Andvari - 01.01.1958, Side 48
44
Þorkell Jóhannesson
ANDVARl
en árið 1860 varð verzlunin gjaldþrota og kom engin sigling
það ár frá henni í Höfða eða Grafarós. Árið eftir, 1861, tók
Fr. Gudmann, sonur Jóhanns Gudmanns, við Höfðaverzlun og
var hún rekin í hans nafni þar til C. Höpfner, félagi Gud-
manns, tók við, um 1873. — Um verzlun Hillebrandts í Hóla-
nesi er það að segja, að hún virðist lengi hafa gengið allvel.
Hafði hún oft talsverÖa lausaverzlun á nágrannahöfnum á
surnrin, á Borðeyri, í Hofsós og á Blönduósi, sem síðar segir.
Upp úr 1870 virðist högurn hennar þó tekið að hnigna. 1874
tók Hillebrandt yngri við verzlunarstjórn í Hólanesi. Var hann
allduglegur maður, en laus á kostum og gekk margt hröskdega.
Llm þessar mundir komu hér nýjar verzlanir til sögunnar, verzlun
T. C. Berndsens í Höfða 1875, og verzlun Th. Thomsens á
Blönduósi 1876. Kreppti þá svo að Hillebrandtsverzlun að þar
urðu eigandaskipti 1877. Tók firmað Munch og Bryde í Kaup-
mannahöfn við verzluninni um sinn, en 1884 brunnu verzl-
unarhúsin og lagðist verzlunin þá niður. Var þá og að mestu
lokið þætti Skagastrandarverzlananna gömlu en nýtt kauptún
risið við Blönduós, og fór óðum stækkandi.
Blönduós. Ásgeir Einarsson alþingismaður á Þingeyrum átti
manna mestan þátt í því, að löggilt var kauptún á Blönduósi
1875. Hugðu þá ýmsir gott til þess, að hnekkt yrði veldi Skaga-
strandarkaupmanna í héraðinu. Þá kvað Hans Natansson vísu
þessa:
Ytum hagar allvel, því
aura nagast fjendur,
kann að baga kraftinn í
kúgun Skagastrendur.
Árið eftir, 1876, reisti Thoinas J. Thomsen, systursonur J.
A. Knudsens, er lengi var faktor í Hólanesi, verzlunarhús á
Blönduósi. Þótti nú Skagastrandarkaupmönnum illa horfa og árið
eftir reis hér einnig útihú frá Hólanesverzlun. Þetta sama ár
lézt Thomsen kaupmaður af slysförum að kallað var og keypti