Andvari - 01.01.1977, Blaðsíða 33
andvari
EGILL GR. THORARENSEN
31
lega, licldur mundi vaxa þar upp myndarlegt þorp, þar sem margar fjöl-
skyldur gætu lifað góSu lífi.
Áður en ég kom að Sigtúnum, var mér ekki kunnugt um nokkurn
mann, er svo mikið sem dreymdi um, að við brúna gætu lifað fleiri menn
en Þorfinnur og fjölskylda hans. En þó að starfsemi mín þar væri allt of
smávaxin, var hún þó nóg til þess, að menn sem árum saman höfðu sveim-
að á þessum slóðum með lokuð augu fóru nú að glenna upp skjáina og
virða umhverfið fyrir sér, — og meira að segja fóru Reykvíkingar að fal-
ast eftir lóðum á Selfossi."
Daníel Daníelsson skrifar þessa sjálfsævisögu 20 árum eftir að hann
settist um stundar sakir að á Selfossi, og þá er þar risið upp þorp með
150 íbúum. Hann segir einnig frá því, hvernig verzlunarhögum var
háttað á Suðurlandi, meðan hann dvaldist við hrúna. ,,Þá störfuðu tvö
kaupfélög eystra,“ segir hann, „annað á Stokkseyri, en hitt á Eyrarhakka,
og þeir bændur, sem voru bundnir þessum félögum, sóttu nauðsynjar
sínar þangað, en aðrir fóru lestaferðir til Reykjavíkur. Bændur austanfjalls
hófu lestaferðir með lokum (11. maí); þá fóru þeir skreiðarferðir suður
með sjó, og um Jónsmessuleytið fóru þeir aðra ferð eftir grásleppu og
trosi og þriðju ferðina í kauptúnin austanfjalls eða til Reykjavíkur að
sækja kornvörur og aðrar nauðsynjar. Það mátti því kalla, að þennan
tíma árs væri við brúna iðandi kös af mönnum, hestum, hundum og
vögnum. Flutningahílar sáust þá ekki fyrir austan, en aftur á móti voru
fólksbílar þá farnir að ganga austur um sveitir, og með þeim jókst greiða-
salan við brúna.
Fyrra árið sem ég bjó í Sigtúnum var ég þar leiguliði, en seinni hluta
vetrar (1918) keypti ég húsið og 17 dagsláttur af landi. Og um sumarið
sama ár keypti ég Tryggvaskála og lét breyta austurenda hússins, svo að
þar gat Útibú Landsbankans hafið starfsemi sína um haustið. Smáherbergi
1 vesturenda hússins leigði ég út fyrir Landsímastöð, og loks tók Guð-
^undur Guðmundsson, sem var gjaldkeri útibúsins, öll önnur herbergi
hússins á leigu. í Sigtúnum rak ég greiðasölu og smáverzlun eins og áður
« getið."
Tryggvaskáli hefur ekki fengið góð eftirmæli sem landsbankasetur