Fréttablaðið - 29.08.2009, Page 28
28 29. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
Sólríku sumri
senn að ljúka
Dagarnir voru hver öðrum notalegri þetta sumar, sem nú er að
renna sitt skeið. Nú verður þess ekki langt að bíða að haustið
nái yfirhöndinni. Því er tilvalið að kalla fram minningar sum-
arsins og skoða ljósmyndir Gunnars V. Andréssonar, sem fang-
aði mörg augnablikin með myndavélinni í sumar.
EINBEITING OG MÝKT Borgarbúar spreyta sig á kínverskri leikfimi á Ingólfstorgi og láta nærveru ljósmyndar-
ans ekki slá sig út af laginu.
Í GRÖSUGUM ÚTHAGA Þessi hross minna helst á flóðhesta í sefi, svo hátt er grasið í kringum þau, sem er
glöggt dæmi um áhrif góða veðursins í sumar.
Á FERÐINNI Kettir eru dularfullar verur sem fara sínar eigin leiðir. Hver
veit hvert þessi Vesturbæjarköttur var að fara, annar en hann sjálfur?
VIÐ INGÓLFSTORG Ferðamenn voru áberandi á götum borgar og bæja
í sumar. Þessir ferðamenn gæddu sér á nesti sínu, umkringdir sögu-
frægum húsum við Ingólfstorg.
VINÁTTA Hvolpinn Tarú munar ekkert um að þvo vini sínum, Finni Má, á bak við eyrun og uppsker að
launum skellihlátur stráksins.
SIGLINGAR Í HÖFNINNI Sjómannsblóðið ólgaði í æðum þessara ungu
drengja sem æfðu siglingar í Hafnarfjarðarhöfn í sumar.
EFTIRMINNILEG STUND Katla og Bettý kenna börnum sínum að hjóla á blíðviðrisdegi í Laugardalnum í
Reykjavík.