Andvari - 01.01.1977, Qupperneq 40
38
GUÐMUNDUR DANÍELSSON
ANDVARI
tíma. Minnst sex tímar austur hjá þeim sem voru í Reykjavík. Engin
ýtuhjálp, nema við Kleifarvatn og frá Selfossi - Hveragerði. Látum krana-
bíl fara á undan að brjóta leiðina nú nokkra daga. Án hans mundi tæp-
lega komizt. Reykjavíkurbílar koma aftur austur í nótt.“
„Þú skalt ekki halda, að þetta sé versti dagurinn," segir Helgi. „Þetta
er meira að segja góður dagur miðað við suma aðra.“
„Eg þarf ekki um það að spurja, það hefur orðið milcil hreyting á
bílakostinum ukkar?" segi ég við Helga Ágústsson í febrúar 1961.
„Ojá, fyrsta ár Mjólkurbúsins, 1930, fluttu aðeins tveir bílar mjólk-
ina til búsins, hálft annað tonn hvor. En til þess að flytja vörur búsins
suður voru notaðir tveir sendiferðabílar, yfirbyggðir „fargóar", ¥\ tonns
hvor.“
Svo sem fram befur komið fyrr í þessari ritsmíð, átti Egill Thoraren-
sen engan þátt í byggingu fyrsta búss Mjólkurbús Flóamanna. Áætlað
var, að það gæti tekið á móti þremur milljónum mjólkurlítra á ári. Fyrsta
starfsárið, 1930, bárust því ein milljón tvöhundruð og sextíu þúsund kg
mjólkur, en snemma næsta árs varð Egill formaður stjórnarinnar, og tók
ungviðið þá beldur en ekki vaxtarkipp, svo að á fáum árum sprengdi
það af sér allar framleiðsluáætlanir, búsið sjálft og vélakosturinn önnuðu
ekki verkefni sínu, og kom þar um síð, að Egill fyrirskipaði að brjóta nið-
ur búsið og byggja annað nýtt. Urn þessa dagskipan foringjans varð mik-
ill styr. „Og sennilega befði enginn maður annar en Egill Tborarensen
komið því mál fram,“ segir Jörundur Brynjólfsson fyrrv. alþingismaður
í minningargrein um Egil látinn. Bygging nýja mjólkurbúsins bófst 1954.
Það var byggt í áföngum, og voru einstakir byggingarblutar teknir í notk-
un jafnóðum og frá þeim var gengið, ásamt tilbeyrandi vélum, og voru
þær sóttar til margra landa, og ekki litið við öðru en því, sem bezt og
fullkomnast þekktist í Evrópu á sviði mjólkuriðnaðarins. Arkitektinn var
Skarpbéðinn Jóhannsson, byggingarmeistarinn Kristinn Vigfússon, staðar-
smiður Selfoss, mjólkurbússtjórinn Grétar Símonarson. Endanlega lauk
þessari framkvæmd fyrri hluta árs 1960.
Um þetta þrekvirki Egils farast Þorsteini Sigurðssyni bónda á Vatns-
leysu eftirfarandi orð:
„Af binu nýja Mjólkurbúi Flóamanna befur farið mikið orð, bæði
innanlands og utan. Eg veit ekki betur en framámenn í landbúnaðar-