Andvari - 01.01.1958, Qupperneq 68
64
Þorkell Jóhannesson
ANDVARI
verzlun seld en Seyðisfjarðarverzlun hætti 1875. — Árið 1871
stofnaði Sveinbjörn Jakobsen fasta verzlun á Seyðisfirði, S. Jakob-
sen & Co. Sama ár urðu eigandaskipti að Knutzonsverzlun. Hét
sá Tborstrup, er við tók. Stóð svo til 1874, er Gránufélagið hóf
að verzla á Vestdalseyri.
Yfirlit þetta um verzlun á Seyðisfirði 1848—1874 sýnir glögg-
lega, að verzlunin þar átti fremur erfitt uppdráttar þessi ár.
En með vaxandi útgerð, einkum síldveiðum upp úr 1880, breytt-
ist aðstaðan stórlega, svo sem alkunnugt er.
Esltifjörður. Við lok einokunarinnar keypti G. A. Kylin
verzlunina í Reyðarfirði. Virðist bann bafa sett sig niður á
Búðareyri, en annars hafði einokunarverzlunin lengstum aðsetur
í Stóru-Breiðuvík, út með firðinum. Raunar höfðu ýmsir fyrir
löngu bent á, að heppilegra væri að bafa verzlunina í Eskifirði,
í landi Lambeyrar, og með verzlunarlögum 1786 var Eskifjörður
löggiltur sem aðalhöfn eða kaupstaður á Austurlandi, en Lamb-
eyri var hjáleiga frá jörðinni Eskifirði. Jörð þessa keypti G. A-
Kybn, vafalaust í þeim tilgangi að hindra keppinauta í því að
setjast þar að. Tókst honum þetta um bríð, en eigi leið samt á
löngu þar til Eskifjörður hafði dregið til sín alla verzlun frá
Reyðarfirði og þar með verzlun Kyhns sjálfs.
Eigi fara miklar sögur af verzlun á Reyðarfirði þar til 1798,
er þeir félagar Jens Wulff og Niels 0rum fengu 12 þús. rd.
lán bjá sölunefnd verzlunareigna konungs til þess að stofna
verzlun í Reyðarfirði. Munu þeir hafa byrjað að vei'zla í Stóru-
Breiðuvík, en inni á Búðareyri sat Kyhn. Þar var og önnur
verzlun, er A. V. Lever stýrði, en bún lagðist niður 1806. Árið
1803 fluttu þeir 0rum & Wulff verzlun sína til Eskifjarðar.
Hafði hér deila orðið milli þeirra Kybns, því nokkru fyrr böfðu
þeir félagar bafið að byggja sér hús í Eskifirði. Lauk þeim mál-
um með sigri þeirra félaga og 1802 var Kyhn boðið að afhenda
þeim land til afnota og svo Kjartani kaupmanni Isfjörð, er einnig
vildi setjast þarna að. Árið 1803 eru þeir 0. & W., Isfjörð og
Kybn setztir að á Eskifirði. Hér verður ekki greint frá öðrum