Andvari - 01.01.1958, Síða 36
32
Níels Dungal
ANDVARI
8. AtkvæSaþungi hvers goða á alþingi fer eftir tölu kjósenda
hans. Haíi fullur helmingur kjósenda landsins sagt sig í þing
með einum goða, ræður hann að lögurn úrslitum allra þingmála.
9. Nú missir goði % þingmanna sinna, og er hann þá af
goðorðinu, en annar kosinn í hans stað.
Með þessum breytingum vildi G. H. skapa meiri festu í
stjórnarfarinu, gera þing og stjórn ábyrgari gerða sinna en verið
hefir, og hann taldi að þetta myndi að miklu eða öllu leyti
afnema flokkaskiptinguna. Deilur myndu frekar verða um mál-
efni en völd. Stjórnin yrði landsstjórn, en ekki flokksstjórn,
„fróðari og starfhæfari en nú gerist“. Fjármál myndu fá fastari
grundvöll og freistingin minnka til þess að eyða landsfé um
skör fram. Loks myndi innanlandsstyrjöld um stjórnmál að mestu
falla niður.
Þessi ritgerð vakti mikla athygli og var mikið rædd af hugs-
andi mönnum á sínum tíma. En það þarf mikið átak til þess að
breyta stjórnarfari eins lands, oftast nær stjórnarbyltingu. Mikið
hefir verið rætt um galla þingræðisins bæði fyrr og síðar, en
erfitt hefir flestum reynzt að setja nokkuð hetra í staðinn. Þar
sem einræði hefir tekið við, hefir það sízt gefizt betur. En her
gerir G. H. alvarlega tilraun til þess að skapa á pappírnum nýtt
stjórnskipulag, sem ætti að losna við ýmsa verstu galla þing'
ræðisins. Ekki er ómögulegt, að þessar tillögur hans konii til
athugunar síðar meir, þegar stjórnskipulag vort verður endur-
skoðað og væntanlega bætt.
Læknamál. Með öllu, sent G. H. hafði að gera, hafði hann
ávallt haft áhuga fyrir félagsskap og félagsstarfsemi lækna. Elann
var formaður félags norðan- og austanlækna 1902—1904 og t
stjórn læknafélags Reykjavíkur 1909—1917, þar af fonnaður
1911 — 15. Hann var gerður fyrsti formaður læknafélags íslands
við stofnun þess 1918 og var það til 1932, að 4 árurn undan-
teknum.
Ilonum var snemina ljóst, að cf læknar landsins áttu að