Andvari - 01.01.1958, Blaðsíða 77
ANDVARI
Kringum þjcðfundinn 1851
73
þess vegna hefi eg, af því eg þekki manngæzku yðar, talað eins
og mér býr í brjósti.
Enda þótt söguburðurinn ýki alltaf, þá álít eg samt, að segja
megi, að horfurnar séu allískyggilegar í landinu, en uppþot nem-
endanna er þó að eg hcld ekki rétt sýnishorn af þeim. Óánægjan
með prófastinn fylgdi í kjölfar hins og nú segja allir, að þeir
geti ekki heyrt til hans, sem raunar er tylliástæða hjá mörgum.
A Vesturlandi er sagt, að menn vilji setja sýslumennina Brynjólf
Svenzen í Barðastrandarsýslu og Thorarensen í Strandasýslu frá
embætti, en þeir eru nú ekki heldur í hópi hinna hæfustu. Til
þingsins í sumar vill þjóðin aðeins kjósa bændur, með einstöku
undantekningum, t. d. Stephensen prófast, Jón Sigurðsson,
hróður minn, og e. t. v. einhverja fleiri. Hér 1 Reykjavík vilja
þeir fá Repp; þeir segja, að emhættismennimir fylgi stjórninni
að málum, og það er Ijóst, hvað þar er við átt. Annars eru allar
líkur til þess, þegar líður að sumri og þjóðin ræðir málin, þá
verði vilji hennar gmndvallaður á meiri skynsemi.
Náttúran hefir verið okkur hagstæð, við höfum haft mjög
góðan vetur, betri en hina tvo síðustu og mjög góðan fiskiafla.
Bóndinn unir hag sínum einnig vel í þessu tilliti.
Eg er einnig hamingjusamur í heimilislífi mínu. Kona mín
og dóttir eru báðar við góða heilsu. Við biðjum að heilsa yðar
göfugu frú með innilegri þökk fyrir síðast. Kona mín hefir hætt
við að leggja sig eftir að tala dönsku, þar sem hún heldur, að
það sé árangurslaust.
Yðar auðmjúkur.
J.(ens) Sigurðsson.
Nesi, hinn 3. marz 1850.
Yðar hágöfgi!
Eg er þess fullvís, að hin mikla mannúð yðar mun fyrirgefa
mér þá dirfsku að ónáða yður með þessum fáu línum, sem ein-
ungis skulu færa yður og hennar náð, yðar góðu frú, vorar