Andvari - 01.01.1958, Blaðsíða 59
ANDVARI
Brot úr verzlunarsögu II
55
og mun svo liafa verið til 1809, en 1811 er hann orðinn verzl-
unarstjóri 0rum & Wulffs í Húsavík. Fyrir Kyhns-verzlun í
Siglufirði stóð á árunum 1800—1801 A. F. Lever, bróðir H.
W. Levers forstjóra Kyhns-verzlunar á Ahureyri. Síðan tekur
Jörgen Fr. Grundtvig við, kallaður faktor 1804—1811. Þegar hér
er komið sögunni, er verzlunarhögum á Siglufirði allmjög hnignað.
Verzlun Lynges mun hafa hætt 1809 og 1810—1811 virðist
Kyhnsverzlun vera ein um hituna. Tveim árum síðar, 1813, er
enginn verzlunarmaður nefndur í sóknarmannatali Hvanneyrar-
kirkju. Eins og fyrr getur lagðist Kyhns-verzlun á Akureyri niður
1811 og hefir sjálfsagt hætt samtímis á Siglufirði. Mun svo
engin föst verzlun hafa verið á Siglufirði um nokkurt árabil
upp þaðan, sem enn mun sagt verða. Var nú og að lokum liðið
fyrir þeim báðum, Kyhn og Lynge, eins og fyrr var frá sagt í
þættinum um Akureyrarverzlanir.
í tilskipun um verzlun á Islandi frá 11. okt. 1816 var Siglu-
fjörður ekki talinn með löggiltum kauptúnum. Stefán amtmaður
Þórarinsson spurðist þá fyrir um það hjá stjórninni, hvort Siglu-
fjörður, sem þegar 1788 hafði fenginn verið ákveðnum kaup-
manni til verzlunar, ætti ekki lengur að teljast löglegur verzl-
unarstaður. Mælti amtmaður með því, að Siglufjörður yrði áfram
í tölu löglegra kauptúna. Að athuguðu máli fellst rentukamm-
erið á þetta og var Siglufjörður löggiltur á ný 20. maí 1818. En
meðan á þessu þrefi stóð, varð það til tíðinda, að Níels Jónsson
verzlunarmanns Níelssonar, er sig nefndi Niels Nielsen, fóstur-
sonur Hans Baagöes, faktors 0rum & Wulffs í Húsavík, fluttist
til Siglufjarðar 1816 og sótti um leyfi til amtmanns að mega
selja eða verzla með vörur, er 0rum & Wulff hafði látið skipa
þar á land haustið 1815. Amtmaður þóttist ekki sjá neina ástæðu
4il að leyfa þetta, enda væri Lynge, kaupmaður á Akureyri,
skyldur að lögum til þess að reka verzlun á útibúi sínu í Siglu-
firði. Leyfissynjun sína mun amtmaður annars liafa byggt á því,
að 0rum & Wulff átti ekki fast aðsetur í kaupstað þeim, Akur-
eyri, er Siglufjörður heyrði til, samkvæmt gömlu verzlunarlög-