Andvari - 01.01.1958, Blaðsíða 47
ANDVARI
Brot úr verzlunarsögu II
43
náðu þá fyrr greindir keppinautar eignarhaldi á verzlunum þess
eystra og á Akureyri, sem síðar segir.
Veturinn 1825, 11. febr., seldi ekkja J. L. Busch Gísla
Símonarsyni kaupmanni frá Málmey á Skagafirði verzlunina i
Höfðakaupstað. Gísli Símonarson var á sínurn tíma einn hinn
lang-fremsti kaupmaður á Islandi. Stóð hann um nokkra hríð
víða fótum urn fjárafla og viðskipti, bæði fyrir sjálfan sig og
aðra. I félagi við Gísla um Höfðaverzlun var danskur stórkaup-
rnaður, Sören Jakobsen. Kaupstjóri þeirra var Peter Duus, síðar
nafnkenndur kaupmaður syðra. Svo er talið, að verzlun ger-
breyttist í Ilöfða, er Gísli Símonarson tók þar við umráðum.
Tók þá að mestu fyrir verzlunarsókn Húnvetninga til suður-
og vesturhafna. Jafnvel Skagfirðingar hófu nú að sækja verzlun
i Höfða. Þessu ollu auknir flutningar, meira og betra vöruval
og hagkvæmara verðlag, bæði á erlendri og innlendri vöru. En
þótt talið væri, að Gísli seldi vöru sína lægra verði cn áður
hafði þekkzt og gæfi betur fyrir gjaldvöruna, þreifst verzlun
hans vel og talinn var hann maður auðugur er hann féll frá,
en hann dó af slysförum í Kaupmannahöfn sumarið 1837, 63
ára að aldri. Tók þá Sören Jakobsen við verzlun í Höfða, en
því næst synir hans, „bræðurnir Jakobsen“.
Tveim árum fyrr en Gísli Símonarson andaðist, eða árið
1835, var verzlunarhús reist í Hólanesi, gegnt Höfðakaupstað.
Tveir menn danskir stóðu að fyrirtæki þessu, Bergman og Hille-
brandt. Byrjuðu þeir, eða Ferdinand Bergman, árið 1832 með
lausaverzlun í Höfðakaupstað og segir í Brandsstaðaannál, að
Þorsteinn Jónsson frá Auðkúlu, síðar kaupnraður í Reykjavík,
væri honum til halds og trausts hið fyrsta sumar, maður kunn-
ugur bændum og högunr öllum í Húnavatnssýslu. Voru síðan
unr alllanga hríð tvær verzlanir á Skagaströnd, í Höfða og í
I lólanesi. Verzlun Jakobsensbræðra í Höfða virðist hafa hlómg-
azt allvel unr 20 ára skeið eða svo, enda færðu þeir út kvíarnar
1852—1853, keyptu verzlun í Grafarósi, sem síðar segir. Næstu
árin til 1859 ráku þeir verzlun í Höfða, Grafarósi og Kúvíkunr,