Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1958, Page 18

Andvari - 01.01.1958, Page 18
14 Níels Dungal ANDVARI utan af Árskógsströnd. Hann heimsótti lækninn og sagðist vera kominn í þeim erindum að vita, hvort hann gæti ekki látið nýja þvagblöðru í konuna sína. Hann hafði heyrt, að læknirinn væri nýkominn utan frá Danmörku og að hann hefði haft með sér tvær blöðrur. Nú stæði þannig á með konuna sína, að hún ætti erfitt með þvaglát, alltaf vildi verða eitthvað eftir, svo að líklega væri blaðran orðin ónýt í henni og sér hefði því dotlið í hug, hvort læknirinn vildi ekki láta aðra af hlöðrunum í hana. Menningarlíf á Akureyri. Þegar Guðmundur Hannesson kom til Akureyrar, voru þar fyrir þrír nienn, sem lyltu þessu litla þorpi frá því að vera lítilfjörlegt þorp upp í að vera menningar- og framfarastöð. Þessir menn voru: Séra Matthías Jochumsson, Páll Briern amtmaður og Klemenz Jónsson sýslu- rnaður. Allt voru þetta mikilhæfir menntamenn, hver hafði sín áhugamál og auðvitað kynntist Guðmundur Hannesson þeim öllum, því að áhugi hans náði alla tíð langt út yfir læknis- fræðina. Páll Briem hafði.mikinn áhuga fyrir framförum í land- búnaði og trjárækt og honum er það mikið að þakka, hve fagur trjágróðurinn er orðinn á Akureyri nú, en fyrir þá sök er Akur- eyri einhver fegursti bær landsins. Ræktunarstöðin mun og fyrst hafa orðið til í heila Páls Briems, svo að Akureyri á þeinr manni rnikið að þakka. Klemenz Jónsson var mikill dugnaðar- og fram- kvæmdamaður, beitti sér fyrir vegalagningu um Eyjafjörð og hafnargerð á Akureyri og hafði áhuga fyrir ýmsum menningar- framförum, auk þess sem hann hafði áhuga fyrir sagnfræði og var vel ritfær. En oftast mun G. H. þó hafa hitt séra Matthías. Þótt ólíkir væru, voru þessir tveir rnenn að vissu leyti andlega skyldir. Báðir voru þeir fæddir heimsborgarar, sem höfðu áhuga fyrir og fylgdust með öllurn andlegum hreyfingum í mennta- og menningarlífi mannkynsins, hvar sem var í þeim stóra heimi, og það þótt báðir sætu úti á yzta hjara veraldar, fjarri öllum mcnningarmiðstöðvum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.