yfir á herðar lántakanda.“
Hreiðar segir að öllum hljóti
að vera ljóst að breyta þurfi
öllum erlendum lánum einstakl-
inga í krónur og sama eigi við
um erlendar skuldir fyrirtækja
sem hafi einungis tekjur í krón-
um. Með þessu náist jafnvægi í
efnahagsreikninga bankanna og
taprekstri þeirra verði snúið við.
Hreiðar segir að Íslendingar
verði að horfa til þeirra aðgerða
sem aðrar þjóðir noti til að auka
traust á fjármálamörkuðum og
lækka greiðslubyrði lána bæði
hjá fyrirtækjum og einstakling-
um. „Nálægt því alls staðar, utan
Íslands, hafa seðlabankar verið
með mikil inngrip og vextir verið
lækkaðir niður í nánast ekki neitt.
Þessar aðgerðir hafa virkað.
Ísland verður að grípa til sömu
aðgerða til þess að milda áhrif
kreppunnar.“
- shá
Hreiðar Már segir
vaxtastefnu vitleysu
Afnám verðtryggingar, lækkun stýrivaxta og breyting erlendra lána í krónur
eru nauðsynlegar efnahagsaðgerðir að mati Hreiðars Más Sigurðssonar.
Opið til18
Með miða aðra
leið til útlanda
matur
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]ágúst 2009
Tilraunaeldhús Yfirkokkar Fiskfélagsins deila lundauppskrift staðarins með lesendum.
SÍÐA 2
ÍS
LE
N
SK
A
/ S
IA
.I
S
/N
AT
4
40
74
1
0/
08
Haustborð í rauðuÓlöf Jakobína Ernudóttir innanhúss-arkitekt leggur á haustborð og skreyt-ir með rauðum ylliberjum. SÍÐA 10
TÓNLIST „Þetta væri ekki hægt
nema vegna þess að partur af
Rúnari er með okkur,“ segir Bubbi
Morthens.
Rokksveitin GCD ætlar að koma
saman á Ljósanótt í Keflavík til
að heiðra minningu fyrrum félaga
síns Rúnars Júlíussonar sem lést
á síðasta ári. Yfirskrift viðburðar-
ins verður „Óður til Rúnars“. Júlí-
us, sonur Rúnars, mun fylla skarð
hans bæði sem bassaleikari og
söngvari. - fb / sjá síðu 66
GCD spilar á Ljósanótt:
Sonur Rúnars í
spor föður síns
Í STÍL VIÐ SÓLARLAGIÐ Hátíðin Í túninu heima var sett í Mosfellsbæ í gærkvöldi. Varðeldur var tendraður í Ullarnesbrekkum og brekkusöngur var sunginn. Bergvin Snær
Alexandersson skartaði bleiku hári í tilefni kvöldsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ROKKABILLÍ
ENDURVAKIÐ
Í REYKJAVÍK
TÍSKA 46
BRYNHILDUR GUÐJÓNSDÓTTIR
UM FRIDU KAHLO OG DULAR-
FULLAN HEIM INDJÁNANNA
VIÐTAL 22
SÍÐASTI KENNEDY-
BRÓÐIRINN BORINN
TIL GRAFAR
ÚTLÖND 26
INNLIT Á
ÞINGEYRI
Simbahöllin orðin
að kaffihúsi
HÖNNUN 32