Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1989, Side 83

Andvari - 01.01.1989, Side 83
ANDVARI ÓSTÝRILÁTUR OG BLJÚGUR 81 una við fyrra bindið, bréfin til Þorleifs Gunnarssonar eru þar í heilu lagi, og dagbókarkaflarnir eru góðra gjalda verðir, svo langt sem þeir ná. En í síðara bindinu, eins og ég vék að áðan, lítur helzt út fyrir að stefnan hafi verið sú að búa til bók sem væri nokkurnveginn gerðarleg í hendi með sem allra fæstum lesmálssíðum. Nú er það auðvitað að Þórbergur verður aldrei kannaður „í botn“ (ef svo fávizkulega mætti taka til orða) af prentuðum bókum einum saman, rýnendur munu ævinlega verða að grípa til handrita hans meðfram. Eigi að síður er full ástæða til að gefa út töluvert af óprentuðum ritum hans. Dagbækur hans eru ómetanleg heimild. Varla er von að þær verði gefnar út í heilu lagi um sinn, en betra væri að gefa út einhver tímabil í samhengi heldur en slitrur héðan og þaðan. Dagbókin frá 1. janúar 1914 til 19. apríl 1916, til dæmis, er stór bók með miklu efni. Það hefði meira gildi að gefa út þá dagbók í heild, heldur en smákafla frá ýmsum tímum. Þar að auki er sú bók frá mjög „krítísku“ tímabili í ævi Þórbergs, svo sem vikið hefur verið að framar í þessu greinarkorni. Bréfritarinn Þórbergur er að vísu all-vel kunnur, og mætti raunar segja að Iengi framan af hafi höfundskapur Þórbergs notið sín bezt í því formi. Eigi að síður er alveg sjálfsagt að safna bréfum hans og gefa út í samhengi eftir því sem hægt er. Þetta er auðvitað sagt í þeirri trú að Þórbergur sé merkilegur höfundur, sérstakt og sérkennilegt eintak í íslenzku mannlífi og menntalífi, höfundur sem vert sé að kynnast sem bezt og vita sem mest um. Vona ég að fáir beri á móti því nú orðið. Útgefandi hefur ritað formála að þessum bókum, og er formáli seinni bókarinnar all-Iangur og efnismikill. Er ýmislegt fróðlegt í þeim formálum. Líklega veit enginn maður meira um óprentuð handrit Þórbergs Þórðarsonar en Helgi M. Sigurðsson. En mér virðist að hann hneigist til að setja fram staðhæfingar um Þórberg sem orka nokkuð tvímælis eða eru jafnvel eins og út í hött. „Þórbergur var fremur einrænn maður,“ segir í formála fyrra bindis (bls. 9). Og „hann naut sín bezt í einrúmi með penna í hönd“ (svo!). Slíkar staðhæfingar eru varasamar, enda virðist Þórbergur hafa verið töluverð félagsvera, og leitað eftir félagsskap bæði fyrr og síðar, hversu mikla áherzlu sem hann leggur á ofvitahátt sinn í skemmtibókum handa almenningi. Næsta málsgrein formálans lýsir því reyndar að Þórbergur átti fjölda kunningja. Margt bendir hinsvegar til þess að kjörin hafi einangrað Þórberg um tíma, og neyðin sett á hann mark sem ekki varð afmáð með öllu síðar meir. ,,A þessum árum,“ segir útgefandi, „var æðsta stefnumark hans að verða „fullkomnari maður“ eins og hann orðaði það, og átti þá við greind og víðsýni.“ (1,11.) Rétt kann það að vera. En átti hann ekki við fleira, t.d. og ekki sízt, jafnvægi og sálarstyrk? Það er mjög vafasöm alhæfing að Þórbergi sem rithöfundi hafi ávallt verið 6
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.