Andvari - 01.01.1958, Síða 43
ANDVARI
Brot úr verzlunarsögu II
39
Höfðakawpstadur. Eins og fyrr var ritað, var aðeins einn
kaupstaður í Húnavatnssýslu á einokunaröld, Höfðakaupstaður,
í landi Spákonufells á Skagaströnd. Síðasti kaupstjóri konungs-
verzlunarinnar síðari í Höfðakaupstað hét Johan G. Freywadt.
Freywadt þessi drukknaði í Kolku sumarið 1788, kallaður kaup-
maður í prestsþjónustubók Hofs á Skagaströnd. Hér stóð svo á,
að sölunefnd verzlunareigna tókst ekki að ná samningi um
afhendingu Höfðakaupstaðar árið 1788 og var verzlunin rekin
það ár fyrir konungsreikning, undir stjórn Freywadts. Var ekki
endanlega frá þessu máli gengið fyrri en sumarið 1789, er
Severin Stiesen keypti Höfðaverzlun af sölunefndinni. Er skulda-
bréf hans vegna kaupanna dags. 8. júlí 1789. Stiesens er getið
í sóknarmannatali Hofskirkju 1789. Árið eftir, 1790, gekk
Jónatan Sigurðsson stúdent frá Fjósavatni, síðar prestur á Stað
í Hrútafirði, í þjónustu Stiesens, kallaður faktor 1793 og hefir
ef til vill gegnt kaupstjórastarfi í Höfða frá 1790, því líkur eru
til, að Stiesen hafi setzt að ytra það ár. En sá var háttur margra
kaupmanna á fríhöndlunaröld og reyndar miklu lengur, að sitja
lengstum ytra en láta trúnaðarmenn sína, kaupstjóra eða faktora,
annast viðskiptin hér á landi. Sjálfir höfðu þeir þá umsjá með
sölu útfluttra vara ytra og innkaupum. Hefir þetta viðskiptalag
verið kallað selstöðuverzlun og kaupmennirnir selstöðukaupmenn.
Eigi voru þetta nein virðingarheiti. Munu þau fyrst hafa upp
komið, er heldur tók að fjölga innlendum kaupmönnum, er
höfðu búsetu fasta innanlands, en það verzlunarlag var talið
ólíkt hollara landsbúinu. — Árið 1801 lét Jónatan Sigurðsson af
kaupstjórastarfi í Höfða, en nokkru fyrr, 12. febr. 1800, hafði
Stiesen gert samning við J. L. Busch vegna Chr. G. Schrams
faktors um félag um verzlunina í Höfðakaupstað, en Stiesen var
þá í kröggum nokkrum með verzlun sína. Eigi mun þó félag þetta
hafa komizt til fulls á laggirnar fyrri en sumarið eftir, 1801, en
1. ágúst það ár gerir Stiesen félag við Christian Gynther Schram
um verzlunina í Höfða og Kúvíkum í Reykjarfirði, en þá