Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1999, Side 157

Andvari - 01.01.1999, Side 157
ANDVARI ENDURFÆÐING HARMLEIKS 155 hvað ef tilfinning fyrir fegurð eða ljótleika verður aldrei mæld? Felst hún kannski ekki í efninu heldur hinu ósýnilega? Núna er mér ljóst að fegurð melsins fólst ekki í honum sjálfum heldur var hún fyrir utan hann. Svona er fegurðin og eðli hennar. Hún var ekki í melnum heldur í hug- mynd sem ég gerði mér af honum og kannski verður hún í því sem ég dreg fram í orðum ef ég vanda mig. Á þessu sést það sem ég hef oft sagt að fegurð hlutarins er ekki í honum sjálfum, ekki í hugmyndinni sem hann sprettur af eða þeirri sem maður gerir sér af honum heldur í lönguninni til að sjá hann í réttu ljósi. Fyrir bragðið er fegurðin ekki sjálfstæð heldur í mátulegri fjarlægð frá því sem hugleitt er. Það er að segja í meðvitundinni og hæfileikanum til að njóta hennar sem viss sannleika. Aðeins með þessu móti geta allir notið hennar, háir sem lágir, leikir sem lærðir. Jafnvel dýr og fuglar skynja hana, gleðjast yfir henni eða hryggjast. (104-105) Er það í fegurð af þessu tagi sem hægt er að lifa hugsunina um listina séða frá sjónarhóli lífsins? Endurfæðing harmleiks í hugsun um frostmorgna bernskunnar og hvernig þeir morgnar eru „það fegursta í heiminum, hérna á þessum stað, ef minningin er rétt, trúverðug og hrein með sama hætti og andvarp dagmálanna“ gefur skáld lesanda hlutdeild í ósk sinni: Hann vildi geta litið hlutlaust á æskustöðvarnar „eins og listaverk sem á ekkert skylt við annað en það sem vaknar við samruna þess sem horfir og þess sem horft er á“ (393). En hvernig verður ósk af þessu tagi að veruleika? Felast mörk lífs og listar kannski í fullkomnu nafn- leysi? Skáld sem notar rétt nöfn, segir maðurinn, syngur fljótt sitt síðasta. Skáldið sem býr þau til getur aftur á móti vænst þess „að lifa frásögn sína eins og hættulegt slys í orðum og stíl“. Sú list, segir maðurinn ennfremur, er ekki byggð á ótta heldur er hún „leit að þeim samruna sem skáldið veit ekki hver er“ (392). Hvort er hættulegra slys, listin eða lífið? getur lesandi spurt og haldið áfram að nálgast óskiljanleg en um leið skapandi mörk, líkt og köld vatns- gusa sé lífið og sólskin næturinnar skáldskapurinn um það. Er það kannski hæfileikinn til að njóta fegurðarinnar sem viss sannleika sem gerir skáldi kleift að lifa í orðum og stíl hugsunina um listina séða frá sjónarhóli lífsins? En hver er sannleikurinn ef fjarlægðin sem þessu skáldi er hugleikin - hún sem er skilyrði hæfileikans að njóta fegurðar af þessu tagi - aðskilur mann frá öllu því sem maður trúir á og þráir í lífinu? Er maðurinn í lífinu fugl, hugsi maður um listina séða frá sjónarhóli lífsins? Um föður sinn, móður, skáldskap þeirra beggja og harminn sem skilur veruleikann frá skáldskapnum segir maðurinn:
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.