Fréttablaðið - 29.08.2009, Page 62
matur
… TEBOLLA í dimmunni á kvöld-
in. Hvað hljómar betur en að fara í
þægileg föt, hella upp á sjóðheitt te
og skríða upp í sófa á meðan vind-
urinn feykir laufunum af trjánum.
Mikið úrval er af ýmsum tetegundum
í verslunum og þá er einnig hægt
að prófa sig áfram með jurtir úr
íslenskri náttúru.
… HAUSTLAUTAR-
FERÐ. Undirbúið ferð-
ina vel því líklega verð-
ur þetta sú síðasta á
þessu ári. Tínið ýmislegt
góðgæti til í stóra körfu
og gleymið ekki mjúku
teppi til að sitja á, klæð-
ið ykkur vel því vindur-
inn er napur, veljið síðan
góðan áfangastað og
skundið í lautarferð.
VIÐ MÆLUM MEÐ…
… EFTIRRÉTTUM í sniðugum
ílátum. Góð hugmynd getur verið
þegar búið er að gera girnilegan
eftirrétt að bera réttinn fram í ílátum
sem ekki eru hugsuð til framreiðslu.
Eitt ráðið er að setja réttinn í blóma-
vasa sem sjaldan er notaður, en muna
verður að hreinsa hann vel áður en
rétturinn er borinn fram.
… REYNIBERJASKREYT-
INGU í eldhúsið. Nú fara haust-
litirnir bráðlega að ríkja úti í náttúr-
unni og þá er gaman að bregða sér
í göngutúr um Reykjavík og lauma
nokkrum reyniberjaklösum í vasann
á leiðinni til að skreyta heimilið.
// DALE CARNEGIE NÁMSKEIÐIÐ
// LEIÐTOGAÞJÁLFUN FYRIR STJÓRNENDUR
// ÁRANGURSRÍK SALA
// ÁHRIFARÍKAR KYNNINGAR
// FRAMHALDS DALE CARNEGIE NÁMSKEIÐ
// VINNUSTOFUR
// FRÍR KYNNINGARTÍMI
// LEIÐTOGAÞRÓUN // ÁRANGURSRÍK SALA // SKULDBINDING STARFSMANNA
// BETRI FERLAR // ÞJÓNUSTA // ÁHRIFARÍKAR KYNNINGAR
// NÁÐU FRAM ÞVÍ BESTA
–
„Í síbreytilegum nútímanum getur verið erfitt að hafa sjálfs-
traust til að takast á við allar þær breytingar sem verða á ferl-
um, tölvukerfum og vinnulagi. Við vildum aðstoða okkar fólk
við að aðlagast breyttu umhverfi og stuðla að áframhaldandi
velgengni þeirra í starfi.
Á námskeiðinu unnu starfsmennirnir hagnýt verkefni sem
nýttust beint í starfi jafnóðum og þau voru unnin. Námskeiðið
var jafnframt mjög krefjandi þar sem verkefnin voru ögrandi
og gera miklar kröfur til þátttakenda. Það var því gríðarlega
stoltur hópur sem kynnti árangur sinn fyrir stjórnendum í lok
námskeiðsins. Mikil viðhorfsbreyting átti sér stað í hópnum
og sjálfstraust og starfsánægja óx í kjölfarið.
Vel þróað námsefni og gríðarlega hæfir þjálfarar er það sem
gerir námskeið hjá Dale Carnegie að góðri fjárfestingu.“